Vinnubíllinn sem maður hefði viljað hafa í gamla daga

Tegund: Kia PV5 Cargo

Árgerð: 2026

Orkugjafi: Rafmagn

Akstursþægindi, aðgengi, hönnun
Baksýnisspegill
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Það er eitthvað einstaklega heiðarlegt við góðan sendibíl. Hann þarf ekki að þykjast vera sportbíll, fjölskyldujeppi eða lífsstílsgræja. Hann þarf bara að mæta í vinnuna, taka við dótinu, gera daginn einfaldari og helst ekki þreyta þann sem situr undir stýri allan daginn. Kia PV5 Cargo gerir þetta ótrúlega vel.

Við fengum Kia PV5 Cargo að láni hjá Öskju í Reykjanesbæ og það tók ekki langan tíma að átta sig á því að hér er ekki bara „rafknúinn sendibíll“. Þetta er bíll sem virðist hannaður utan um vinnudaginn sjálfan. Aðgengið, hleðsluna, stoppið, snattið, verkfærin, kassana, lyftarann, símann, kaffibollann og ökumanninn sem þarf að gera þetta allt aftur og aftur.

Kia kallar PV5 hluta af PBV-línu sinni, eða Purpose Built Vehicle, og það skilar sér.

Sérstaklega hannaður með vinnu í huga

Kia kallar PV5 hluta af PBV-línu sinni, eða Purpose Built Vehicle, og það skilar sér. E-GMP.S undirvagninn er hannaður fyrir atvinnubíla og gerir Kia kleift að bjóða lágt, flatt og notadrjúgt rými.

Farmrými á að rúma tvö eurobretti, hleðsluhæð að aftan er 419 mm og farmrýmið er um 4.2-5.17 rúmmetrar (fer eftir þaki). Burðargetan er um 690 kg. Spurning hvort það nægir ef um útkeyrslu á vörum er að ræða?

Það sem kemur mest á óvart þegar maður opnar bílinn er einfaldlega plássið. Maður horfir inn og hugsar: já, hér er hægt að vinna. Ekki bara að henda einhverjum kössum inn og vona að allt passi, heldur skipuleggja daginn, raða, sækja, skila og ganga að hlutunum án þess að bölva hönnuninni. Það skiptir máli í atvinnubíl.

Þetta er einmitt svona bíll sem maður hefði verið ansi hrifinn af að hafa í útkeyrslu og snatti í gamla daga þegar maður ók Subaru E10 bitaboxi í gamla daga.

Frábært aðgengi

Hliðarhurðir eru beggja vegna og það er eiginleiki sem maður lærir fljótt að kunna að meta. Það er hægt að nálgast farmrýmið frá þeirri hlið sem hentar hverju sinni, hvort sem bíllinn stendur við gangstétt, í þröngu stæði, við húsvegg eða á athafnasvæði.

Afturhurðirnar opnast til hliðanna og Kia segir þær opnast allt að 180 gráður. Þar verður aðgengi með lyftara einfalt og þægilegt ekki einhver leikfimi þar sem ökumaðurinn þarf að finna rétta hornið og biðja um smá heppni.

Hliðarhurðir eru beggja vegna og það er eiginleiki sem maður lærir fljótt að kunna að meta.

Þetta er einmitt svona bíll sem maður hefði verið ansi hrifinn af að hafa í útkeyrslu og snatti í gamla daga þegar maður ók Subaru E10 bitaboxi í gamla daga.

Sá Subaru var skemmtilegur á sinn hátt, með sinn karakter og drýgði hetjudáð, en miðað við PV5 Cargo var hann auðvitað meira eins og verkfæri frá annarri plánetu.

Kia er hljóðlátur, rúmgóður, þægilegur og miklu betur hugsaður fyrir mann sem þarf að fara oft inn og út, opna og loka, bakka upp að dyrum og halda haus allan daginn.

Afturhurðirnar opnast til hliðanna og Kia segir þær opnast allt að 180 gráður.

Þægilegur í akstri

Í akstri kom PV5 Cargo skemmtilega á óvart. Þetta er ekki bíll sem reynir að vera hraður eða æsilegur, en hann er mjög þægilegur. Rafmótorinn gerir það sem rafmótorar gera best í svona bíl: hann gefur mjúkt og öruggt tog strax af stað, án hiksta, án gírskiptinga og án hávaða.

Í bæjarakstri er þetta góður kostur. Maður læðist af stað, rennur milli staða og finnur fljótt að stressið í akstrinum verður minna.

