Ásgeir Long kvikmyndagerðarmaður, vélfræðingur og þúsundþjalasmiður

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Jeppaferð á Esju

Á vetrarmorgni í janúar 1965 lögðu þrettán menn af stað frá Álafossi á þremur jeppum. Einn var bandarískur Willys, annar breskur Land-Rover og sá þriðji rússneskur jeppi Ásgeirs Long. Markmiðið var ekki venjulegur sunnudagsrúntur heldur að aka upp á efsta hluta Esju um Eilífsdal og Flekkudalsháls.

Rússinn vakti athygli. Þetta var ekki bíll sem Ásgeir hafði smíðað frá grunni, heldur keyptur rússneskur blæjujeppi sem hann breytti og byggði yfir. Sérsmíðaða húsið, einkum hin breiða og óvenjulega framrúða, gerði bílinn auðþekkjanlegar og virðist hafa verið hannað jafnt með útsýni, ferðalög og fjölskyldunotkun í huga.

Gamall blæjujeppi frá Álafossi

Í viðtali við DV árið 2008 lýsti Ásgeir uppruna bílsins með eigin orðum. Hann sagðist hafa keypt gamlan „herforingjabíl“ sem hafði staðið lengi að Álafossi. Þetta hefði verið gamall blæjubíll sem hann breytti og byggði yfir.

Í inngangi DV-greinarinnar var sagt að Ásgeir hefði smíðað bílinn sjálfur, en nákvæmara er að segja að hann hafi keypt Rússajeppann og smíðað á hann nýja yfirbyggingu. Framendi, hvalbakur, grind og drifbúnaður voru því úr upprunalega bílnum, en yfirbygging fram að hvalbak var verk Ásgeirs.

Félagi í Rússajeppahópi telur Ásgeir hafa smíðað húsið 1964 eða 1965. Þar sem bíllinn var fullbúinn í Esjuferðinni 17. janúar 1965 hlýtur smíðinni að hafa verið lokið fyrir þann dag. Líklegast er að hún hafi farið fram árið 1964 eða allra fyrstu daga ársins 1965.

Hús sem var ólíkt öðrum

Framrúðan er mest áberandi sérkenni bílsins. Á ljósmyndum sést stór miðrúða og bogadregnar hliðarrúður. Áhugavert er að framrúðan hallar öfugt miðað við aðrar bifreiðar  Fyrir ofan rúðuna er lítið skyggni og þakið er lítillega bogadregið.

Stórir gluggar eru á hliðum hússins og öflug þakgrind yfir því. Myndir benda til að húsið hafi verið smíðað úr áli Húsið var ekki aðeins útlitsbreyting. Ásgeir sagði DV að fjölskyldan hefði ferðast mikið um landið á bílnum, ár eftir ár.

Hann útbjó hann þannig að fjögur gætu sofið inni og setti kojur fyrir börnin undir rjáfur. Rússinn var því í senn fjallabíll, fjölskyldubíll og lítið ferðahýsi löngu áður en slíkir bílar urðu algengir hér á landi.

Þrír jeppar upp á Esju

Samtímaheimildir staðfesta að ferðin var farin sunnudaginn 17. janúar 1965. Fálkinn segir hópinn hafa safnast saman á Álafossi klukkan 8:30 og lagt af stað um klukkustund síðar. Alþýðublaðið greindi frá afrekinu strax 19. janúar.

Ásgeir ók Rússajeppanum. Með honum voru Ásbjörn Sigurjónsson, Vignir Þórðarson, Ragnar Haraldsson og Ragnar Lárusson, höfundur Fálkagreinarinnar. Hreinn Ólafsson ók Willys-jeppanum og Níels Hauksson Land-Rovernum. Haraldur Jóhannesson úr Kjós var leiðsögumaður einnig voru með í ferð aðstoðarmenn.

Ásgeir Long.

Leiðin lá frá Eilífsdal, yfir Dælisá og upp Flekkudalsháls. Keðjur voru settar á öll hjól og jepparnir snigluðust yfir mýrar og upp sífellt brattari hlíðar. Nónbunga reyndist erfiðasti kaflinn. Þar þurfti að höggva rás í harðfennið fyrir efri hjól jeppanna og hjálpa þeim upp með um þrjátíu metra kaðli og handafli.

Alþýðublaðið sagði lagt af stað frá Eilífsdal klukkan 10:30 og komið upp klukkan 15:30. Fálkinn lýsti því að eftir um fimm klukkustundir hefði hópurinn verið kominn vestur fyrir hábungu Esju. Frostið var þá orðið þrettán stig og skafrenningur á fjallinu.

Heimildirnar eru ekki alveg sammála um fjölda manna. Fálkinn nefnir þrettán menn við brottför frá Álafossi en Alþýðublaðið fjórtán. Nokkrir ungir Kjósverjar komu gangandi á eftir leiðangrinum og hjálpuðu við Nónbungu, sem gæti skýrt mismuninn.

Ásgeir skráði ferðina sjálfur

Ásgeir var ekki aðeins ökumaður og bílasmiður. Tímaritið Fálkinn kallaði hann „landskunnan myndasmið og þjóðhagan“ og sagði hann þá verkstjóra á Reykjalundi. Hann hafði kvikmyndatökuvélina með og ætlaði að gera heimildarmynd um leiðangurinn.

