Bílasýningar í Fjarðarbyggðarhöllinni Reyðarfirði
Ég sem aðkomumaður stóð fyrir þessari sýningu og reyndist það auðsóttara en ég átti von á að fá höllina lánaða til þess.
Það var hinsvegar töluverð vinna að finna bíla og annað á sýninguna. Í flestum tilfellum þurfti ég að vera í beinu sambandi við eigendur bílana og gáfu menn vilyrði um að mæta.
Það voru kröfur um að bílarnir stæðu á plötum á hverju hjóli og plast undir bílum til að varna leka í gerfigrasið.
Byko á Reyðarfirði lögðu til allt efni og létu saga niður.
Dagurinn rann upp og bílarnir mættu á staðinn og byrjað var að stilla upp og húsið opnað og fólk byrjaði að mæta á staðinn. Það var rennsli allan daginn og í lokin var tekinn rúntur um Reyðarfjörð og endað í kaffi á Kaffi Kósý.
Ég hafði fengið smá styrk vegan sýningarinnar og greiddi ég allar veitingar með honum. Það sem var áhugaverðast var að það komu bílar bæði að norðan og úr bænum til að taka þátt sem var virkilega ánægjulegt.
Eftir þessa sýningu þá fannst mönnum koma tími til að þétta raðirnar og stofna bílaklúbb sem var svo gert.
Það er Bílaklúbbur Austurlands en ég veitti þessum klúbbi forstöðu í byrjun og svo kom annað ár og þá var farið í að setja upp aðra sýningu.
Árið 2019 fór svo önnur sýning af stað og gekk það enn betur en síðast og mættu fleiri bílar. Þetta gekk afar vel og vildu allir stefna að þessu á næsta ári en þá kom babb í bátinn og framkvæmdir voru í höllinni og einnig nýtt fólk í sveitarstjórn sem hafði ekki þann skilning sem við þurftum.
Klúbburinn er enn til og vonandi verður eitthvað skemmtilegt að gerast hjá þeim næstu árin. Til eru á annað hundrað bílar sem eru bara á Austfjörðum og Egilsstöðum og vel hægt að gera skemmtilega hluti.
Hér að neðan má sjá myndir frá sýningunum úr Fjarðarbyggðarhöllinni
































































Gísli Birgir Gíslason




