Tesla afhendir bíl númer 10.000 á Íslandi

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Í síðustu viku afhenti Tesla bíl númer 10.000 Íslandi, samkvæmt opinberum skráningartölum. Tesla er fyrsta bílamerkið á Íslandi til að ná því að skrá 10.000 rafbíla, en um 2,5% íbúa á Íslandi aka nú um á Tesla rafbílum.  Við viljum þakka viðskiptavinum okkar á Íslandi kærlega fyrir áhugann og traustið á rafknúnum fjölskyldubílum Tesla og stuðninginn við að byggja upp framtíðina.

Söluhæsti bíllinn á Íslandi

Yfir 7.200 af þessum 10.000 bílum eru af gerðinni Model Y, og trónir fjórhjóladrifsútgáfan þar hæst. Við finnum fyrir miklum áhuga á uppfærðri útgáfu af Model Y sem kom á markað snemma árs 2025 og var meðal annars söluhæsti bíll á Íslandi árið 2025. Að auki var Model Y söluhæsti bíll á Íslandi bæði árin 2022 og 2023.

Yfir 5 milljónir Model Y bíla hafa verið framleiddir á heimsvísu í Giga verksmiðjum Tesla, í þremur heimsálfum. Model Y  hefur hlotið lof um allan heim fyrir fjölhæfni, mikið notagildi, öryggi og skilvirkni og ekki skemmir fyrir að verðið er mjög samkeppnishæft.

Árið 2023 skrifaði Model Y söguna með því að verða fyrsti rafbíllinn til að tróna efst á heimslista yfir söluhæstu bíla, óháð öllum drifrásum og orkutegundum. Þetta er enn ein sönnun þess að rafbílar höfða til breiðs hóps og virka vel í flestum aðstæðum.

Supercharger hraðhleðslunetið

Tesla rekur í dag 143 Supercharger hraðhleðslustöðvar á Íslandi sem eru á 14 stöðum á landinu. Hraðhleðslunetið nær hringinn í kringum landið, en nýlega opnuðum við  Supercharger hraðhleðslustöð í Vestmannaeyjum.

Tesla vinnu nú að því að stækka og uppfæra Supercharger netið með V4 Supercharger hraðhleðslustöðvum. V4 hraðhleðslustöðvarnar eru búnar nýjustu hleðslutækni Tesla, með hleðsluhraða allt að 250 kW og CCS-hleðslubúnaði sem er hannaður til að auðvelda hraðhleðslu fyrir öll rafknúin ökutæki. Hraðhleðslunet Tesla er opið öllum rafknúnum ökutækjum sem styðja CCS hleðslubúnað.

(fréttatilkynning frá Tesla á Íslandi)

Svipaðar greinar