Dacia Bigster – tvær hliðar á sama peningi

Tegund: Dacia Bigster

Árgerð: 2025

Orkugjafi: Bensín/rafmagn

Verð, hönnun, efnisval og akstursupplifun
Framsæti gætu haldið betur við
395
DEILINGAR
3.6k
SMELLIR

Myndband með þessari grein.

Dacia hefur með Bigster opnað nýjan kafla í þróun sinni sem bílaframleiðandi. Þar sem fyrirtækið hefur hingað til einblínt á smærri og hagkvæma bíla, er Bigster fyrsta skrefið inn í stærri jeppaflokk eða svokallaðan C flokk SUV bíla – og gerir það með athyglisverðum hætti.

Virkilega flottir bílar á toppverði.

Við fengum tvo mismunandi bíla til reynsluaksturs, sem gáfu tækifæri til að bera saman ólíkar útfærslur og meta hvort Dacia hafi náð að halda gildum sínum sem þeir eru þekktir fyrir – jafnvel með meiri tækni og stærri bíl.

Rúmlega 600 lítra farangursgeymsla.

Mismunandi upplifun

Við byrjuðum reynsluaksturinn á fjórhjóladrifinni útgáfu með beinskiptingu og mild-hybrid vélbúnaði. Um er að ræða 1.2 lítra þriggja strokka vél með 130 hestöfl og 230 Nm í togi.

Framdrif og fjórhjóladrif.

Vélin sjálf er tiltölulega lítil að rúmtaki, en hún skilar sínu örugglega vel við erfiðari aðstæður – sérstaklega þar sem mikilvægara er að nýta gott togsviðið.

Fjórhjóladrifið og beinskiptingin gera þennan bíl að hentugum kosti fyrir þá sem aka við fjölbreyttar aðstæður og þurfa bíl sem tekst á við lausamöl, brekkur og íslenskt veðurfar.

Full-hybrid, sjálfskiptur og afskaplega þægilegur í akstri.

Hin gerðin var framhjóladrifin, með sjálfskiptingu og 1.8 lítra fjögurra strokka full-hybrid vél, sem skilar 155 hestöflum og 171 Nm í togi.

Hér var upplifunin önnur – meiri mýkt, betri hljóðeinangrun og meiri áhersla á borgarakstur og hagkvæmni.

Þessi bíll hentar sérstaklega vel í þéttbýli, með stiglausri hybrid-skiptingu og blandaðan bensín og rafakstur.

Innanrými er einfalt og stílhreint en framsæti gætu haldið betur við bakhlutann.

Tæknilegir eiginleikar

Óháð drifkerfi eða vélargerð, bjóða báðir bílar upp á afar sambærilegan grunnbúnað sem staðal:

Akreinastýring og akreinavari

Umferðaskiltalesari og árekstrarvörn

Hækkanleg framsæti

10 tommu snertiskjár fyrir afþreyingu og stillingar kerfa

Takkastýrð miðstöð

Stafrænt mælaborð sem sýnir helstu upplýsingar á skýran og læsilegan hátt

Þráðlaus símhleðsla, sjálfvirk háuljós, lyklalaust aðgengi og íslenskt leiðsögukerfi

Arkamys hljóðkerfi sem gefur topphljóm þó hann sé etv. ekki fullkominn

Það kom á óvart hversu góð hljóðvist var í báðum bílum, en sérstaklega í sjálfskipta hybrid-bílnum mældist hljóðvistin við akstur í 90 km/klst rétt um 60 dB, sem er sambærilegt og við fundum í Toyota RAV4 – bílaflokki ofar í verði.

Sjálfskipti bíllinn er með nokkuð veglegum miðjustokki.

Einfaldleiki í fyrirrúmi

Þegar innréttingin er skoðuð nánar kemur í ljós hvernig Dacia heldur áfram að einfalda hluti og einbeitir sér að virkni. Efnisval er hrátt og hreint – allt hart plast, engin áferð sem líkir eftir við eða áli, og þannig halda þeir kostnaði niðri.

Þó er skipulag innanrýmis skýrt, efnisval gott og notagildi í fyrirrúmi.

Hnappar eru stórir og aðgengilegir, stillingar auðvelt að nálgast og skipulag snýr að ökumanni. Sætin eru sérlega þægileg og efnin sem klæða þau ákaflega vistvæn og örugglega auðveld í þrifum.

Stór opnanleg sóllúga er í þessum bíl.

Meiri búnaður

Við prófuðum svokallaða Extreme útfærslu af báðum bílum, sem bætir við bílinn ýmsum búnaði sem býður meiri lúxus og öryggi í akstri.

Þar ber helst að nefna Advanced Hill Descent Control, sem stýrir hraða bílsins niður brattar brekkur og minnkar þannig notkun hemla og eldsneytis.

Verðið er ánægjulegt

Með öllu ofangreindu í huga er það verðið sem gerir Dacia Bigster að virkilega áhugaverðum kosti. Grunngerðin kostar rétt tæpar sjö milljónir króna, sem setur hann í beinan samanburð við minni bíla frá keppinautunum.

Fyrir þá fjárhæð fær kaupandinn rúmgóðan jeppling með nýjustu öryggiskerfum, hybrid-vél og frábærri hljóðvist.

Niðurstaðan er afgerandi

Dacia Bigster stendur sem merkileg yfirlýsing um hvernig einfaldleiki, tækni og rými geta sameinast í hagkvæmum fjölskyldubíl.

Tvær mismunandi vélar – full-hybrid og mild-hybrid.

Hann býður upp á tvær skýrar leiðir: annars vegar duglegri og öflugri fjórhjóladrifinn bíl fyrir fjölbreyttar aðstæður – hins vegar aflmeiri, hljóðlátari og tæknivæddan framhjóladrifinn hybrid bíl fyrir borgina.

18 tommu álfelgur – hægt að fá 19 tommu undir framdrifsbílinn.

Með því að halda kostnaði í skefjum án þess að fórna tækni og öryggi, hefur Dacia tekist að skapa nýjan möguleika á markaði sem lengi hefur verið stýrt af dýrari valkostum.

Myndband

Helstu tölur:

Mild hybrid/full hybrid

Verð: 6.590.000 kr. til 7.190.000 kr.

Gírkassi: beinskiptur/sjálfskiptur

Afl mótors: 130 hö./155 hö.

Tog: 230Nm./171Nm.

Eyðsla: 6/4.6 ltr./100km

Heildarþyngd: 1.515/1.487 kg.

Dráttargeta: 750/1.500 kg./745/1.500 kg.

Lengd/breidd/hæð: 4.570/1.711/1.813 mm.

Myndband og ljósmyndir: Radek Werbrowski

Reynsluakstur: Radek Werbrowski og Pétur R. Pétursson

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar