Það er ekki á hverjum degi sem nýr rafbíll nær að koma manni raunverulega á óvart. Volkswagen ID.7 er einn af þeim. Þrátt fyrir að tilheyra sömu fjölskyldu og Volkswagen ID.4, 5 og Volkswagen ID.3, þá er akstursupplifunin allt önnur.
Hér er um að ræða þroskaðri og fágaðri bíl, sem er augljóslega hannaður með meiri áherslu á þægindi, rými og heildarupplifun. Bíllinn er boðinn með 4motion fjórhjóladrifskerfi hjá Heklu.

Bíllinn er boðinn með 4motion fjórhjóladrifskerfi hjá Heklu.
Gott að keyra’nn
Það sem grípur mann strax við fyrstu kynni er hversu vel bíllinn liggur á veginum. Stýringin er nákvæm og viðbrögðin mjúk en örugg.
Þetta er ekki bíll sem reynir að heilla með „spark’í” rassinn krafti eða sportlegum tilburðum, heldur með jafnvægi og yfirvegun.

Afturhlutinn samsvarar sér mjög vel. LED ljósastika lýsir síðan upp skotthlerann á milli afturljósanna.
Aðlögunarhæfa fjöðrunarkerfið er einn af helstu styrkleikum bílsins myndi ég segja. Það vinnur afar vel við mismunandi aðstæður og gleypir ójöfnur á veginum á sannfærandi hátt.
Hvort sem ekið er á grófu malbiki eða sléttum þjóðvegi, heldur bíllinn góðum stöðugleika og veitir farþegum þægilega ferð. Þessi eiginleiki gerir það að verkum að aksturinn minnir frekar á stærri og dýrari lúxusbíla.

Undir húddinu – eða réttara sagt undir gólfinu – eru 340 hestöfl sem skila sér á mjúkan og stöðugan hátt.
Undir húddinu – eða réttara sagt undir gólfinu – eru 340 hestöfl sem skila sér á mjúkan og stöðugan hátt. Aflið er meira en nægjanlegt fyrir bíl af þessari stærð og nýtist vel hvernig sem þú vilt nýta það – á þjóðvegi eitt eða á grófara vegyfirborði.
Þetta er kraftur sem styður við þægindin, frekar en að yfirgnæfa þau.

Drægni upp á um 560 km samkvæmt WLTP-staðli setur bílinn í mjög samkeppnishæfa stöðu.
Rými og þægindi
Volkswagen ID.7 er fyrst og fremst fjölskyldubíll – og þar stendur hann mjög sterkt.
Innréttingin er rúmgóð og vel hönnuð, með skýra áherslu á notagildi. Sætin eru einstaklega þægileg, með rafstillingum, nuddvirkni og og halda sérlega vel við mjóbak. Hægt er að lengja setur á einfaldan máta.
Þetta er búnaður sem skiptir raunverulegu máli, sérstaklega á lengri ferðum. Nuddið í sætunum meira að segja gerði bara lukku.

Plássið aftur í er með eindæmum og gólfið slétt enda bíllinn byggður á rafpalli Volksvagen.
Farangursrýmið er 605 lítrar og stækkar upp í um 1700 lítra með niðurfelldum aftursætum. Þetta gerir bílinn afar hentugan fyrir fjölskyldur sem þurfa sveigjanlegt og rúmgott geymslupláss.
Geymsluhólf í farþegarými eru einnig vel útfærð og nýtast vel í daglegu lífi.

Farangursrýmið er um 605 lítrar með sætin uppi en um 1714 lítrar með niðurfellingu sætisbaka.
Rafdrifinn afturhleri og snjallt IQ-ljósakerfi bæta síðan við heildarþægindin og styrkja tilfinninguna fyrir vel útbúnum bíl.
Hvað er IQ LED ljósakerfi?
IQ.LIGHT er heiti á snjöllu ljóskerfi frá Volkswagen sem notar LED eða Matrix LED tækni til að bæta sýn og öryggi í akstri — sérstaklega í myrkri.

IQ ljósatæknin er brjáðsnjöll og eykur öryggi og þægindi í akstri.
Í stað þess að vera bara „kveikt/slökkt“ á háum ljósum, þá er IQ.LIGHT miklu snjallara:
Matrix LED ljós
- Ljósin eru samsett úr mörgum litlum LED einingum sem hægt er að stjórna hverri fyrir sig.
- Sjálfvirk hágeislastýring (Dynamic Light Assist): Bíllinn skynjar aðra bíla og slekkur bara á þeim hluta ljóssins sem myndi blinda — en heldur restinni af háu ljósum.
- Beygjulýsing (Dynamic Cornering Light): Ljósin snúa sér með stýri eða vegi þannig að þú sérð betur í beygjum.
- Veður- og hraðaaðlögun: Breytir ljósdreifingu eftir hraða, rigningu eða þoku.
- Smá „light show“ þegar þú opnar/lokar bílnum.

Ljós kviknar í VW merkinu og LED ljósastika liggur á milli framljósanna.
Drægni og hleðsla
Drægni upp á um 560 km samkvæmt WLTP-staðli setur bílinn í mjög samkeppnishæfa stöðu. Fyrir flesta notendur þýðir þetta að daglegur akstur fer fram án áhyggja af hleðslu.

