ÍSBAND býður til glæsilegrar bílasýningar í sýningarsal sínum að Þverholti 6 í Mosfellsbæ laugardaginn 31. október kl. 12-16. Þar verður ný RAM 1500 pallbílalína frumsýnd, kynnt verður forsala á Jeep Wrangler Rubicon X og Wrangler Moab 392 og Leapmotor-fjölskyldan verður til sýnis.
RAM 1500
Ný RAM 1500 lína verður frumsýnd á sýningunni. Nútímaleg hönnun að utan sem innan gefur bílunum djarft og kraftmikið yfirbragð. Öflugar sex strokka bensínvélar skila allt að 540 hestöflum og eru tengdar átta þrepa sjálfskiptingu. Tvær útfærslur verða til sýnis: RAM 1500 Rebel og RAM 1500 RHO.
RAM Rebel
RAM 1500 Rebel sameinar torfærugetu og þægindi. 4Link-loftpúðafjöðrun stuðlar að mjúkum akstri við fjölbreyttar aðstæður. Rebel skilar 420 hestöflum og 635 Nm togi. Meðal búnaðar eru E-locker 100% driflæsing, Sport Performance-vélarhlíf, 33 tommu jeppadekk, breiðari brettakantar og RAM Box-geymsluhólf.
RAM 1500 RHO
RAM 1500 RHO er sannkallað orkubúnt, hannaður til að takast á við krefjandi og illfæra vegslóða. RHO skilar 540 hestöflum og 706 Nm togi. Meðal búnaðar eru E-locker 100% driflæsing, Bilstein Black Hawk e2 demparakerfi og launch control. Bíllinn kemur upphækkaður á 35 tommu jeppadekkjum og með útvíðum brettum.
Forsala á Jeep Wrangler Rubicon X og Jeep Wranger Moab 392 hafin
Jeep Wrangler er nú fáanlegur í forsölu í tveimur spennandi og kraftmiklum útfærslum: Rubicon X og Moab 392.
Jeep Wrangler Rubicon X
Jeep Wrangler Rubicon X kemur nú á 35″ 17×8 felgum og háir brettakantarnir gera það að verkum að 37″ dekk passa líka beint undir. Öflug V6 3,6 lítra bensínvél, 100% driflæsingar að framan og að aftan, dráttarbeisli með meiri dráttargetu (800 kg meira en 4xe) eru á meðal staðalbúnaðar.
Jeep Wrangler Moab
Jeep Wrangler Moab er sannkallað tryllitæki. Hann er búinn 470 hestafla V8 SRT HEMI-bensínvél og átta þrepa sjálfskiptingu með skiptiflipum í stýri. Hröðunin úr kyrrstöðu í 100 km/klst. tekur aðeins 4,5 sekúndur. Bíllinn kemur á 35 tommu dekkjum og með háum brettaköntum sem veita rými fyrir 37 tommu dekk.
Leapmotor
Leapmotor-fjölskyldan verður einnig til sýnis. Bílarnir hafa fengið einstakar móttökur hjá íslenskum bílakaupendum og sameina vandaða smíði og frábært verð.
Úrvalið spannar fjölbreyttar þarfir:
T03 – ódýrasti rafbíllinn á markaðnum.
B03X – rúmgóður og hagnýtur jepplingur.
B05 – sportlegur og sprækur hlaðbakur.
B10 – rúmgóður fjölskyldubíll.
C10 – flaggskip fjölskyldunnar, kraftmikill fjórhjóladrifinn rafjeppi með ríkulegum lúxusbúnaði.
Verið velkomin!
Sýningin fer fram í sýningarsal ÍSBAND að Þverholti 6 í Mosfellsbæ laugardaginn 31. október kl. 12–16.




