Gerir við og endurnýtir bílarafhlöður
InMotion Ventures; fjárfestingarsjóður í eigu Jaguar Land Rover, hefur ákveðið að fjárfesta 1,2 milljónum Bandaríkjadala í brasilíska nýsköpunarfyrirtækinu Energy Source, sem sérhæfir sig í viðgerðum og endurvinnslu á notuðum lithium-ion rafhlöðum. Þetta er fyrsta fjárfesting InMotion Ventures í Brasilíu þar sem leitast er við að styðja við vöxt og auka afkastagetu Energy Source svo það geti aukið umfang starfsemi sinnar til hagsbóta fyrir umhverfið.
Hafa framleitt um 10 megavött af raforku
Energy Source hefur náð gríðarlegum árangri í að lengja líftíma notaðra rafhlaða, bæði með viðgerðum og endurnýtingu einstakra íhluta og hráefna úr ónýtum rafhlöðum til nýtingar í aðrar sem gengið geta í endurnýjun lífdaga. Sem dæmi má nefna hafa endurnýjaðar rafhlöður frá Energy Source framleitt samtals um 10 MW/h af raforku frá því að fyrirtækið var sett á laggir fyrir 7 árum. Fyritækið hefur á sama tíma endurunnið um 700 tonn af rafhlöðum og leitt til sparnaðar á losun 1.600 tonna af kolefnum sem annars hefðu farið út í andrúmsloftið.
Dregur úr námugrefti
Starfsemi Energy Source nýtist einkar vel frumframleiðendum á borð við rafbílaframleiðendur. Ástæðan er sá mikli ávinningur sem endurnýting og viðgerðar rafhlöður geta haft í för með sér þegar skipta þarf út gallaðri rafhlöðu í nýjum eða nýlegum rafbílum, enda getur verð nýrrar rafhlöðu numið allt að 70% af heildarvirði bílsins. Lausnir Energy Source auka líftíma rafhlaða og geta dregið úr þörf fyrir ný og ónotuð hráefni sem frumframleiðsla á nýjum rafhlöðum krefst. Þá bjóða lausnir Energy Source einnig upp á uppsetningu rafhlöðuknúinna hleðslustöðva með uppgerðum rafhlöðum, sem sparað geta orku í almenna dreifikerfinu.
InMotion Ventures
InMotion Ventures er fjárfestingarsjóður í eigu móðurfélagsins JLR og kjarnaþáttur í nýsköpunaráætlun fyrirtækisins með þátttöku í fjárfestingum í alþjóðlegum verkefnum sem haft geta jákvæð áhrif á þróun loftslagsmála, tækni og iðnaðar.