JAC T9 EV er pallbíll sem kemur manni veruleg á óvart. Hér er á ferðinni hefðbundinn, fullvaxinn vinnubíll sem sem gengur fyrir rafmagni – og það er kannski einmitt það sem gerir hann svona áhugaverðan. Hann byggir á klassískum pallbílagrunni með tvöfaldri A-arma fjöðrun að framan og heilli hásingu með blaðfjöðrum að aftan, sem þýðir að undirvagninn er hannaður fyrir álag, ekki bara þægindi.

Nýr JAC T9 EV lítur svo sannarlega vel út af pallbíl að vera.
Ágæt stærð á rafhlöðu
Undir gólfinu er 88 kWh rafhlaða frá CATL byggð upp með lithium iron phosphate tækni, sem er þekkt fyrir stöðugleika og endingu. Kerfið vinnur á um 328 volta spennu og fellur því í 400 volta flokkinn, sem er mikilvægt að hafa í huga þegar kemur að hleðslu.
Þetta er ekki 800 volta háhraðakerfi eins og í dýrustu rafbílunum, heldur traust og reynd lausn sem leggur áherslu á áreiðanleika.

Pallurinn er vel frágenginn en hann er í styttri kantinum.
Fjórhjóladrif
Aflrásin samanstendur af tveimur rafmótorum, einum á hvorum öxli, sem skila vel virkandi fjórhjóladrifi. Heildaraflið er um 300 hestöfl og togið rúmlega 500 Nm, sem dugar vel í bíl af þessari stærð.
Hröðun upp í 100 km/klst tekur um 8,5 sekúndur, sem segir kannski ekki alla söguna – en í raunverulegum akstri virkar bíllinn mun sprækari, einfaldlega vegna þess að rafmótorarnir skila aflinu strax.
Svo man ég nú frá í gamla daga að Honda Civic Sport var 8.4 sek frá 0-100 km/klst. og menn héldu varla vatni yfir slíkri hröðun á 1500 rúmsentrimetra vél.

JAC T9 EV reyndist ágætlega á stuttum malarkafla þar sem við reyndum hann. Maður finnur lítið fyrir afturhlutanum þó svo að um blaðfjöðrun sé að ræða – enda bíllinn búinn þungri rafhlöðu sem gerir hann enn stöðugri.
Góð fjöðrun
Það sem kemur mest á óvart er þó hversu þægilegur hann er í akstri. Þrátt fyrir að vera stór og vera hugsaður sem vinnuþjarkur er hann þéttur og tiltölulega lipur í akstri, með góða fjöðrun sem gleypir ójöfnur betur en margir myndu búast við af pallbíl með blaðfjöðrun.
Aksturinn er yfirvegaður mjúkur og hljóðlátur og krafturinn alltaf til staðar þegar þarf.
Það er mjög auðvelt að venjast honum í daglegri keyrslu, hvort sem er í bænum eða utan hans. Við ókum bílnum í kringum Hafravatn og reyndum að finna malarvegspotta og þar virkaði hann alveg jafn skemmtilegur.

JACT T9 EV er án efa bíll sem hentar mörgum.
Drægnin er gefin upp sem 330 km samkvæmt WLTP staðli, en einnig eru til aðrar mælingar, 400 km samkvæmt CLTC og 371 km samkvæmt eldri NEDC viðmiðum.









Í íslenskum aðstæðum er raunhæft að miða við um 260 til 300 km í blandaðri notkun, sem er eðlilegt miðað við stærð, þyngd og fjórhjóladrif. Þetta er ekki bíll sem er hannaður tilað slá drægnimet, heldur til að skila stöðugri og fyrirsjáanlegri notkun.

Pallurinn er húðaður með polyurethan efni sem virkar slitsterkt.
Hleðslan er í takt við þetta. Bíllinn notar CCS2 tengi og tekur hraðhleðsla frá 15 upp í 80 prósent um 45 mínútur. Ef miðað er við 10–80% er tíminn svipaður, rétt innan við klukkutíma.
Heimahleðsla frá 15 upp í 100% tekur um 8,5 klukkustundir, sem passar vel fyrir næturhleðslu.
Þetta eru ekki met í hleðsluhraða, en þetta er einfaldlega það sem má búast við af 400 volta vinnubíl – og í raun fullkomlega nægjanlegt í daglegri notkun.

