Það er ekki oft sem maður sest upp í lítinn rafbíl og stígur út aftur með þá tilfinningu að maður hafi verið að keyra eitthvað sem gæti gjörbreytt væntingum fólks til þessa flokks bíla. En akkúrat þannig upplifun er JAC E30X.
Við hjá Bílablogg.is fengum nýlega tækifæri til að prófa þennan nýja smárafbíl frá JAC og það fyrsta sem sló okkur var hversu afgerandi vel heppnaður hann er sem heildarpakki.
Þetta er ekki bara ódýr borgarbíll með rafhlöðu. Þetta er vel hannaður, tæknilega sannfærandi og ótrúlega vel búinn bíll sem virðist í raun ætla sér miklu meira en að vera bara „praktískur“.

Þetta er vel hannaður, tæknilega sannfærandi og ótrúlega vel búinn bíll sem virðist í raun ætla sér miklu meira en að vera bara „praktískur“.
Það má eiginlega segja að E30X marki ákveðin tímamót í því hvernig fólk mun horfa á kínverska bílaframleiðendur á næstu árum.
Ef einhver hefur enn þá hugmynd að kínverskir bílar séu nokkrum skrefum á eftir Evrópu eða Kóreu, þá þarf sá hinn sami einfaldlega að fara reynsluakstur á þessum bíl.
Retro útlit með nútímalegum karakter
Hönnunin er eitt af því fyrsta sem grípur athyglina. JAC E30X nær mjög skemmtilegu jafnvægi milli retro og framtíðarhönnunar.
Kringlóttu framljósin eru sérstaklega vel heppnuð og samanstanda af yfir hundrað LED-ljósum sem gefa bílnum mjög sérstakt yfirbragð. Það er ákveðinn karakter yfir honum sem marga nýja rafbíla skortir.

Í stað þess að líta út eins og enn einn boxlaga jepplingurinn tekst E30X að vera bæði nettur og persónulegur í útliti.
Í stað þess að líta út eins og enn einn boxlaga jepplingurinn tekst E30X að vera bæði nettur og persónulegur í útliti.
Hann er smár án þess að virka ódýr og sportlegur án þess að reyna of mikið.









Smáatriðin skipta líka máli. Hringlaga hliðarspeglarnir eru upphitaðir og með rafdrifinni aðfellingu sem lokast sjálfkrafa þegar bílnum er læst. Þetta eru atriði sem maður býst ekki endilega við í þessum stærðar- og verðflokki, en JAC virðist hafa ákveðið að sleppa sem fæstum þægindum.
Svo er hiti og kæling í framsætum. Kæling hefur hingað til verið kennd við lúxusubílaflokkinn. E30X kemur fullur af öryggisbúnaði og gefur ekkert eftir.
Þar má nefna: Rafdrifnir gluggar með klemmuvörn, hliðar öryggispúðar að framan, höfuð öryggispúðar að framan og aftan, árekstrarvari (CDP), 360° myndavélakerfi, blindsvæðisvörn, akreinaviðvörun, hurðaropnunarviðvörun, þverumferðarvari, akreinaskiptisaðstoð, viðvörun áreksturs að framan, sjálfvirk háuljósaaðstoð.

Kringlóttu framljósin eru sérstaklega vel heppnuð og samanstanda af yfir hundrað LED-ljósum sem gefa bílnum mjög sérstakt yfirbragð.
Innrétting sem kemur virkilega á óvart
Þegar inn í bílinn er komið heldur jákvæða upplifunin áfram. Fyrstu viðbrögðin voru eiginlega einföld: „Þetta er miklu flottara en maður bjóst við.“
Innréttingin er hrein, nútímaleg og mjög vel útfærð. Stóri 15,6 tommu upplýsingaskjárinn ræður ríkjum í mælaborðinu og sameinar leiðsögn, afþreyingu, tengingar og stillingar bílsins á mjög snyrtilegan hátt.
Kerfið styður bæði þráðlaust Apple CarPlay og Android Auto og virkar einfaldlega vel í daglegri notkun. Plastið í mælaborðinu er reyndar hart en okkur var nákvæmlega sama um það.

Innréttingin er hrein, nútímaleg og mjög vel útfærð.
Skjárinn sjálfur er skýr og hraðvirkur og bíllinn gefur almennt mjög tæknilega fágaða tilfinningu.
Þetta er ekki einn af þessum bílum þar sem hugbúnaðurinn virkar hálfkláraður eða ódýr. Þvert á móti.

Stóri 15,6 tommu upplýsingaskjárinn ræður ríkjum í mælaborðinu og sameinar leiðsögn, afþreyingu, tengingar og stillingar bílsins á mjög snyrtilegan hátt.
Sætin komu einnig skemmtilega á óvart. Þau eru þægileg, með góðum stuðningi og bjóða upp á meiri þægindi en maður býst við í smábíl. Akstursstaðan er góð og yfirsýn ágæt, sem gerir bílinn sérstaklega þægilegan í borgarakstri.
Bílstjórasætið færist sjálkrafa aftur þegar stigið er út úr bílnum – og það eru rafdrifið, upp og niður, fram og tilbaka.
Eitt sem ekki má gleyma en geymsluboxið milli sætanna er bæði rúmgott og virkar einnig sem kælir – nú eða heldur heitu.
Meiri bíll en stærðin gefur til kynna
Þó E30X sé nettur að utan nýtist plássið vel að innan. Farangursrýmið er 310 lítrar sem er mjög ásættanlegt í þessum flokki og aftursætin eru með 60:40 skiptingu til að auka sveigjanleikann.

