Audi endurvekur A2-nafnið með rafmagnsbíl sem hefur mikla drægni

137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

  • Audi hefur sett á markað A2 E-tron, nettan rafbíl, í Þýskalandi á 38.200 evrur, en bíllinn býður upp á allt að 646 km drægni með stærsta rafhlöðupakkanum (84 kWh).
  • Verðmiðinn á A2 er meira en 8.700 evrum lægri en upphafsverð Mercedes-Benz CLA (46.949 evrur), sem gerir hann að hagstæðari keppinaut í flokki nettari lúxusrafbíla.
  • Audi hefur ekki gefið upp verð fyrir öflugustu útgáfuna, sem er með fjórhjóladrifi, 240 kW afli og 630 km drægni.

Audi hefur sett á markað A2 E-tron, nettan rafbíl, í Þýskalandi á 38.200 evrur (um 5,4 millj ISK) og með allt að 646 km drægni. Með þessu skipar bíllinn sér í sess sem hagstæðari keppinautur við Mercedes-Benz CLA.

Straumlínulagað og egglaga útlit A2 E-tron minnir á upprunalega A2-bílinn frá 1999 – einrýmisbíl sem var hannaður með sérstakri áherslu á orkunýtni og náði að halda díselnotkun í þremur lítrum á hverja 100 km.

Nýi A2-bíllinn er með loftmótstöðustuðulinn 0,24 Cd, sem Audi segir gera hann að þeim bíl vörumerkisins sem býr yfir bestu loftflæðiseiginleikum.

Audi segir A2 E-tron hannaðan með áherslu á mikla orkunýtni og hreinar línur sem hámarka loftflæði. (AUDI)

Audi hannaði ytra byrði A2 E-tron með orkunýtni í huga; bíllinn er með hallandi þaklínu, stutt yfirhang að framan og aftan ásamt löngu hjólhafi, auk þess sem yfirborðið er slétt og bil á milli yfirbyggingarhluta lágmörkuð.

Virkur loftinntaksbúnaður lokast á meiri hraða til að draga úr loftmótstöðu. Sérstök „brú“ við hjólbogana, sem minnkar bil, jafnar einnig loftflæðið og dregur úr ókyrrð í loftinu.

A2 E-tron er með loftmótstöðustuðulinn 0,24 Cd, sem Audi segir gera hann að þeim bíl vörumerkisins sem býr yfir bestu loftflæðiseiginleikum. (AUDI)

A2 er ódýrasti rafbíll Audi og er verðlagður lægra en stærri jepplingurinn Q4 E-tron, sem kostar frá 47.500 evrum.

A2 og Q4 eru byggðir á MEB-plus rafbílagrunni VW-samstæðunnar (með drifi á afturhjólum), en framleiðandinn hefur lækkað framleiðslukostnað A2 með því að nota ódýrari rafhlöðutækni – svokallaða litíum-járn-fosfat-efnasamsetningu – í tveimur minnstu rafhlöðustærðunum, sem eru 52 og 61 kílóvattstund (kWh).

Stærsta rafhlaðan, sem er 84 kWh, nýtir dýrari efnasamsetningu (nikkel-mangan-kóbalt) til að skila allt að 646 km drægni, eða 630 km fyrir öflugustu útgáfuna með fjórhjóladrifi og 322 hestöflum. Audi hefur ekki gefið upp verð fyrir þessa útgáfu.

Mercedes segir CLA-fólksbílinn hafa allt að 792 km drægni, en verð á CLA byrjar mun hærra en hjá A2; 46.949 evrur fyrir ódýrustu útgáfuna með 58 kWh rafhlöðu og allt að 542 km drægni.

A2 með minnstu rafhlöðunni kemst 423 km á einni hleðslu, en 61 kWh útgáfan getur náð 515 km drægni með valfrjálsum orkunýtnipakka; samkvæmt Audi eyðir bíllinn þá aðeins 12,8 kWh af rafmagni á hverja 100 km.

Nýjung í innréttingu – innblásin af hjólaheiminum

Innanrýmið einkennist af víðfeðmum skjá sem sameinar 11,9 tommu mælaborð fyrir ökumann og 12,8 tommu boginn snertiskjá. Valfrjáls sprettiskár eða „head-up“-skjár með auknum veruleika (augmented reality) varpar upplýsingum um hraða, leiðsögn og afþreyingu beint inn í sjónsvið ökumanns.

Tvær þráðlausar símahleðslustöðvar eru staðsettar í miðjustokknum og nýta þannig pláss sem losnaði þegar gírskiptirinn var færðu upp á stýrissúluna.

Audi segist vera fyrsti lúxusbílaframleiðandinn til að bjóða upp á festingakerfi frá Fidlock – sem sameinar vélræna festingu og segulmagnaða tengingu og varð vinsælt í hjólaheiminum – sem staðalbúnað. Með allt að þremur festingum í miðjustokknum og þremur í farangursrýminu er hægt að festa til dæmis bollahaldara eða töskur fyrir hleðslusnúrur með einum smelli. Audi segir að rúmgott innra rými A2-bílsins setji nýjan staðal fyrir lúxus í þessum flokki, þökk sé vönduðum efnum og sérstakri stemningslýsingu.

Innra rými Audi A2 E-tron – Víðfeðmt skjákerfi A2 E-tron sameinar 11,9 tommu mælaborðsskjá fyrir ökumann og 12,8 tommu boginn snertiskjá. (AUDI)

Einn helsti hönnunarþátturinn er svokallað „Softwrap“ – mjúkt yfirborð klætt efni sem nær frá mælaborðinu, yfir hurðarspjöldin og aftur eftir bílnum, þar sem það teygir sig upp að gluggakörmunum.

Farangursrýmið að aftan rúmar 396 lítra, en auk þess er 13 lítra geymsluhólf undir vélarhlífinni að framan.

A2 er búinn rafstýrðum hurðarhandföngum með snjallskynjurum; Audi segir þá bregðast við minnstu snertingu, sem auðveldar opnun hurðanna. Til að læsa bílnum þarf aðeins létta snertingu á skynjarasvæðið.

A2 E-tron býður upp á 396 lítra farangursrými að aftan, auk 13 lítra geymsluhólfs undir vélarhlífinni að framan. (AUDI)

(Nick Gibbs – Automotive News Europe)

Svipaðar greinar