Rafmótorinn gerir það sem rafmótorar gera best í svona bíl: hann gefur mjúkt og öruggt tog strax af stað, án hiksta, án gírskiptinga og án hávaða.

Sætisstaðan er góð og yfirsýn fram á við er fín. Ökumannsrýmið er einfalt en ekki hrátt. Það er allt sem til þarf: skjár, tengimöguleikar, geymslur og þægileg stjórntæki.

Kia leggur áherslu á vítt útsýni fram á við, USB-C tengi, þráðlausa hleðslu og V2L-virkni sem getur nýst til að knýja rafmagnstæki á ferðinni.

Það er allt sem til þarf: skjár, tengimöguleikar, geymslur og þægileg stjórntæki.

Fullt af fídusum

Geymslurnar í ökumannsrýminu eru líka vel heppnaðar. Í vinnubíl er það ekki aukaatriði. Sími, lyklar, reikningar, verkfæri, hanskar, hleðslukaplar og allt þetta litla dót sem annars endar í sæti, á gólfi eða undir bremsupedala þarf að eiga sinn stað. Kia virðist skilja það.

Þarna er tilfinning fyrir því að bíllinn hafi verið hannaður af fólki sem veit að atvinnubíll er oft líka skrifstofa á hjólum.

Skjárinn hjálpar án efa til við að finna verkstað, rata milli fyrirtækja í bænum eða halda utan um daginn. Í PV5 er 12,9 tommu skjár með Android Automotive OS, OTA-uppfærslum og tengdum lausnum fyrir fyrirtæki og bílaflota.

Þetta er einmitt það sem nýr atvinnubíll þarf að hafa í dag. Ekki endilega til að vera flottur í bæklingi, heldur til að spara fé og fyrirhöfn.

Í PV5 er 12,9 tommu skjár með Android Automotive OS, OTA-uppfærslum og tengdum lausnum fyrir fyrirtæki og bílaflota.

Enginn baksýnisspegill

Það var þó eitt sem við söknuðum: baksýnispegils, eða öllu heldur myndavélaspegils sem sýnir aftur fyrir bílinn í akstri.

Í lokuðum sendibíl er hefðbundinn baksýnisspegill auðvitað gagnslítill, en þá verður myndavélaspegill enn mikilvægari.

Bakkmyndavélin var hins vegar mjög góð og gerir sitt þegar verið er að leggja eða bakka að dyrum, en í daglegum akstri hefði verið gott að geta séð betur hvað væri að gerast fyrir aftan bílinn.

Farmrýmið er sterkasti hluti bílsins. Þar vinnur PV5 Cargo greinilega sinn sigur. Flatt gólf, góð hæð, góð breidd og aðgengi frá báðum hliðum gera bílinn mjög notadrjúgan. Kia gefur upp 2.255 mm lengd í farmrými, 1.565 mm hámarksbreidd og 4,4 rúmmetra hleðslurými fyrir aftan skilrúm í þeirri útfærslu sem Kia sýnir í tæknigögnum sínum.

Í lokuðum sendibíl er hefðbundinn baksýnisspegill auðvitað gagnslítill, en þá verður myndavélaspegill enn mikilvægari.

Það er sérstaklega eftirtektarvert hvað auðvelt er að „ganga um“ bílinn. Það er ekki þessi tilfinning að maður sé alltaf að beygja sig á rangan hátt, reka sig í eða troða hlutum í rými sem er tæknilega séð stórt en illa nýtt. Hæðin og aðgengið skipta miklu. Fyrir sendla, iðnaðarmenn, þjónustuaðila, verslanir, varahlutaflutninga, smærri fyrirtæki og alla sem þurfa að vera á ferðinni með dót, er þetta stórt atriði.

Minni viðgerðakostnaður

Það er líka gaman að sjá að Kia hugsar um rekstrarhliðina. Þrískipti framstuðarinn er til dæmis hannaður þannig að hægt sé að skipta um skemmda hluta án þess að skipta um allan stuðarann.

Það hljómar kannski ekki spennandi í reynsluakstursgrein, en fyrir fyrirtæki getur slíkt skipt máli. Minni viðgerðarkostnaður og styttri biðtími er nákvæmlega það sem atvinnubílaeigendur vilja heyra.

