Fjölbreytt  bílasýning hjá ÍSBAND

140
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

ISBAND umboðsaðili Jeep, RAM og Fiat á Íslandi, efnir til fjölbreyttrar og glæsilegrar bílasýningar  laugardaginn 15. apríl.

Fjórhjóladrifin Jeep fjölskyldan Wrangler, Compass og Rengade,  verður á svæðinu; hagkvæm, hlaðin búnaði og rafmagni og klár í sumarævintýrin. Jeep Wrangler Rubicon hentar sérlega vel til breytinga og verður hann sýndur  með 35“, 37“ og 40“ breytingum.  Hægt er að velja um nokkrar útfærslur í breytingunum.

Ram 3500 pallbílar verða sýndir í Crew Cab og Mega Cab útfærslum.  RAM hentar einnig sérlega vel til breytinga og verður sýndur með  35“, 37“ og 40“ breytingum og munu sölumenn veita allar nánari upplýsingar um breytinga útfærslurnar.  Allar Jeep og RAM breytingar eru gerðar af breytingaverkstæði ISBAND.

Einnig verða á svæðinu Fiat Doblo sendibíllinn sem nú fæst með 7 ára ábyrgð og svo síðast en ekki síst fallegasti smábíllinn, Fiat 500e LaPrima, 100% rafmagnsbíll.

Ljúffengt Lavazza kaffi verður á könnunni ásamt gosi og snakki frá Ölgerðinni.

Sýningin er í sýningarsal ÍSBAND að Þverholti 6 í Mosfellsbæ og verður opin frá kl. 12:00 – 16:00

Svipaðar greinar