BL við Sævarhöfða hefur, líkt og Hyundai á Íslandi, lækkað verð á nýjum fólksbílum frá nokkrum bílaframleiðendum og nær lækkunin að auki til sendibíla hjá umboðinu. Lækkanirnar nema frá 300 þúsund krónum upp í 1.500 þúsund krónur.
Meðal þeirra fólksbíla sem lækka í verði má nefna fjórhjóladrifna rafmagnsjepplinginn Hongqi EHS5 sem verður eftir lækkunina einn hagkvæmasti bíllinn í sínum flokki. Þá lækkar Renault 5, sem er stórskemmtilegur og lipur rafmagnsfólksbíll, sem og Nissan Leaf, sem hefur margsannað sig og er einn mest seldi rafbíllinn á Íslandi.
Að lokum má nefna MG4 Urban, sem mun að öllum líkindum vekja mikla athygli á nýju verði, enda fáheyrt að hægt sé að fá nýjan rafmagnsfólksbíl með 7 ára ábyrgð á 2.990.000 kr. að teknu tilliti til rafbílastyrks.
Sendibílar á Sævarhöfðanum hafa einnig lækkað í verði, þeirra á meðal rafmagnssendibíllinn Renault Master E-tech, sem lækkar um 1.500 þúsund og er nú kominn undir 10 milljónir króna sem gerir hann styrkhæfan fyrir rafbílastyrk.
Yfirlit helstu lækkana með fyrirvara um villur og frekari breytingar sem geta komið fram
| Tegund | Verð áður | Verðbreyting | Nýtt verð | Með rafbílastyrk |
| MG4 Urban Comfort | 4.190.000 kr. | -700.000 kr. | 3.490.000 kr. | 2.990.000 kr. |
| Renault 5 Techno | 5.390.000 kr. | -400.000 kr. | 4.990.000 kr. | 4.490.000 kr. |
| Nissan Leaf Engage | 6.990.000 kr. | -600.000 kr. | 6.390.000 kr. | 5.890.000 kr. |
| Hongqi EHS5 Premium | 6.990.000 kr. | -500.000 kr. | 6.490.000 kr. | 5.990.000 kr. |
| Renault Master E-tech | 11.490.000 kr. | -1.500.000 kr. | 9.990.000 kr. | 9.490.000 kr. |
„Við höfum verið að vinna í undirbúningi lækkananna undanfarna daga. Ástæðan er sú sama og Hyundai hefur kynnt, það er styrking krónunnar um 4% frá því í febrúar og vilji fyrirtækisins til að taka þátt í því verkefni að reyna að lækka verðbólgu og þá forsendur fyrir lægri vöxtum í framhaldinu,“ segir Íris Ansnes, framkvæmdastjóri fjármála BL, sem tekur fram að lækkanirnar séu mismiklar eftir módelum.
Fréttatilkynning frá BL.




