Frumsýnum JAC,  nýtt og spennandi rafbílamerki

162
DEILINGAR
1.5k
SMELLIR

Frumsýnum JAC,  nýtt og spennandi rafbílamerki á laugardaginn í Suzuki, Skeifunni 17 frá kl. 12-16.

Til sýnis verða fjórhjóladrifinn pallbíll og fólksbíll.

JAC T9 EV fjórhjóladrifinn rafmagnaður pallbíll sem hannaður er til að uppfylla allar notkunarþarfir,  hann getur sinnt hlutverki sterkbyggðs atvinnubíls og þægilegs fjölskyldubíls.T9 EV sameinar afl, drægni og nútímatækni í einum traustum pakka.

Hann kemur með 88,02 kWh rafhlöðu, 300 hestöfl og 330 / 435 km drægni. Staðalbúnaður Apple CarPlay & Android Auto snjallsímatenging, fjarlægðarskynjarar að framan og aftan, rafdrifið sólþak, blindsvæðisvörn (BSD), vehicle to load (V2L), 360° myndavélakerfi, 10,4” snertiskjár, álfelgur, forhitun rafhlöðu við lágt hitastig. Verð 8.290.000 kr* verð miðað við 500.000 kr styrk frá Orkusjóði*

Einnig verður frumsýndur JAC E30X fólksbíl, nettur og hagkvæmur rafbíll með rúmgóðu innanrými. Bíllinn sameinar gott verð, góða drægni og þægindi í daglegri notkun – kjörinn kostur fyrir þá sem vilja hagkvæma og praktíska samgöngulausn. E30X kemur með 51,5 kWh rafhlöðu, 136 hestöfl og 374 / 524  km drægni. Staðalbúnaður Apple CarPlay & Android Auto snjallsímatenging, 8 loftpúðar, 12,8″ LED snertiskjár, 360° myndavélakerfi, panorama glerþak, 4 ISOFIX festingar, vegan leðuráklæði, kæling í framsætum, geymsluhólf með kæli- og hitunaraðgerð í armhvílu. Verð 3.890.000 kr* verð miðað við 500.000 kr styrk frá Orkusjóði*. Aðeins 150.000 kr útborgun ásamt útborgun frá Orkusjóði (Lykillán til 7 ára / 65.710 kr á mán).

Reynsluakstur, veglegur lukkupottur, blaðrarinn og fleira skemmtilegt, hlökkum til að sjá ykkur.  

  • JAC var stofnað árið 1964 og hefur fyrirtækið þróast úr því að framleiða eingöngu vörubíla yfir í að verða öflugt tæknifyrirtæki sem hanna og þróa fólksbíla, vélar og rafdrif.
  • Frumkvöðull í rafbílum, JAC var stofnað árið 1964 og framleiðir bæði fólksbíla og atvinnubíla. 
  • JAC er einn stærsti framleiðandi rafbíla í heiminum og selur yfir 1,4 milljónir ökutækja á ári, bæði rafknúin og eldsneytisknúin. 
  • Fyrirtækið hefur yfir 33.000 starfsmenn og veltu sem nemur meira en 8 milljörðum bandaríkjadala.
  • JAC hefur einnig samstarf við fyrirtæki í 130 löndum og svæðum víðs vegar um heiminn, þar á meðal í Suður-Ameríku, Evrópu, Afríku, Miðausturlöndum og Suðaustur-Asíu.

Fréttatilkynning: Suzuki, Skeifunni 17, 108 Reykjavík, s. 568-5100, soludeild@suzuki.is og www.jac.is   

Svipaðar greinar