Drægni og hleðsla virðast líka vera á þeim stað sem gerir bílinn raunhæfan í daglegri notkun. Kia gefur upp allt að 416 km hámarksdrægni með 71,2 kWh rafhlöðu, hraðhleðslu úr 10 í 80 prósent á innan við 30 mínútum. Eins og alltaf fer raunveruleg drægni eftir hraða, veðri, hleðslu, aksturslagi og notkun búnaðar. Kia PV5 er framdrifinn og mótorinn skilar 163 hestöflum.

Kia gefur upp allt að 416 km hámarksdrægni með 71,2 kWh rafhlöðu, hraðhleðslu úr 10 í 80 prósent á innan við 30 mínútum.

Það er samt augljóst að fyrir marga íslenska rekstraraðila er rafdrifinn sendibíll orðinn raunhæfur kostur. Sérstaklega í innanbæjarakstri, milli starfsstöðva, í þjónustuverkefnum, útkeyrslu og daglegu snatti. Þar sem bíllinn kemur heim eða á starfsstöð í lok dags og getur farið í hleðslu yfir nótt, verður rekstrarmódelið einfalt.

Ekki endilega fallegur

Samkvæmt upplýsingum á forpöntunarsíðu Öskju sem við skoðuðum voru Air og Earth útfærslur í boði, með verði eftir styrk á bilinu um 5,6 til 5,9 milljónir króna án VSK., án þess að fara út í endanlegan samanburð á öllum kostum og aukabúnaði.

Slík verð þarf auðvitað alltaf að staðfesta hjá umboði, enda geta styrkir, útfærslur og verðlistar breyst.

Kia PV5 Cargo er ekki fullkominn. Við hefðum viljað myndavélaspegil fyrir akstur, ekki bara góða bakkmyndavél.

Sumir munu líka vilja sjá hvernig hann stendur sig fullhlaðinn í íslensku vetrarveðri, með miðstöð í gangi og verkefnadag sem nær frá morgni til kvölds. En fyrstu kynni eru mjög sannfærandi.

Góð vinnuaðstaða

Það sem situr eftir er að PV5 Cargo er ekki bara rafbíll með boxi fyrir aftan ökumannsrýmið. Hann er alvöru vinnubíll. Rúmgóður, hljóðlátur, þægilegur, aðgengilegur og greinilega hannaður með daglega notkun í huga.

Hann gerir lítið úr hlutum sem áður voru pirrandi: hárri hleðsluhæð, þröngu aðgengi, lélegri yfirsýn, hávaða og fótavinnu í stop-and-go akstri.

Hann gerir lítið úr hlutum sem áður voru pirrandi: hárri hleðsluhæð, þröngu aðgengi, lélegri yfirsýn, hávaða og fótavinnu í stop-and-go akstri.

Fyrir fyrirtæki sem eru að hugsa um rafvæðingu flotans, eða einstaklinga sem þurfa góðan atvinnubíl í þjónustu, útkeyrslu eða iðnað, er Kia PV5 Cargo bíll sem á að vera ofarlega á lista. Hann hefur nákvæmlega það sem góður vinnubíll þarf að hafa: pláss, aðgengi, þægindi, tækni og notagildi.

Fylgir slökkviliði í útköll

Brunavarnir Suðurnesja nota Kia PV5 Cargo í sinni þjónustu. Um er að ræða útkallsbíl sem fylgir slökkviliði í útköll. Bíllinn er fullur af búnaði sem styður við vinnu slökkviliðs. Að sögn Guðmundar Þórissonar tækjastjóra, hefur bíllinn komið vel út hjá Brunavörnum Suðurnesja. Hann er þægilegur að ganga um og gott að aka, snarpur, lipur og nákvæmur. Það er það sem maður vill sjá í bíl í svona verkefni.

Og það besta er kannski þetta: þegar maður stendur fyrir aftan hann með hurðirnar opnar, horfir inn í þetta stóra, flata og notadrjúga rými, þá hugsar maður ekki fyrst um kílóvattstundir eða skjástærðir. Maður hugsar bara: já, þetta myndi virka. Þetta er bíll sem gæti gert vinnudaginn betri.

Myndband

Helstu tölur:

Verð: 5.6-5.9 milljónir króna án VSK.

Heimahleðsla: 11 kWh/klst.

Hraðhleðsla: 150 kWh/klst.

Hestöfl: 163

Drægni: 416 skv. WLTP staðli.

Drif: Framdrif

Lágmarkshleðsluhæð: 419 mm

Farmrými: 4.2 rúmmetrar

L/B/H: 4.695/1.895/1.899 mm

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar