Ferðasýning Heklu um helgina

141
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

Ferðasýning Heklu verður haldin með pompi og prakt, laugardaginn 14. mars frá kl 12 – 16 á Laugavegi 174. Við kynnum spennandi úrval bíla, allt frá breyttum fjallajeppum til langdrægra rafbíla. Boðið verður upp á ís frá Valdís og rjúkandi kaffi frá Kaffitári. 

Stjörnur sýningarinnar verða Audi Q6 e-tron og 37” breyttur Volkswagen Amarok. Við kynnum nýtt og betra verð og enn meiri drægni á Audi Q6. Hann fangar athyglina hvar sem hann kemur og dregur allt að 640 km á rafmagni (samkvæmt WLTP). 

Snillingarnir í Arctir Trucks breyttu Volkswagen Amarok sýningarbílnum okkar fyrir 37” dekk. Alvöru fjallajeppi sem er eins og hann sé sérhannaður fyrir íslenskar aðstæður. 

Sýningarsalir okkar verða svo fullir af öðrum áhugaverðum bílum frá Škoda, Volkswagen, Mitsubishi, Audi og GWM. Verið velkomin á ferðasýningu Heklu á laugardaginn. 

Svipaðar greinar