Škoda Elroq mest seldi bíllinn á Íslandi í október

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Škoda Elroq var mest seldi nýi bíllinn á Íslandi í október, með alls 50 nýskráða bíla. Þetta er í fyrsta sinn síðan í júní 2018 sem Škoda á mest selda einstaka bíl mánaðarins á Íslandi og markar því mikilvæg tímamót fyrir vörumerkið á íslenskum markaði. Mjög mjótt var á munum á toppnum í október. Toyota BZ4X Touring fylgdi fast á eftir með 46 nýskráða bíla og BYD Sealion 7 var í þriðja sæti með 45 bíla. Aðeins fimm nýskráningar skildu því að fyrsta og þriðja sætið.

Þrír mest seldu nýju bílarnir í október voru:

  1. Škoda Elroq – 50 bílar
  2. Toyota BZ4X Touring – 46 bílar
  3. BYD Sealion 7 – 45 bílar

Langstærsti sölumánuður ársins til einstaklinga Október var stór mánuður á íslenskum bílamarkaði og langstærsti sölumánuður ársins til einstaklinga, en alls voru 863 nýir bílar seldir til einstaklinga í mánuðinum.

Mánuðurinn var jafnframt stór á rafbílamarkaði, en breytingar á Orkustyrk vegna kaupa á rafbílum tóku gildi 1. nóvember. Hámarksverð þeirra fólksbíla sem geta hlotið styrk lækkaði úr 10 milljónum króna í 8 milljónir króna og styrkfjárhæðin lækkaði úr 500.000 krónum í 400.000 krónur.

Október var því síðasti mánuðurinn þar sem kaupendur gátu nýtt fyrri styrkupphæð og verðmörk. Rafbílar voru jafnframt í öllum þremur efstu sætunum yfir mest seldu nýju bílana í mánuðinum.

Škoda í mikilli sókn Árangur Elroq er mikilvægur áfangi fyrir Škoda á Íslandi. Þetta er í fyrsta sinn í rúm átta ár sem Škoda á mest selda einstaka bíl mánaðarins, en síðast náðist sá árangur þegar Škoda Octavia var mest selda einstaka gerðin í júní 2018. Árangurinn endurspeglar sterkar viðtökur Elroq og þá miklu sókn sem Škoda hefur verið í að undanförnu. Mikill áhugi hefur einnig verið á nýju flaggskipi vörumerkisins, Škoda PEAQ, sem er væntanlegur til afhendingar hér á landi í desember.

„Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá Elroq ná toppsætinu í jafn sterkum mánuði fyrir rafbílamarkaðinn. Elroq er kjörinn fyrir íslenskar aðstæður þar sem hann er fáanlegur fjórhjóladrifinn, með mikla veghæð, á frábæru verði og því kemur þessi góði árangur ekki á óvart. Þetta er í fyrsta sinn síðan í júní 2018 sem Škoda á mest selda einstaka bíl mánaðarins á Íslandi og sýnir vel þann meðbyr sem vörumerkið nýtur um þessar mundir.

Gott gengi Elroq einskorðast heldur ekki við Ísland. Bíllinn hefur notið mikilla vinsælda víða í Evrópu. Við finnum líka fyrir miklum áhuga á næstu nýjungum frá Škoda, ekki síst nýja flaggskipinu PEAQ sem er væntanlegt til afhendingar í desember,“ segir Jón Kristófer Stefán Jónsson, vörumerkjastjóri Škoda.

Svipaðar greinar