Gamla góða „rúgbrauðið“ gengur í endurnýjun lífdaga
Við höfum fjallað öðru hvoru um nýjasta rafbílinn frá VW, ID.Buzz, sem er arftaki gamla góða „rúgbrauðsins“. Alrafmagnaður bíll með sterka tilvísun í gamla tímann, en hlaðinn nýjustu tækni.
Á dögunum bauð Hekla íslenskum blaðamönnum til kynningar á þessum nýja bíl í Kaupmannahöfn og reynsluaksturs í framhaldinu.
„An Icon Reloaded“ eða „táknmynd endurvakin“ var yfirskrift kynningarinnar, og það var greinilegt að VW leggur mikið upp úr tengingunni við gamla góða rúgbrauðið, eða „Bulli“ eins og þeir kalla bílinn á þýsku, þótt bíllinn hafi þróast mikið í áranna rás.
„Rúgbrauðið“ kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1950, sem Volkswagen Type 2, með tilvísun í að þetta var annar bíll VW á eftir upphaflegu „bjöllunni“.
Bíllinn gekk síðan í gegnum mikla endurnýjun og kom alls í 6 útgáfum; síðast sem T6 árið 2015.

Rafdrif, lipurð og mikið pláss fyrir ævintýri lífsins: Nýi ID.Buzz er „rúgbrauð“ framtíðarinnar.
VW hafði komið sér fyrir í ráðstefnumiðstöð í útjaðri Kaupmannahafnar og þar fengum við mjög góða og yfirgripsmikla kynningu á bílum af hálfu sérfræðinga VW. Þar lögðu þeir áherslu á eftirfarandi atriði:
- Kynningin á ID. Buzz og ID. Buzz Cargo markar komu á fyrsta framboði alrafmagnaðs fjölnotabíls og sendibíls í Evrópu
- Pláss til að njóta: D. Buzz býður upp á pláss fyrir fimm manns og pláss fyrir allan farangur þeirra fyrir ferðalög, íþróttir og daglegt líf
- Pláss til að vinna: Nýi ID.Buzz Cargo er einn af sjálfbærustu sendibílunum – öflugur, hátæknilegur vinnubíll
- Gagnvirk ökumannsaðstoðarkerfi: Aðstoð í akstri með nýjum gagnanýtingu kvikgagna („swarm data“) er hluti af leið til sjálfvirks aksturs
- Akstur í langferð með allt að 425 km drægni án CO?, auðvelt að hlaða með „Plug & Charge“, og auðvelt að samræma með rafrænum leiðaráætlun


Koma á markað í haust og vetur
Talsmenn VW lögðu áherslu á að með komu ID.Buzz væri að hefjast nýtt tímabil hjá Volkswagen, þar sem þeir hafa þegar hafið sölu í Evrópu og verða fyrstu bílarnir afhentir eigendum þeirra í haust og vetur.
Það eru tvær útgáfur: ID. Buzz sem er „fjölnotabíll“ og ID Buzz Cargo sem sendibíll. Báðir alrafmagnaðir. Um borð er opið rými með miklu plássi fyrir líf, vinnu og ferðalög.
Drægni allt að 425 km, og hægt að endurhlaða á hraðhleðslustöð á um 30 mínútum.
ID.Buzz – framúrstefnubíll fyrir fjölskyldur, virkt fólk og fyrirtæki. Jafnvel sem hugmyndabíll var hann þegar orðinn magnaður og núna er framleiðsluútgáfa af ID.Buzz er að koma á göturnar.
Reynsluakstursbílar munu vera væntanlegir til Íslands í vetrarbyrjun og fyrstu bílar gætu hugsanlega komið til afgreiðslu í loks árs, eða byrjun þess næsta.
ID.Buzz er eiginlegga með alla eiginleika „fjölnotaverkfæris“. Útlitið er byggt á einni farsælustu hönnun sem til er. Stíllinn er táknrænt skýr og álíka kraftmikill og hann er vinalegur. Yfirbyggingin státar af loftaflfræðilegri hönnun með litla loftmótsstöðu (cd 0,29), nokkuð sem kemur fram í aksturseiginleikum. Rafmótorinn er sem svarar 204 hestöfl (150 kW) og er með hámarkstog 310 Nm sem svarar samstundis. Niðurstaðan eru mjög skilvirk viðbrögð.
Vegna afturhjóladrifsins (eins og í upprunalega T1 „rúgbrauðinu“) er stýrið einnig laust við öll áhrif frá drifkerfinu. 77 kWh rafhlaðan (nettóorkugeta) sem er innbyggð djúpt í gólfi ökutækisins lækkar þyngdarpunktinn og þrátt fyrir háa yfirbyggingu minnkar þessi lági þyngdarpunktur veltuhreyfingar í lágmark.
Þyngdinni er dreift miðlægt í ökutækinu og tryggir þannig hlutlausa meðhöndlun.
Og það kemur verulega á óvart hve snúningshringurinn er lítill, aðeins 11,1 metri. Allt þetta gerir ID. Buzz að vel heppnuðum bíl fyrir innanbæjarakstur.

