Tesla Y er fljótur, flottur og fullkominn
Tesla Model Y Performance er kominn til landsins. Við vorum svo heppin hjá Bílabloggi að vera boðið að taka fyrsta bílinn sem lenti hjá þeim í Tesla til reynsluaksturs en hann er einn af þeim fyrstu sem runnu út úr splunkunýrri Tesla verksmiðju í Berlín í Þýskalandi.

Hraðbrautarbíll
Við hófum aksturinn með bíltúr suður með sjó. Okkur langaði að vita hvernig bíllinn reyndist á einu sæmilegu „hraðbrautinni“ á Íslandi. Og jú, hann sannaði sig heldur betur.

Við náttúrulega héldum löglegum hraða eins og vera ber en Teslan lá eins og sleggja á veginum í sportstillingunni.

Fjöðrunin er að sjálfsögðu pínu stinn enda er þetta meiri sportbíll en Long Range útgáfan sem hefur verið í sölu hér frá í fyrra.

Kraftar í kögglum
Tesla gefur ekki upp hvað bíllinn er mörg hestöfl en það eru reyndar einhverjir búnir að reikna þau út. Ef miðað er við þá útreikninga erum við að tala um 462 hestöfl, 639 Nm í tog og 250 kílómetra hámarkshraða.


Það er ansi vel í lagt á bíl sem hugsaður er sem fjölskyldu/sport/ferða bíll. Rafhlaða bílsins er býður upp á 75 nothæfar kWst. og kemur bílnum um 514 kílómetra við bestu aðstæður skv. WLTP staðlinum.

Eftir akstur til Keflavíkur og til baka og töluverðan bæjarakstur inn á milli var rafhlaðan hálf. Þá skal tekið tillit til þess að við vorum að sjálfsögðu ekki að spara orkuna, tókum gjarnan snöggt af stað og slógum svo af.


Ég heyrði í leigubílstjóra um daginn sem ekur Long Range útgáfu bílsins og hann segist leikandi fara þrjár ferðir fram og til baka til Keflavíkur. Tekið skal fram að útihiti hefur talsvert mikil áhrif á drægni bílsins.
Eins og að drekka vatn
Ef að einhverjir hafa velt því fyrir sér hvort það sé eitthvað flókið eða truflandi að það sé bara eitt stykki skjár í bílnum en engir takkar – þá er svarið: alls ekki. Maður kemst furðufljótt upp á lag með það að hafa skjáinn bara til viðmiðunar til dæmis hvað hraða og umferð varðar en þær upplýsingar má sjá á skjánum meðan þú ert að aka. Ef þér er kalt eða heitt getur þú einfaldlega notað raddskipanir til að stilla hitastigið.



Við mælum með því að horfa á myndbandsbloggið með þessari grein. Þar förum við vel yfir virknina á skjánum og stillingar.
Grunnstillingar eru eitthvað sem við eigum bara við þegar bíllinn er kyrrstæður. Þá erum við að tala um virkni á þurrkum, ljósum og öðrum þáttum sem við viljum hafa eins fyrir okkur sem ökumenn.
Fullkomið app
Með appinu getur þú stýrt aðgengi að Teslunni þinni, þú getur stillt „skynbragð“ bílsins þannig að hann taki upp mannaferðir ef einhver sem ekki á að vera á ferli er á vappi í kringum bílinn.


Þú getur stillt hita/kælingu með appinu og aðgangi að bílnum. Þú getur síðan stillt bílinn þannig að hann uppfylli þínar þarfir varðandi til dæmis sætisstöðu, hitastig og lýsingu þegar þú ert að nota hann.
Ef þú átt maka – getur hann stillt bílinn þannig að hann uppfylli hans þarfir þegar nota á bílinn.

Hugsað fyrir öllu
Tesla Y Performance er ansi hljóðlátur bíll. Þar kemur sterkt inn að hann er með tvöfalt gler bæði að framan og aftan. Þú heyrir ekki einu sinni neitt hljóð þegar þú halar rúðunni upp eða niður.

Gagnrýnendur hafa beinlínis haft fyrir því að finna eitthvað að Tesla bara til þess að finna eitthvað að. Við prófuðum til dæmis að taka á miðjustokknum, hann var pikkfastur, við prófuðum að djöflast í sætunum, þau héldu mjög vel við í beygjum, við skoðuðum samsetninguna og bil á milli boddýhluta, þau voru í toppstandi enda nýr Tesla Y framleiddur í splunkunýrri verksmiðju Tesla í Berlín í Þýskalandi.
Sífelld vöruþróun
Það var einnig einróma álit gagnrýnenda að samsetning Tesla hefði snarbatnað við opnun einnar fullkomnustu bílaverksmiðju í heimi sem Tesla rekur í Shanghaí. Enda hefur Tesla, sem og margir aðrir bílaframleiðendur, ekki haft undan við að anna eftirspurn.

Pláss og aftur pláss
Það er flennipláss í aftursætum, gott inn- og útstig, gott höfuðpláss og skottplássið er náttla bara í einu orði sagt fáránlega gott. Það eina sem við tókum eftir að seturnar í aftursætunum voru kannski fullstuttar fyrir stóra menn eins og okkur Pétur enda erum við með langa skanka báðir tveir.

Annað atriði, smáatriði þó er að ekki er hægt að stilla „orkuendurheimtina“ eða regenerative charging á þessum bíl.
Sumum finnst slík „hemlun“ truflandi en þetta er atriði sem venst á fyrstu vikunni við akstur á Teslu. Endurheimt orku er svipuð tilfinning eins og þú sért að hjóla með dýnamó á reiðhjóli.
Öruggur á alla vegu
Tesla Y Performance er í senn fjölskyldu-, sport-, og ferðabíll sem tikkar í boxin hjá flestum þeim sem vilja eiga hagnýtan og flottan bíl. Hann hentar í skreppið og skutlið ekki síður en stóra og góða útilegu með fellihýsið aftan í.

Við mælum samt með að þú akir ekki á möl á 21 tommu Überturbine felgunum.
Tesla er búinn öflugum akstursaðstoðarkerfum. Hann hefur fengið toppeinkunnir í árekstraprófunum og stóðst til dæmis „moose“ prófið [elgsprófið] með glæsibrag.
Það þýðir að Teslan er stöðug á vegi þurfi að beygja snöggt á talsverðum hraða.

Helstu tölur:
Verð frá 9.274.364 kr. skv. upplýsingum á vef Tesla 23.5.2022
Rafhlaða: 75 kWh.
Dráttargeta: 1.600 kg.
Hæð undir lægsta punkt: 14 sm.
Drægni: 514 km.
0-100 km á klst.: 3,7 sek.
Farangursgeymsla: 2.158 lítrar að hámarki.
CO2: 0 g/km.
Þyngd: 1.995 kg.
L/B/H: 4750/1920/1623
Myndataka og myndvinnsla: Dawid Gali?ski.
Klipping myndbands: Dagur Jóhannsson.