Þegar jepparnir komu að fyrsta farartálmanum við Dælisá stökk Ásgeir út með kvikmyndatökuvélina. Hann kvikmyndaði einnig mennina á fjallinu þegar erfiðasta leiðin var að baki. Á leiðinni stöðvaði hann til að taka litmynd af tunglinu við Akrafjall, en gleymdi þar ljósmæli. Mælirinn fannst aftur í tunglsljósi á heimleiðinni.

Þessi smáatriði draga upp mynd af áræðnum og forvitnum manni sem vildi ekki aðeins leggja ótroðnar slóðir heldur einnig varðveita þær á filmu.

Smíði Ásgeirs varð öðrum fyrirmynd

Kjartan Magnússon hefur sagt frá því í Rússajeppahópi að faðir hans, Magnús Guðlaugsson úrsmiður, hafi í anda Ásgeirs fengið Ólaf Helga Friðjónsson til að smíða sambærilega yfirbyggingu. Hún hafi þó verið heldur breiðari. Kjartan sagði útsýnið hafa verið mjög gott en bílinn ekki beinlínis ætlaðan til hraðaksturs með kraftlitlum Austin Gipsy-mótor.

Kjartan eignaðist bílinn síðar og bar hann skráningarnúmerið G-2907. Ljósmynd af G-2907 sýnir að hann var ekki sami bíll og Rússi Ásgeirs. Húsin voru skyld að hugmynd en ólík í  gluggaskipan og heildarlögun. Frásögn Kjartans er engu að síður merkileg vísbending um að útfærsla Ásgeirs hafi vakið athygli og haft áhrif á aðrar íslenskar Rússajeppasmíðar.

Seldur norður – og húsinu hugsanlega bjargað

Ásgeir sagði árið 2008 að bíllinn hefði reynst sér afar vel. Að lokum hefði hann þó þurft að selja hann í Húnavatnssýslu og séð mikið eftir honum.

Síðar birtist ljósmynd af illa farinni jeppayfirbyggingu sem flutt var á kerru á eftir öðrum Rússajeppa. Gluggaskipan, bogadregið þak og lögun efri hlutans líkjast mjög afturhluta húss Ásgeirs. Neðri stálhlutinn er mikið tærður en efri hlutinn, sem virðist vera úr áli, stendur að mestu enn. líklega er þetta af öðrum bíl sem er afar sérstakt að það hafi verið smíðaðir tveir bílar álíka sérstæðir þó er ljóst að bíll Ásgeirs var með alfarið íslenska yfirbyggingu aftan við hvalbak.

Þúsundþjalasmiður á ótroðnum slóðum

Sagan af Rússanum fangar vel fjölhæfni Ásgeirs Long. Hann sameinaði vélfræði, málmsmíði, ljósmyndun og kvikmyndagerð í einum óvenjulegum ferðabíl. Hann byggði ekki jeppann frá grunni, en breytti einföldum rússneskum blæjubíl í rúmgóðan fjölskyldu- og fjallabíl með einni sérstæðustu framrúðu sem sést hefur á íslenskum Rússajeppa.

Síðan ók hann bílnum upp á Esju um hávetur ásamt öðrum og festi ferðina sjálfur á filmu.

Þar birtist Ásgeir líklega best: áræðinn, hugmyndaríkur og óhræddur við að fara aðrar leiðir. Ásgeir Long lést 3. ágúst 2018, 90 ára að aldri, á Hrafnistu í Hafnarfirði.

  • Faðir Ásgeirs var Valdimar Long fæddist á Seyðisfirði 9. janúar 1884 og lést í Hafnarfirði 21. ágúst 1964, áttræður að aldri. Foreldrar hans voru Sigmundur Matthíasson Long og Ingibjörg Jóhannesdóttir. Faðir hans var meðal annars gestgjafi á Seyðisfirði en fluttist síðar til Winnipeg í Kanada.
  • Long-nafnið sjálft nær enn lengra aftur. Árnastofnun rekur ættarnafnið til Richard Long (1783–1837), ensks verslunarmanns á Reyðarfirði og Eskifirði, sem var kvæntur Þórunni Þorleifsdóttur Long. Sigmundur Matthíasson Long var af þeirri ætt.
  • Valdimar Long rak verslun við Strandgötu 39 í Hafnarfirði. Í auglýsingu frá 1954 kemur fram að þar voru m.a. seldar bækur, ritföng, pappírsvörur og viðtæki, auk þess sem hann hafði umboð fyrir tryggingar og happdrætti.
  • Hann stofnsetti bókaverslun í Hafnarfirði. Kona hans, Arnfríður Einarsdóttir Long, vann lengi við verslunina með honum.
  • Árið 1927 keypti Valdimar Brekkugötu 11. Húsið var síðan lengi í eigu Long-ættarinnar. Þar hafði Ásgeir Long „Litlu vinnustofuna“ í kjallaranum, þar sem hann gerði við raftæki.
  • Valdimar var mjög virkur í félagsmálum. Hann var einn af stofnendum Málfundafélagsins Magna árið 1920 og var formaður félagsins. Magni átti síðan stóran þátt í uppbyggingu Hellisgerðis.
  • Hann var einnig á framboðslista Alþýðuflokks og kommúnista í bæjarstjórnarkosningunum í Hafnarfirði árið 1938.
  • Valdimar Long lést 21. ágúst 1964 og var jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju 28. ágúst.

Esjan klifin á Jeppum árið 1965

Myndir eru klippur úr kvikmyndina um Esjuferðina.

Svipaðar greinar