Brimborg býður einstök kjör á Partner út maí.

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Brimborg býður einstök kjör á Partner út maí.

Brimborg mun nú í allan maí frumsýna nýjan Peugeot Partner sendibíl. Peugeot sendibílar hefa í 20 ár verið einir mest seldu sendibílar Evrópu. Hann hefur staðist kröfur fagmanna og er fyrirmynd í sínum flokki. Nýr Peugeot Partner byggir á reynslunni og er nú á nýjum undirvagni sem ættaður er frá fólksbílalínu Peugeot sem hefur heillað heimsbyggðina með framúrskarandi aksturseiginleikum og styrk. Þess má geta að Peugeot Partner vann á dögunum International Van of the Year 2019 sem segir allt um gæðin.

Peugeot Partner er fáanlegur í tveimur útfærslum. Sú fyrsta kallast Access nú og eða ríkulega útbúinni PROFESSIONAL útgáfu.

Peugeot Partner er með öflugum 100 eða 130 hestafla vélum og er fáanlegur beinskiptur eða með 8 þrepa sjálfsskiptingu. Hönnun á nýjum Peugeot Partner skilar betri, öruggari og mun þægilegri sendibíll en þú átt að venjast og er fáanlegur í tveimur lengdum L1 og L2. Rúmmál hleðsurýmisins er frá 3,3 rúmmetrum til 3,9 rúmmetra.

Nýr Peugeot Partner var hannaður til vinnu og uppfyllir kröfur nútímans. Nýr Peugeot Partner er með fyrstu sendibílum sem  bjóða uppá “Surround Back Vision” eða hliðar- og bakkmyndavél sem gerir þér kleift að fylgjast betur með umhverfinu til hliðar og á bakvið bílinn jafnvel þó bíllinn sé með gluggalausu hleðslurými. Umhverfið næst bílnum sem oft er í blindu svæði er varpað á skjá með hjálp tveggja myndavéla. Önnur í farþegaspegli og hin aftan á bílnum.

Brimborg býður einstök kjör á Partner út maí.

?

Svipaðar greinar