ID.7 er stór bíll og hentar sérlega vel fyrir fjölskyldur í stærri kantinum. Gott pláss er afturí og hurðir opnast vel bæði að framan og að aftan.
Hraðhleðsla allt að 200 kW gerir kleift að bæta verulega við drægni á skömmum tíma, en 11 kW heimahleðsla hentar vel fyrir næturhleðslu.
Þetta jafnvægi milli drægni og hleðsluhraða gerir bílinn að raunhæfum kosti bæði í innanbæjarakstri og á lengri ferðum.
Afþreyingarkerfi – ekki alveg á sama stigi
Ef leita á að veikleikum, þá liggur það helst í afþreyingarkerfinu. Þrátt fyrir að skjárinn sé stór og virkni mikil, þá vantar enn ákveðna fágun í viðmótið.
Hönnun útlits á skjágrafík er ekki jafn glæsileg og hjá mörgum keppinautum og notkunin gæti verið liprari.

Skjárinn hefur stækkað en stýrikerfið er svipað og áður. Þar mættu fara að koma fram nýjungar hjá Volkswagen – nema að takkar verði ef til vill ráðandi aftur.
Hljóðkerfið frá Harman Kardon stendur sig ágætlega, en miðað við verðflokk hefði mátt búast við meiri krafti og dýpt.
Sæti, pláss og fídusar
Innstig er mjög þægilegt í bílinn þó svo að þetta sé fólksbíll. Hurðir opnast upp á gátt og eru frekar stórar án þess að vera þungar á nokkurn hátt. Plássið aftur í er með eindæmum og gólfið slétt enda bíllinn byggður á rafpalli Volksvagen.
Sætin aftur í eru þægileg og halda vel við bak og læri. Seturnar eru langar þannig að þú situr djúpt í sætinu.
Höfuðpláss er mjög gott, jafnvel fyrir hávaxinn einstakling af stærri gerðinni. Þá eru aðgengilegar Isofix festingar aftur í sem gera auðvelt að koma fyrir barnastól í bílnum.

Sætin eru mjög þægileg og Alcantra áklæðið kemur vel út.
Aftur í eru síðan Harman Kardon hátalarar ásamt hefðbundnum USB C tengjum og stillingum fyrir miðstöð.
Frammí eru sætin á pari við það besta í boði í fólksbílum og sportjepplingum í dag. Sérlega vel bólstruð og Alcantra efnið er fallegt. Framstólarnir eru rafstilltir og þú getur fundið bestu hugsanlegu staðsetninguna á einfaldan máta. Stýrið er þægilegt og gott að halda um. Það er hægt að draga fram og ýta aftur eftir því hvernig þú vilt hafa það.
Í stýrinu eru svo stillingar fyrir skynvædda hraðastillinn, fjarlægðarstillingu, akreinastýringu og akreinavara. Við prófuðum hálf, sjálfkeyrandi akstur á Reykjenesbrautinni og bíllinn höndlaði hann með ágætum. Í stýrinu er síðan skipt á milli fram og afturgírs og hefðbundinn armur fyrir þurrkur og þessháttar.








Mælaborð er einfalt og sýnir vel það sem við eigum að sjá þar. Skýr sýn á hraðamæli og hleðslu og frábær uppsetning á head up display. Þar má sjá stillingar fyrir skynvæddan hraðastilli, hraða að sjálfsögðu og stöðu rafhlöðu.

Geymslurými milli sætanna er rúmgott og það fer frekar lítið fyrir þessum miðjustokk – allavega finnur maður lítið fyrir honum í akstri.
Síðast en ekki síst eru ýmsir öryggisfídusar í head up display. Til dæmis lætur bíllinn þig vita ef þú ert kominn of nálægt næsta bíl fyrir framan eða þú heldur þig ekki á miðju akreinar. Ennfremur lætur bílinn vita um aðkomandi beygjur sem er mjög kúl fídus.
Samkeppnin – sterk staða í verði og notagildi
Í verðsamanburði við bíla á borð við Audi Avant e-tron og Porsche Taycan Sport tourer kemur Volkswagen ID.7 afar vel út. Hann býður upp á rými, þægindi og aksturseiginleika sem standast samanburð, á sama tíma og verðið er yfirleitt talsvert hagstæðara.

Hægt er að lengja seturnar sem styður við undir hnésbætur. Virkilega þægilegur fídus á lengri leiðum.
Niðurstaða
Niðurstaðan er skýr: Volkswagen ID.7 er framúrskarandi fjölskyldubíll.
Hann sameinar þægindi, rými og fágaða aksturseiginleika á sannfærandi hátt. Hann er greinilega skref upp á við frá fyrri ID-gerðum og hentar sérstaklega vel íslenskum aðstæðum.
Þó afþreyingarkerfið nái ekki alveg sama stigi og hjá sumum keppinautum, þá vegur það lítið á móti heildarupplifuninni. Fyrir þá sem leita að rúmgóðum, þægilegum og vel akandi rafbíl er þetta einn áhugaverðasti kosturinn í dag.
Myndband
Helstu tölur:
Verð: 9.490.000 kr
Hestöfl: 340
Drægni: 560 km. skv. WLTP.
Rafhlöðustærð: 86 kWh.
Hámarksheildarþyngd: 2.800 kg.
Heimahleðslugeta (AC): 11 kW.
Hraðhleðslugeta (DC): 200 kW.
Dráttargeta án hemla/með hemlum: 750/1400 kg.