Góð drægni og hraðvirk hleðsla
Hleðsla sem notar allt að 170 kW. Í samsettri lotu WLTP staðalsins er akstursdrægni ID. Buzz allt að 423 km; en sem sendibíll, ID. Buzz Cargo er drægnin allt að 425 km.
Hægt er að hlaða rafhlöðuna heima, í vinnunni eða á almennum AC hleðslustöðum með 11 kW hleðslu. Á DC hraðhleðslustöðvum fer hleðslan upp í allt að 170 kW. Með því að nota það afl er hleðslu lokið á 30 mínútum (frá 5 til 80 prósent).
Það er líka mögulegt á samhæfum DC hraðhleðslustöðvum að hlaða þessar tvær gerðir með „Plug & Charge“; þeir hafa síðan samband við stöðina í gegnum hleðslutengið – virkjun og innheimta ganga sjálfkrafa, án þess að þurfa hleðslukort eða öpp.
Nýjustu aðstoðarkerfi og hugbúnaður fyrir ökumenn
Ný ökumannsaðstoðarkerfi, eins og ferðaaðstoð með gagnanýtingu og aðstoð við akreinaskipti, eru fáanleg ef óskað er. Einnig nýtt: Park Assist Plus með minnisaðgerð til að keyra sjálfvirkt inn í bílskúrinn heima, bílageymslu eða rými á fyrirtækisbílastæði.
Mörg ökumannsaðstoðarkerfi eru innifalin sem staðalbúnaður, svo sem Car2X (varar við hættum í næsta nágrenni) og Front Assist sem varar við gangandi og hjólandi umferð (Autonomous Emergency Braking).
Einn af tæknimönnum VW tók okkur í „sýnikennslu“ og lét okkur aka bílnum og leggja honum í stæði. Í framhaldinu var ekið í dágóðan hring og aftur áleiðis að „stæðinu“ – og þá lét hann bílinn aka sjálfan í „stæðið“ og það gerði hann með sóma án þess að nokkru snerti stýri, inngjöf eða bremsur!
ID. Buzz stýrieiningar fara einnig frá verksmiðjunni með nýjasta Volkswagen hugbúnaðinum. Það er ID. hugbúnaðarútgáfa 3.2.
Þegar nauðsyn krefur er það einfaldlega uppfært í þráðlaust og þar með án þess að fara á verkstæðið.
Miklir möguleikar til að ná til nýrra markhópa
Samkvæmt því sem VW segir eykur ID. Buzz gildi rafbíla með því að bæta við nýjum þætti. Eða eins og Carsten Intra, forstjóri stjórnar Volkswagen atvinnubílamerkisins segir: „Enginn annar bílaframleiðandi er með sambærilegan alrafmagnaðan fjölnotabíl og sendiferðabíl í sínu framboði. Framúrstefnutækni og hönnunarhugmynd ID. Buzz og ID. Buzz Cargo er einstakt á heimsvísu.
Módellínan hefur því mikla möguleika til að ná til nýrra nýja markhópa.
Meira um það frá Thomas Schäfer, stjórnarmanni í Volkswagen AG og yfirmanns High-Volume Brand Group: „ID. Buzz höfðar til alls kyns mismunandi viðskiptavina – fjölskyldna, fólks sem þarf mikið pláss fyrir áhugamálið sitt, auk fyrirtækjaeigenda og handverksfólks.
Fólk sem velur sér ID. Buzz verða alveg jafn mikið þeir sem eru í jeppa eða sendibílaheiminn og „Bulli“ aðdáendur sem vilja fara í rafmagn. Þessi gerð er því einstaklega mikilvæg fyrir Volkswagen og Volkswagen atvinnubíla.“

Langt hjólahaf
Með 4.712 mm heildarlengd eru báðar útgáfur af ID. Buzz módel af sömu lengd. Hjólhafið er líka langt, 2.989 mm. Bilið á milli öxla er nýtt sem best.
ID. Buzz og ID. Buzz Cargo eru á milli 1.927 og 1.951 mm á hæð. Að undanskildum hliðarspeglum eru báðar gerðirnar 1.985 mm á breidd. Með 632 mm hleðsluhæð eru ID. Buzz og ID. Buzz Cargo góðir í daglegri umgengni.

