- Við mælum með myndbandi neðst í greininni
Polestar 4 er bíll sem fangar athyglina um leið og maður sér hann. Með stílhreinni, skandinavískri hönnun og aflmiklum rafmótorum sameinar hann framtíðarhugvit og lúxus á áhrifaríkan hátt.
Þessa viðbót frá Polestar er nú hægt að skoða og reynsluaka hjá Polestar á Íslandi/Brimbog – og óhætt er að segja að hann lofi miklu fyrir þá sem vilja bæði afköst og þægindi í rafmagnaðri ferð – og standi við það.

Polestar 4 minnir helst á sportbíl af dýrari gerðinni.
Hönnun sem talar sínu máli
Polestar 4 sker sig úr með straumlínulagaðri hönnun, mjúkum línum og einfaldleika sem gefur bílnum sterka nærveru – án þess að vera yfirdrifinn.
Í innanrýminu ríkir ró og friður og þú situr vel í þægilegum sætum, hefur gott útsýni á alla vegu þrátt fyrir rúðulausan afturhlerann.
Glerþak og vandað efnisval skapa huggulegt og nútímalegt umhverfi.

Enginn afturgluggi er á Polestar 4. Þú hefur baksýnisspegil með kýrskýrri myndavél í staðinn.
Afturgluggi hefur nefnilega verið fjarlægður til að hámarka rými og hljóðvist í bílnum – lausn sem virkar vel og styður við nútímalega hönnunarstefnu Polestar.
Afl og aksturseiginleikar
Long Range Dual Motor Plus er fjórhjóladrifinn og skilar 544 hestöflum, 686 Nm í togi og búinn rafhlöðu sem tekur 100 kWh.
Polestar 4 fer úr 0 í 100 km/klst á aðeins 3,8 sekúndum, og skilar því afli sem jafnast á við hröðustu sportbíla – án nokkurar fyrirhafnar.

Polestar 4 er rúmgóður fjölskyldusportari sem fer vel með alla sem í honum ferðast.
Orkunýtni og drægni
Þrátt fyrir aflið er orkunotkun hófleg, eða 18,7–21,7 kWh á hverja 100 km, sem skilar allt að 590 km drægni samkvæmt WLTP staðli.
Það þýðir að aksturinn er einfaldlega áhyggjulaus, hvort sem ekið er í borgarumferð eða í strjálbýli.

Polestar 4 er að fara tæpa 600 kílómetra á einni hleðslu og þess má geta að Polestar bílar hefa verið að skora hátt í drægnitestum til dæmis í Noregi þar sem aðstæður eru erfiðar rafmagnsbílum yfir vetrartímann.
Losun yfir líftíma bílsins mælist aðeins 0,115 kg CO2 á hvern kílómetra, sem undirstrikar umhverfisvæn markmið Polestar.
Tæknin í fyrirrúmi
Polestar 4 er útbúinn Android Automotive stýrikerfi með innbyggðum Google-aðgangi og nýstárlegu notendaviðmóti. Ökumaður fær allt sem þarf innan seilingar, og hljóðkerfið skilar tónlist og leiðsögn af hæsta gæðaflokki.
Android kerfið gera alla samhæfingu hlægilega einfalda og þú tekur varla eftir því að þú sért búinn að tengja símann og allt sem í honum er við bílinn. Apple Carplay er þar engin undantekning.

Sætin eru frekar þunn og það fer lítið fyrir þeim – samt eru þau verulega þægileg og halda vel við fætur og bak.
Verð og valkostir
Long Range Dual Motor Plus: 12.490.000 kr.
Long Range Dual Motor Performance: 13.290.000 kr.






Verðið verður að segjast nokkuð gott miðað við samkeppnina – þetta er tæknilegur bíll með miklum búnaði í grunninn og með þjónustu Brimborgar að baki er þetta traustur kostur fyrir þá sem vilja rafbíl sem stenst bæði íslenskar aðstæður og kröfur framtíðarinnar.

Skottið er plássmikið og hægt er að lækka gólfið í því um eina hæð og auka þannig plássið. Við fjöllum ítarlega um skottpláss í myndbandinu sem er hér neðst í greininni.
Talandi um íslenskar aðstæður má nefna að systkini fjarkans, Polestar 3 náði fyrsta sæti í drægnitesti í Noregi. Þrátt fyrir að Polestar 3 hafi ekki verið meðal þeirra bíla sem höfðu lengsta opinbera drægni, þá stóð hann sig best af öllum og ók heila 531 km. við erfiðar aðstæður – kulda og ófærð.
Hann var einnig með minnstan mun frá opinberri WLTP-drægninni, sem er 561 km – einungis 5% frávik – og skar sig þannig úr hópi allra keppenda.
Polestar 4 er meira en bíll – hann er upplifun
Polestar 4 sameinar hönnun, tæknivæddan lúxus og spennandi afköst á einstakan hátt. Hann er sönnun þess að rafbílar þurfa hvorki að vera leiðinlegir né dýrir í rekstri – þeir geta verið fullkomin blanda af krafti, ró og ábyrgri framtíðarsýn.
Við mælum með myndbandi hér að neðan. Þar lýsum við fyrstu viðbrögðum í akstri og upplifun.
Polestar 4 er án efa á pari við þá flottustu á rafbílamarkaðinum í dag. Þeir sem vilja framtíðartón í hönnun, flottan og aflmikinn bíl, fullan af tækni og öryggi er Polestar 4 svarið.

Höfuð- og fótapláss er óaðfinnanlegt í aftusætum.
Þessi bíll hentar án efa mörgum – ekki síst fólki sem vill ferðast og njóta þæginda í ferðinni, barnafólk sem þarf pláss eða hjón á miðjum aldri sem stunda útivist eða skreppa vikulega í sumarbústaðinn.

Skjárinn er á pari við hefðbundinn fartölvuskjá, upplausnin er fín. Af því að stýrikerfið er frá smiðju Google getur þú talað við bílinn án þess að vera með próf í ensku frá Oxford. Kannski eigum við eftir að geta talað íslensku við Polestar á næstu árum.
Við eigum að vera gagnrýnir við prófun bíla, það er markmiðið með reynsluakstri. Það er bara vont að finna eitthvað að þessum bíl – auðvitað hafa menn misjafnar skoðaðanir en Polestar 4 tikkar bara í flest boxin ef maður er að skoða bíla af sambærilegu kalíberi.
Myndband
Helstu tölur:
Hestöfl: 544 hö.
Tog: 686 N⋅m.
Rafhlöðustærð: 200 kWh
Hröðun 0-100 km/klst: 3,8 sek.
Orkunotkun: 18,7-21,7 kWh/100 km
Dráttargeta: 2000 kg.
Hraðhleðslugeta (DC): 200 kW
Heimahleðslugeta (AC): 22 kW