- Myndband með þessari grein
Við skelltum í stuttan reynsluakstur á nýja Outlander PHEV frá Heklu. Og bíllinn kom virkilega á óvart. Dásamlegt að aka, fallegt útlit og langur biðtími eftir nýjum Mitsubishi á Íslandi á enda.

Nýjasta kynslóð Mitsubishi Outlander PHEV, árgerð 2025, er glæsilegur fulltrúi þeirra bíla sem sameina vistvænar lausnir, tækninýjungar og fjölskylduvæna hönnun.
Hér er á ferðinni fágaður tengiltvinnbíll sem nýtur sín jafnt í borgarakstri sem og á lengri ferðalögum – allt í senn öflugur, sparneytinn og einstaklega þægilegur í akstri.
Kraftmikil samvinna vélar og rafmagns
Hjarta bílsins er 2,5 lítra fjögurra strokka bensínvél sem vinnur með tveimur rafmótorum og skilar samanlagt allt að 302 hestöflum.
Togið er 255 Nm og gefur bílnum mýkt í akstri og viðbrögðum – hvort sem ekið er í borginni eða úti á þjóðvegi þar sem gott er að hafa auka afl til framúraksturs.
Vélin er hljóðlát og aksturinn einstaklega mjúkur, með léttu stýri og frábærri fjöðrun sem skilar sér eflaust vel á íslenskum vegum.

Hönnun bílsins hefur tekið stakkaskiptum frá fyrri kynslóð.
Rúmgott innanrými
Outlander PHEV státar af rúmgóðu farþegarými þar sem allir sitja vel – bæði í framsætum og aftursætum. Sætin eru þægileg og innréttingin smekkleg, með góðu fótarými og fallegri lýsingu.
Skottið er einnig til fyrirmyndar og tekur 467 lítra, en með því að fella niður aftursætin eykst rúmtakið í rúmlega 1350 lítra.
Hurðir bílsins opnast næstum í 90 gráður sem gerir inn- og útstig mjög þægilegt.

Sætisáklæði er virkilega falleg og sæti þægileg. Þú situr hátt í bílnum og hefur frábært útsýni.
Niðurelling armpúða opnar „skíðalúgu” inn í bílinn og gerir kleift að flytja lengri muni, eins og skíði eða veiðistangir, án þess að fórna öllu sætarými – skynsamleg lausn fyrir útivistarfólk.

Farangursrými er uppgefið um 467 lítrar, hægt er opna „skíðalúgu” í miðju.
Fullur af öryggsibúnaði
Nýi Outlanderinn er ríkulega búinn nýjustu tæknilausnum, bæði hvað varðar öryggi og þægindi.
Meðal þeirra má nefna:
- Skynvæddur hraðastillir
- Akreinavari og stýring
- Skynjar hjólreiðafólk
- Háupplausnar myndavélakerfi með 360° yfirsýn sem einfaldar lagningu í stæði og akstur í þröngum götum.
Allur þessi búnaður gerir aksturinn bæði afslappaðri og öruggari.












Outlander er fáanlegur í tveimur útfærslum
Instyle sameinar útlit og eiginleika sportjeppa við fágaðan borgarbíl og býður upp á sportlegra útlit, töff smáatriði og hámarksþægindi.

Tveir 12,3 tommu skjáir, skýrir og einfaldir.
Invite, sem er grunnútgáfan, kemur hins vegar á óvart með smekklegri innréttingu og vel bólstruðum sætum úr úrvalsefnum.
Stjórnborðið er einfalt og notendavænt, með snertiskjá sem bregst hratt við – þó hann nái kannski ekki þeim gæðum sem nást í mörgum öðrum bílum. En sannleikurinn er sá: maður keyrir ekki á skjánum einum saman.
Og það eru miðstöðvartakkar – þú þarft ekki að fikta blindandi út í loftið til að finna þær á skjánum.

Prýðileg geymslurými víða um bílinn.
Fyrir hvern er þessi bíll?
Outlander PHEV er sérstaklega hentugur fyrir fjölskyldufólk sem vill ferðast áhyggjulaust með nægu rými og góðri samvisku gagnvart umhverfinu.
Hann hentar jafn vel í daglegum akstri innanbæjar sem og í lengri ferðalögum þar sem bæði pláss og sparneytni skipta máli.

Stór miðjustokkur truflar ekki fótapláss fram í.
Vel heppnuð blanda af tækni og notagildi
2025 Mitsubishi Outlander PHEV er bíll sem sameinar það besta úr báðum heimum (bensín og rafmagn), þar sem notagildi, þægindi og nýjustu tæknilausnir mynda sterka heild.
Nýr Outlander býður upp á rólega og örugga akstursupplifun með ríkulegum búnaði – allt í vel hönnuðum og fjölskylduvænum pakka.

Um 20 cm. undir lægst punkt.
Ef þú leitar að alhliða, rúmgóðum og vistvænum jeppa fyrir daglegt líf og ævintýrin – þá er nýi Outlanderinn sannarlega þess virði að prófa.
Reyndar héldum við að Chademo tengikvíin (fyrir hraðhleðslu) væri á undanhaldi, það er það eina sem kom upp í hugann þegar við mátum kosti og galla bílsins í þessum stutta reynsluakstri.
Hins vegar eru talsvert margar stöðvar með Chademo tengi hér á landi vegna vinsælda Nissan Leaf í gegnum árin og ætti ekki að vera neinn stór mínus varðandi hleðslu á hraðhleðslustöðvum.
Myndband
Helstu tölur:
Verð: 8.690.000 kr. til 9.890.000 kr.
Hestöfl: 302hö.
Tog: 255 N⋅m.
Rafhlöðustærð: 22,7 kWh
Hröðun 0-100 km/klst: 7,9 sek.
Dráttargeta: 1,200 kg.
Hraðhleðslugeta (DC): 120 kW (ca. 31 mín). Chademo.
Heimahleðslugeta (AC): 3,5 kW
Myndataka og akstur: Gunnlaugur Steinar Halldórsson og Pétur R. Pétursson