ID. Buzz er fimm sæta
Sem fjölnotabíll er ID. Buzz rúmgóður og sniðinn að frítíma og sem og til nota fyrir fyrirtæki. Ökumaður og farþegi í framsæti sitja í stökum sætum sem eru staðalbúnaður með stillanlegum armpúðum.
Afturætið er þriggja sæta bekkur. Hann er skiptur 40:60 og hægt er að fella bakið niður. Til að skapa aukið fótapláss eða auka farangursrými er einnig hægt að færa þessa tvo hluta sætisbekksins á lengdina um 150 mm. Tvær rennihurðir eru staðalbúnaður á fjölnotabílnum. Þegar stóri afturhlerinn er opnaður kemur í ljós stórt farangursrými – með fimm manns innanborðs – 1.121 lítra af farangursrými (hlaðinn upp í efstu brún á baki annarri sætaröð). Ef önnur sætaröð er felld niður eykst plássið í farangursrýminu í 2.205 lítra.
ID. Buzz Cargo sem sendibíll
Með ID. Buzz Cargo, er verið að markaðsetja einn nútímalegasta sendibíl nokkurs staðar í heiminum, segir VW.
Hann er í boði í staðalútgáfu með þremur sætum í stýrishúsinu: ökumannssæti auk tvöföldu bekkjarsætis.
Ef þess er óskað er einnig hægt að fá eitt sæti fyrir farþega í framsæti. Á bak við sætin kemur fast skilrúm sem aðskilur farmrýmið.
Þetta skipting er valfrjálst með glugga og/eða opi þar sem hægt er að hlaða hlutum í gegnum.
Farmrýmið er 3.900 lítrar og er með pláss fyrir tvö evrubretti. ID. Buzz Cargo er með breiðum opnanlegum afturhlera og rennihurð farþegamegin.
Sendibíllinn er einnig fáanlegur með aukarennihurð ökumannsmegin og með vængjahurðum að aftan fyrir þá sem þess óska.
Smíðaðir í Þýskalandi
Nýju ID. Buzz og ID, Buzz Cargo ásamt nýjum Multivan sem kynntur var árið 2021 (kallaður T7 og fáanlegur sem tengiltvinnbíll) og T6.1 (þar á meðal sem Transporter, Caravelle og California), í þýsku verksmiðjunni í Hannover, höfuðstöðvum Volkswagen atvinnubíla.
Og þá er það reynsluaksturinn: Ótrúlega lipur í akstri
Og nú er röðin komin að reynsluakstrinum sjálfum. Með því að velja þessa staðsetningu á reynsluakstri gafst tækifæri til þess að reyna bílinn í mjög svo blönduðu umhverfi.
Jafnt í akstri á sveitavegum og til nágrannabæja Kaupmannahafnar, auk þess að spretta úr spori yfir Eyrarsundsbrúna til Svíþjóðar.

Í anda gamla rúgbrauðsins sitja ökumaður og farþegi í framsæti nálægt risastórri framrúðu með víðsýnni, sem er afleiðing af því að draga hjólin út í hvert af fjórum hornum ökutækisins, með mjög lítið yfirhang, en við höfðum það á orði félagarnir sem deildum þessum bíl í reynsluakstrinum að enginn okkar var tilbúinn að hreinsa framrúðuna að innanverðu, því það myndi kalla á talsverða „leikfimi“.
Það tók mig smástund að ná „sambandi“ við framhornin á bílnum, sem kom vel í ljós þegar ég var að troða honum inn í þröngt bílastæði við dómkirkjuna á Hróarskeldu, en þetta vandist fljótt.

Fingurlétt stýri
Eitt af því sem kom mest á óvart í þessum reynsluakstri er hve bíllinn er „léttur“ í stýri. Í raun er nóg að styðja fingri á stýrishjólið og snúa því, og ellefu metra snúningshringur er frábær á þetta löngum bíl.
En þrátt fyrir það hve stýrið er létt í snúningi þá var bíllinn mjög rásfastur á lengri leiðum, sem kom vel í ljós þegar brunað var yfir Eyrarsundsbrúna til Svíþjóðar, en lipurðin kom líka vel í ljós þegar við vorum að fikra okkur um miðbæinn í Kaupmannahöfn í áttina að Nýhöfninni sem var endapunkturinn á reynsluakstri dagsins.

Ekki nógu þægilegt miðjusæti
Eitt af því örfáa sem hægt er að finna að þessum fjölnotabíl er að mínu mati að „miðjusætið“ í aftursætinu er ekki nógu þægilegt.
Þar sem við vorum að skiptast á þrír að reynsluaka bílnum þá skiptumst við líka á að nota aftursætið, og besta útsýnið þar var að sitja í miðjunni og hafa þetta líka fína útsýni fram á veginn.
En þarna vantaði stuðning og í beygjum var svolítil „hliðarhreyfing“ til staðar, og þá hefði verið gott að vera með eitthvað til að grípa í á afturbrún framsætanna.
Þetta er eflaust miklu minna „vandamál“ ef þrír fullorðnir sitja í aftursætinu, því þá veita þeir hver öðrum stuðning.

