Laugardagur, 28. júní, 2025 @ 23:21
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Eftirminnileg bílferð á réttarball um 1930

Malín Brand Höf: Malín Brand
23/02/2022
Flokkar: Bílasagan
Lestími: 3 mín.
270 17
0
137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Fæst okkar geta nefnt fyrsta bílinn sem fyrir augu okkar bar. Það var hins vegar eflaust öllu minna mál fyrir fólk sem fætt var í kringum aldamótin 1900.

Reykjavík í kringum árið 1930. Myndin er ótengd greininni en skemmtileg engu að síður. Skjáskot/Alþingishátíðin 1930

Kona nokkur, fædd 1909 á ónefndum bæ í Rangárvallasýslu, mundi glöggt eftir fyrsta bílnum sem hún sá. Það var rétt fyrir árið 1930 sem hún leit ökutæki fyrst augum en heimildir þær er ég vísa hér í koma úr gögnum um þjóðhætti á Íslandi sem Þjóðminjasafnið varðveitir.

Stukku öll upp á mæni þegar bíllinn kom

Sagði konan ónafngreinda svo frá: „Fyrsti bíllinn sem ég man eftir var Ford pallbíll, sem Ólafur Sigurðsson í Hábæ átti.  Allir voru mjög spenntir þegar von var á bílnum, en jafnframt vorum við hálfhrædd um að hann keyrði á okkur og stukkum við því upp á kofamæni sem þar var.“

Maður getur rétt ímyndað sér eftirvæntinguna í loftinu. Loftinu sem breyttist snarlega þegar rymjandi og reykspúandi bryndreki á fjórum hjólum skoppaði eftir stíg sem til þess dags hafði einungis borið hross, mannfólk og kerrur.

„Fyrsta ökuferðin mín var hér smáspöl upp að Fjarkastokk, sem kallaður var, og kostaði ferðin 25 aura,“ sagði okkar manneskja, sem hefur greinilega ekki látið hræðsluna við bílinn tefja sig til lengri tíma uppi á kofamæni. Enda spennandi að fá að sitja í bíl í fyrsta skipti!

Eini bílstjórinn groggaður

Víkur nú sögunni að réttarballi sem haldið var í Landréttum. Sérstök ferð var farin þangað. Á bílnum auðvitað!

„Það var trépallur aftan á bílnum festur með boltum og fólkið var á þessum palli. Ferðin gekk vel í Landréttir, en þegar heim átti að fara var bílstjórinn orðinn draugfullur, en keyrði samt, enda ekki um annan bílstjóra að ræða.“

Örlítil brjóstbirta getur verið saklaus en þegar bílstjórinn fær sér hjartastyrkingu fyrir ökuferð er voðinn vís. Skjáskot/Alþingishátíðin 1930

Rysjótt heimferð

„Við leggjum af stað, en er áleiðis er komið dettur pallurinn af, en sem betur fer hafði fólkið orðið vart við að hann var að losna og það gat hoppað af pallinum áður en hann datt.“

Á þessum tíma var Ísland ein stór og mikil „ótroðin“ slóð. Ekki tengist myndin greininni á beinan hátt frekar en aðrar en landið er Ísland og árið er um það bil 1930. Skjáskot/Leo Hansen Islandsfilm

„Þannig að ekki urðu slys á fólki og svo var pallurinn settur aftur á og fólkið á sinn stað og voru 2 karlmenn settir hvor til sinnar hliðar og áttu þeir að láta vita ef bíllinn færi í holur og reyna að vega salt á pallinum á móti holunum.“

„Hægt sóttist ferðin og loks neituðu farþegarnir að dvelja lengur á pallinum svona lausum, svo það var stoppað á Ægissíðu og fengið reipi til að binda niður pallinn, og þá var loks hægt að halda áfram för heim í Þykkvabæ,“ sagði konan sem lýsti ferðinni svo ljómandi vel að hægt er að sjá þetta fyrir sér tæpri öld síðar.  

Þannig endaði ball- og bílferð sú en þetta hefur þó verið nokkur upplifun! Svo mikið er víst.

Fyrri grein

Hvernig „hljómar“ rafknúinn Ferrari?

Næsta grein

Á þetta er horft 80.000 sinnum á dag

Malín Brand

Malín Brand

Akstursíþrótta- og blaðamaður

Svipaðar greinar

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Höf: Jóhannes Reykdal
23/06/2025
0

Audi var stofnað árið 1909 en fékk ekki fjóra hringi fyrr en árið 1932. Við skoðum söguna… Ef einhver segði...

Ford Pinto, elskaður og hataður

Ford Pinto, elskaður og hataður

Höf: Pétur R. Pétursson
08/04/2025
0

Ford Pinto var svar Ford Motor Company við vaxandi samkeppni frá japönskum og evrópskum smábílum á sjöunda áratugnum. Pinto var...

1969 BMW 2000CS – klassískur kúpubakur!

Höf: Pétur R. Pétursson
09/03/2025
0

BMW 2000CS er hluti af „Neue Klasse“ línunni frá BMW og var framleiddur frá árinu 1965 til 1969. Þetta var...

Hvað er „sportjeppi“? Við höfum svarið … eða þannig

Hvað er „sportjeppi“? Við höfum svarið … eða þannig

Höf: Jóhannes Reykdal
16/02/2025
0

En umræðurnar halda áfram..... Ein umdeildasta umræða í bílaheiminum er um skilgreininguna á SUV („Sport Utility Vehicle”) sem við hér...

Næsta grein
Brimborg fær fyrstu Opel bílana í mars

Brimborg fær fyrstu Opel bílana í mars

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

28/06/2025
Bílaheimurinn

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

25/06/2025
Bílaframleiðsla

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

24/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.