Þrjú ný merki eru að bætast í Vatt á nýju ári!

138
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

OMODA, EXLANTIX og JAECOO bætast í úrval Vatt í byrjun árs 2027. Stefnt er að frumsýningu merkjanna í janúar eða febrúar í Skeifunni 17.

Spennandi tímar eru framundan hjá Vatt þegar þrjú ný bílamerki, OMODA, EXLANTIX og JAECOO, bætast í hópinn á nýju ári. Með komu þeirra stækkar úrval fyrirtækisins enn frekar, en Vatt selur nú þegar bíla frá BYD, stærsta rafbílamerki heims ásamt MAXUS sendibílum.

Að baki nýju merkjunum stendur öflugur alþjóðlegur bílaframleiðandi, Chery sem er með nærri 30 ára sögu. OMODA og JAECOO tilheyra Chery-samstæðunni og EXLANTIX á rætur sínar í EXEED, úrvalsmerki hennar. Chery var stofnað árið 1997 og seldi um 2,8 milljónir bíla á heimsvísu árið 2025. Framleiðsla samstæðunnar spannar rafbíla, tengiltvinnbíla og bensínbíla.

Koma merkjanna þriggja markar nýjan kafla í starfsemi Vatt og færir íslenskum bílkaupendum enn fleiri valkosti. Undirbúningur er hafinn og stefnt er að því að frumsýna bílana í janúar eða febrúar 2027 hjá Vatt í Skeifunni 17, 108 Reykjavík.

Nánari upplýsingar um bílgerðir og dagsetningu frumsýningar verða kynntar þegar nær dregur.

Svipaðar greinar