Miklu meira en nóg afl
Líkt og í öðrum rafbílum í dag, þá er viðbragðið í ID.Buzz mikið, í raun meira en nóg. Þetta var líka hægt að prófa í akstrinum Svíþjóðarmegin við Eyrarsundið þar sem hámarksharði var 120 km/klst og það tók ekki nema örskotsstund að auka hraðann úr 60 km í 120 km (kannski aðeins meira).
Það tók líka smá stund að fá tilfinningu fyrir inngjöfinni, en það er líka bráðgaman að finna hve viðbragðið getur verið snöggt.

Eins og sérhannaður fyrir leigubifreiðastjóra
Við vorum allir sammála um að þetta er bíll sem er eins og „sérhannaður“ fyrir leigubifreiðastjóra. Nóg pláss, ágæt sæti (að miðjusætinu frátöldu) og mikið pláss fyrir farangur. Sniðinn fyrir flutning á fólki í Leifsstöð!
Það er mjög gott aðgengi að bílnum og eins og talað var um í upphafi þá er sæti bílstjóra með stillanlegum örmum og gott aðgengið að stjórntækjum er nánast fullkomið.
Hugmynd að ferðabíl
VW hefur í áranna rás verið þekkt fyrir „ferðabíla“ byggða á þessum bílum. Þar er flottust svonefnd „California-gerð“ sem er með innréttingu og lyftanlegu þaki.
Ekki er enn komin slík útgáfa af ID.Buzz, en hún mun koma að sögn VW.
En þarna var til sýnis útgáfa af ID.Buzz með svefnplássi, sem kemur yfir niðurlagt aftursætið, og aftast er komin „innrétting“ með útdraganlegu eldhúsi og öðrum búnaði.


Kostar sitt en er vel þess virði
En hvað kostar svona bíll? Að því að fram kom hjá talsmönnum Heklu má reikna með að bíllinn muni kosta frá kr. 8.490.000, sem er vissulega dágóð upphæð, en kaupendur fá líka fullt fyrir sína peninga. Þetta er bíll sem er rúmgóður, með svo dæmi sé tekið rafdrifnar hliðarhurðir, og aftuhurð, sem lokast með einni fingursnertingu, innréttingar eru að mestu leyti úr umhverfisvænum efnum.

?
ID.Buzz – nokkrar tölur
Rafmótor: Samstilltur mótor með varanlegum seglum tengdur við afturás
Hámarksafl: 150 kW / 204 PS
Hámarks tog :310 Nm
Gírkassi 1 gíra gírkassi að aftan
Driföxull: Afturás
Hámarkshraði: 145 km/klst, 0 – 100 km/klst: 10,2 sekúndur
Orkugeta (nettó / brúttó) 77 kWh / 82 kWh
Hámark hleðsluafl (AC/DC) 11 kW / 170 kW
Hleðslutími frá 0% til 100% SOC (fyrir AC hleðslu með 11 kW): 7:30 klst
Hleðslutími frá 5 % til 80 % SOC (fyrir DC hleðslu sem notar 170 kW): 0:30 klst.
Orkunotkun (WLTP) 21,7 til 20,5 kWh / 100 km
Drægni (WLTP) 402 til 423 km
Lengd 4.712 mm
Breidd án spegla 1.985 mm
Breidd með speglum 2.212 mm
Hæð (eftir útgáfu): 1.927 til 1.951 mm
Hjólhaf: 2.989 mm
Sporbreidd, framan / aftan: 1.673 mm / 1.670 mm
Hæð hleðslubrún: 632 mm
Hliðarennihurðir (inngangsbreidd x hæð) 757 x 1.162 mm
Afturhleri (breidd x hæð) 1.275 x 1.096 mm
Dragstuðull cd 0,285
Hleðslurými 1.121 – 2.205 lítrar 3.900 lítrar
Hleðslurými breidd milli hjólaskála 1.204 mm 1.230 mm
Hleðslurýmishæð 1.180 mm 1.279 mm
Lengd hleðslurýmis með annarri sætaröð felld niður 2.232 mm —
Eigin þyngd 2.471 kg
Leyfileg heildarþyngd 3.000 kg
Hámarksburðarhleðsla 529 kg
Þakburður 100 kg
Hámarksdráttargeta bremsað í 12% halla: 1.000 kg
Framöxull: MacPherson
Afturöxull: Fjölliða fjöðrun
Beygjuhringur 11,09 metrar

Ljósmyndir: JReykdal og RH Heklu