Jaguar I-Pace bíll ársins 2020 á Íslandi

Bandalag íslenskra Bílablaðamanna (BÍBB) tilkynnti í dag, miðvikudaginn 16. október, að Jaguar I-Pace hafi verið valinn bíll ársins 2020 á Íslandi. Áður hefur Jaguar I-Pace verið valinn Heimsbíll Ársins, Rafbíll Ársins, Hönnun ársins og Bíll Ársins í Evrópu. Jaguar á Íslandi geta því verið gífurlega ánægðir með fimmtu nafnbótina til að líma á hliðar hins gullfallega Jaguars I-Pace.
BÍBB hefur staðið fyrir valinu á Bíl ársins frá árinu 2001 og er notast við stigakerfi í tólf flokkum líkt og hjá öðrum þjóðum. Gefin eru stig frá 0 og upp í 10, er því hámarks stigafjöldi hvers bíls 120 frá hverjum dómara. Átta blaðamenn tóku þátt í að dæma bílanna að þessu sinni og var því hæstu heildarstig sem hver bíll gat fengið 960 stig.

Athygli vakti að þetta er í fyrsta sinn sem að tveir flokkar rafbíla voru í keppninni, rafjeppar og rafbílar. Ásamt Jaguar I-Pace voru það Mercedes Benz EQC og Audi E-Tron saman í rafjeppa flokknum og náði sá hópur að hrifsa til sín flest stig og raða þeir sér í öll þrjú efstu sæti keppninar. Jaguar I-Pace er í því fyrsta með 775 stig, í því öðru er Audi E-tron með 755 og því þriðja er Mercedes EQC með 714. Það er því mjótt á mununum á milli þessarra þriggja bíla.

Í flokki rafbíla áttust við Hyundai Kona, Kia e-Soul og Ople Ampera. Þar hlaut Kia e-Soul flest stig, en aðeins ellefu fleiri en Hyundai Kona sem var í öðru sæti. Athygli vakti samt að Opel Ampera hlaut flest stig þegar kom að verði rafbílanna. Dómurum keppninnar fannst því kostakaup í Opel Ampera.

Í flokki jepplinga voru Honda CRV, Mazda CX-30 og Toyota RAV4. Í þeim flokki hlaut RAV4 flest stig og næst á eftir honum kom Mazda CX-30. Athygli vakti að stigagjöfin í þessum flokki var nokkuð jöfn yfir alla bílanna og munaði 40 stigum á milli þeirra allra.

Jeppaflokkurin skartaði Jeep Wrangler, SsangYoung Rexton og Suzuki Jimny. Þar hlaut Rexton flest stig og Jeep Wrangler var þar næst á eftir. Notagildi, verð og þægindi Rexton voru það sem tryggðu honum sigurinn. Suzuki Jimny hinsvegar rak lestina í þeim flokki og reyndar keppninni allri.

Í flokki stærri fólksbíla var Peugeot 508 sigursælastur en hann keppti á móti Mercedes Benz B-Class sem hlaut annað sætið og Toyotu Camry. Athygli vekur þegar horft er til stigagjafar dómaranna í þessum flokki að Peugeot 508 vann með yfir 40 stigum, og endaði þannig í fjórða sæti yfir bílanna átján, aðeins fjórum stigum undir Mercedes Benz EQC. Hinsvegar var aðeins ellefu stiga munur á B-Class og Camry.

Toyota Camry kom blaðamönnum mjög á óvart þegar kom að sparneytni og hlaut hann flest stig í keppninni í þeim flokki dómnefndar.

Keppnin í flokki minni fólksbíla var hörð og þar tókust á VW T-Cross, Toyota Corolla og Mazda 3. Aðeins munaði sautján stigum á fyrsta og öður sætinu í þeim flokki sem verður að teljast ansi knappt, en Toyota Corolla fékk flest stig þar og bar því sigur úr bítum. Var það upplifun ökumanns og hönnunin þeir flokkar sem Corrolla náði í þau stig sem þurfti til að hafa vinninginn yfir Mazda 3 sem dómurum þótti þó hagstæðari kaup, sé horft til stigagjafarinnar.
Heildarstigafjöldi:
1. Jaguar I-Pace – 775
2. Audi E-Tron – 755
3. Mercedes Benz EQC – 714
4. Peugeot 508 – 710
5. Toyota RAV4 – 692
6. Kia e-Soul – 682
7. Mercedes Benz B-Class – 673
8. Hyundai Kona – 671
9. Toyota Corolla – 665
10. Toyota Camry – 662
11. Mazda CX-30 – 655
12. Mazda 3 – 648
13. Opel Ampera – 646
14. Honda CRV – 612
15. SsangYong Rexton – 610
16. VW T-Cross – 538
17. Jeep Wrangler – 527
18. Suzuki Jimny – 463
Efstu bílar í hverjum flokki voru eftirfarandi:
Hönnun: Peugeot 508 með 72 stig
Þægindi: Jaguar I-Pace með 66 stig
Öryggi: Mazda CX-30 með 65 stig
Sparneytni Eyðsla: Toyota Camry með 65 stig
Aksturseiginleikar: Jaguar I-Pace með 70 stig
Frammistaða í akstri: Jaguar I-Pace með 75 stig
Notagildi: SsangYoung Rexton með 64 stig
Umhverfisþættir: Kia e-Soul með 65 stig
Upllifun Ökumanns: Mercedes Benz EQC með 66 stig
Verð: Mazda CX-30 með 67 stig
Tæknilegar nýungar: Jaguar I-Pace með 65 stig
Verðgildi: Mazda CX-30 með 67 stig
Við hjá Bílablogg.is óskum Jaguar á Íslandi til hamingju með sigurinn.





Ljósmyndir: Bílablogg.is – Jóhannes Reykdal og Óskar Pétur Sævarsson.
Haraldur Guðjónsson Thors.