Hleðslugetan er tæpt tonn.
Veglegur bíll
Stærðin undirstrikar að hér er ekki verið að gera málamiðlanir. Bíllinn er rúmir 5,3 metrar á lengd, með 3,1 metra hjólhaf, og burðargetan er 910 kíló á meðan dráttargetan nær 2 tonnum.
Pallurinn er húðaður með polyúretan efni og vel útbúinn, sem sýnir að hann er hugsaður til notkunar en ekki bara útlits. Þetta er einfaldlega vinnubíll sem getur sinnt sínu hlutverki. Ef grant er skoðað eru vinnubrögð við framleiðslu og samsetningu í góðum málum hvarvetna.

Skemmtileg stigbretti gefa bílnum svip.
JAC pallbíllinn er vel búinn öryggiskerfum s.s. hliðarloftpúðum, gardínuloftpúðum, blindsvæðavörn, viðvörun fyrir umferð að aftan, hurðaopnunarviðvörun og stöðugleikakerfi.
Þægindin eru líka eftirtektarverð: heimkomulýsing, lykillaust aðgengi, 360° myndavélakerfi, sjálfvirk beygjuljós, rafstýrðir hliðarspeglar, aðfellanlegir hliðarspeglar og hiti í þeim, þokuljós, regnskynjari og síðast en ekki síst varmadæla sem sparar orku.

Innréttingin er lúxus miðað við pallbíl af þessari stærðargráðu.
Lúxus innrétting í pallbíl
Innréttingin kemur svo skemmtilega á óvart. Hún er snyrtileg og vönduð, með pleðuráherslum og útliti sem fer meira í átt að fólksbíl en vinnubíl. Sætin eru rafstillanleg, plássið gott – sérstaklega í aftursætum – og aðgengið þægilegt.
Milli framsæta er stórt geymsluhólf og jafnvel kæling í geymsluboxi, sem er ekki sjálfgefið í þessum flokki.
Þráðlaus hleðsla er til staðar og snjallsímatenging einnig, þó Apple CarPlay sé bundið við kapal á meðan Android Auto er þráðlaust.

Mismunandi aksturshamur, rafdrifin handbremsa og kæling í geymsluboxi í miðjustokk.
Í akstri og daglegri notkun er heildarupplifunin því mjög jákvæð. Bíllinn er traustur, virðist vel byggður og þægilegur, með fjöðrun sem vinnur vel og innréttingu sem er langt yfir því sem margir búast við í pallbíl.
Hann er einfaldlega „þéttur, lipur og með nægan kraft“, eins og best verður lýst, og gefur tilfinningu fyrir gæðum.

Skjárinn sýnir það helsta sem til þarf og afþreyingarskjárinn er tengdur við glæsilegt 360° myndavélakerfi.
Beygir stórt
En ekkert er gallalaust með öllu. Beygjuradíusinn er 6,6 metrar, sem er töluvert og gerir bílinn klunnalegri í þröngum aðstæðum. Þetta er ekki óvenjulegt í þessum flokki, en það er eitthvað sem ökumaður finnur fyrir, sérstaklega í borgarakstri og bílastæðum.
Smáatriði eins og að Apple CarPlay sé ekki þráðlaust og að sóllúgan sé ekki fullkomlega útfærð minna líka á að hér er ekki verið að keppa í lúxusflokki – þó hann nálgist hann á köflum.

Þegar allt er lagt saman stendur þó eitt upp úr: þetta er mjög vel heppnaður rafmagnspallbíll. Hann sameinar það sem skiptir máli – burðargetu, dráttargetu, fjórhjóladrif og traustan undirvagn – við þægindi, búnað og aksturseiginleika sem gera hann að raunhæfum valkosti í daglegu lífi.
Drægnin og hleðslan eru í takt við tæknina sem hann notar, og verðið gerir hann sérstaklega áhugaverðan í samanburði við keppinauta.

Fínt pláss aftur í – og nóg af tengimöguleikum.
JAC T9 EV er því ekki bara nýr valkostur – hann er bara alveg að hitta í mark!
Myndband
Helstu tölur:
Verð: 8.290.000 kr
Hestöfl: 300
Drægni: 330 km. skv. WLTP.
Rafhlöðustærð: 88 kWh.
Eigin þyngd: 2.350 kg.
Heimahleðslugeta (AC): 11 kW.
Hraðhleðslugeta (DC): 88 kW.
Dráttargeta: 2000 kg.
Lengd/breidd/hæð: 5,33 m 1,97 m 1,92 m, burðargeta 910 kg.
Frunk (geymsla undir húddinu): 84 lítrar.