V2L tengimöguleikinn er skemmtilegur fídus. Þar getur þú tengt ýmis smáraftæki við bílinn.
Þetta er því bíll sem getur auðveldlega sinnt daglegu fjölskyldulífi, innkaupum og jafnvel helgarferðum án þess að maður sé stöðugt að hugsa um plássleysið sem oft fylgir smærri bílum.
Sólþakið er glæsilegt og hleypir birtu inn í bílinn sem stækkar innanrýmið talsvert í huganum. Aftursætin eru vel formuð með nægu fótaplássi og passlegu höfuðplássi og þar eru að sjálfsögðu Isofix bílstólafestingar.
Ekki spyrnubíll – og reynir það ekki heldur
Á veginum kemur svo í ljós að JAC hefur greinilega lagt áherslu á þægindi og jafnvægi frekar en að búa til „hot hatch“ rafbíl.
Rafmótorinn skilar nægu afli fyrir bíl af þessari stærð og hann er lipur og skemmtilegur í daglegum akstri. En það þarf líka að segja hlutina eins og þeir eru: þetta er ekki spyrnubíll.

Virkilega töff smábíll – 100% rafdrifinn.
Inngjöfin er mjúk og yfirveguð frekar en aggressív. Bíllinn stekkur ekki af stað við minnstu snertingu á inngjöfinni eins og sumir kraftmiklir rafbílar gera.
Sumir gætu viljað aðeins snarpari viðbrögð, en eftir nokkurn akstur fer maður eiginlega að meta þessa nálgun.
Bíllinn er rólegur, þægilegur og keyrir með ákveðnum þroska.







Og aflskortur er alls ekki vandamál. Hann fer einfaldlega vel með aflið sem er til staðar í stað þess að eyða því í dramatík.
Stinn fjöðrun
Ef eitthvað mætti helst setja út á eftir reynsluaksturinn væri það fjöðrunin.
Hún er í stífari kantinum og maður finnur ágætlega fyrir holum og grófu malbiki.
En hér þarf líka að setja hlutina í samhengi. Fjöðrunin er alls ekki verri en maður finnur í mörgum stærri og dýrari rafbílum í dag. Þar má til dæmis nefna Polestar 2 sem hefur lengi verið þekktur fyrir nokkuð stinna fjöðrun. Tesla getur einnig verið nokkuð stíf á lélegu malbiki borgarinnar.

Virkilega rúmgóður þegar sest er inn í aftursætin, ekki síður en í framsætin.
Munurinn er hins vegar sá að E30X er smábíll á allt öðrum verðpunkti. Bíllinn liggur vel á veginum, er stöðugur í beygjum og stífa fjöðrunin hjálpar honum að halda ákveðinni sportlegri tilfinningu í akstri.
Drægni og hleðsla sem dugar
JAC E30X er búinn 51,5 kWh rafhlöðu og býður upp á mjög skynsamlega blöndu af drægni og hagkvæmni. WLTP-drægni er uppgefin um 374 km og upp í 524 km eftir útfærslum og búnaði, sem er mjög fínt fyrir bíl í þessum flokki. E30X er með varmadælu sem sparar orku.
Í daglegri íslenskri notkun ætti bíllinn því að henta langflestum án nokkurra vandræða.

Blindsvæðavörn er góður kostur á yfirfullum stofnbrautum borgarinnar.
Hleðslukerfið er einnig vel samkeppnishæft. Bíllinn styður allt að 11 kW AC heimahleðslu sem þýðir að hann nýtir þriggja fasa hleðslustöðvar vel, og DC hraðhleðsla fer allt að 64 kW.
Samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda tekur hraðhleðsla úr 30–80% um 30 mínútur með CCS hleðslutengi sem er staðalbúnaður. Að auki býður JAC E30X upp á V2L tengimöguleika sem gerir fært að hlaða til dæmis raftæki eins og ísskáp, vélsög eða loftdælu.
E30X er borgarbíll, fjölskyldubíll, vinnubíll eða bara bíllinn þinn. Þetta er bíll sem fólk mun fyrst og fremst nota í daglegu lífi – og þar stendur hann sig mjög vel.
Ótrúlega mikið fyrir peninginn
Kannski er það sem stendur mest upp úr eftir reynsluaksturinn hversu mikið maður fær fyrir peninginn.
JAC E30X er einfaldlega ótrúlega vel búinn smábíll. Hann kemur með búnaði sem áður var bundinn við mun dýrari bíla: stórum upplýsingaskjá, þráðlausum snjallsímatengingum, sjálfvirkum speglum, fjölbreyttum öryggiskerfum og mjög nútímalegri innréttingu.

Innstig er þægilegt hvort sem stigið er inn að aftan eða sest inn að framan.
En mikilvægast af öllu er að bíllinn virkar ekki eins og málamiðlun.
Hann er ekki „vel heppnaður miðað við að vera kínverskur“. Hann er einfaldlega vel heppnaður bíll.
Og það er líklega stærsta hrósið sem hægt er að gefa honum.
Myndband
Helstu tölur:
Verð: 3.890.000 kr.
Hestöfl: 134
Drægni: 374 km. skv. WLTP.
Rafhlöðustærð: 51,5 kWh.
Eigin þyngd: 1.820 kg.
Heimahleðslugeta (AC): 11 kW.
Hraðhleðslugeta (DC): 64 kW.







