Föstudagur, 10. október, 2025 @ 10:24
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Hefurðu einhvern tímann séð svona uppgerðan Benz?

Pétur R. Pétursson Höf: Pétur R. Pétursson
13/05/2023
Flokkar: Bílasagan, Fornbílar
Lestími: 6 mín.
330 7
0
161
DEILINGAR
1.5k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Ef ekki, þá kynnistu einum núna. Þessi var endurgerður árið 2007 og ekki er annað vitað en hann sé sá eini sem hefur verið endurbyggður í anda resto-mod (þar sem nýjum og gömlum er blandað saman).

Eigandinn byrjaði ferlið á því að velja sér þokkalegan bíl til uppgerðar og hafði svo samband við Mercedes-Benz Classic í Fellbach nálægt Stuttgart.

Þar gekkst bíllinn undir breytingar sem þegar að er gáð eru talsvert stór umbreyting á kagganum. Til viðbótar við alhliða uppgerð á boddí var innréttingin sem sett var í hann úr alveg nýjum Maybach 62.

Með þessum hætti blönduðu þeir saman gamla lúkkinu og nýrri tækni. En verðum við ekki aðeins að kíkja á söguna til að átta okkur á því hvað fær menn til að framkvæma svona hluti.

Stutt saga bílsins

Stórir fólksbílar frá Mercedes-Benz hafa alltaf notið mikilla vinsælda meðal þjóðhöfðingja, kóngafólks og stjórnenda fyrirtækja. Í lok 1950 var því ákveðið að þróa nýja dæmigerða bifreið sem hentaði slíku fólki.

600 (W100) kom loksins fram á sjónvarsviðið á Frankfurt Motorshow (IAA) 1963.

Sem ný toppgerð með Benz merki á húddinu gat bíllinn sameinað alla nýjustu tækni samtímans. Undir húddinu var til dæmis V8 vél með beinni innspýtingu í fyrsta skipti í sögu Mercedes-Benz. 6.3 lítra vélin skilaði 250 hestöflum og 500 Nm af togi.

Fjögurra gíra sjálfskipting sendi síðan aflið á afturdrifið. Fólksbíllinn, sem vó um 2,5 tonn, fór úr 0-100 km/klst. á tíu sekúndum og hámarkshraði var upp á 205 km/klst. Diskabremsur voru á öllum fjórum hjólunum og að framan með tveimur pressum á hvoru hjóli og hjálpuðu þannig 600 bílnum að stöðva örugglega á skömmum tíma.

Pullmann mjög sjaldgæf útgáfa

Þægindin í 600 bílnum eru að megninu til vökvastýrð. Auk vökvastýrisins voru skottlokið og rafmagnsrúður hvorutveggja vökvadrifið. Hægt var að stilla fram- og aftursæti og stjórna upphitun og loftræstingu með rafmagni.

Auk minni fólksbíls með 3,2 metra hjólhaf bauð Mercedes-Benz einnig upp á Pullman útgáfuna sem var 700 millimetrum lengri. Hún var fáanleg annað hvort með föstu og lausu þaki yfir aftursætum, kallað Landaulet og dregið af gerð hestvagns.

Alls voru framleidd 2.723 eintök af Mercedes-Benz 600 fram til ársins 1981, 2.190 þeirra með styttra hjólhaf.

Pullman, sem var að minnsta kosti 20,000 mörkum dýrari á þeim tíma, var því sjaldgæfur. Þessi endurgerð af Mercedes-Maybach 600 Pullman, frá 2007, gerir hana af einni sérstökustu endurgerð sem gerð hefur verið á þessari gerð bíls. Nýr var þetta eintak afhent til Líbanons árið 1975, málaður í „anthracite grey metallic“. Árið 1997 kom fólksbíllinn til Malaga þar sem Mercedes-Benz Classic hafði milligöngu um kaup á honum tíu árum síðar fyrir hönd viðskiptavinar.

Bílnum breytt af Mercedes-Benz

Í kjölfarið var bíllinn málaður í „perluhvítu“ hjá Mercedes í Untertürkheim og þar fékk bíllinn veglega tæknilega yfirhalningu. Nýtt og einstakt  glerþakið að aftan er hægt að dekkja (minnka gegnsæi) með því að ýta á hnapp. Það kemur úr Maybach 62, sem og sjálfvirk lokun milli ökumanns og farþegarýmis afturí.

Flatskjár var tekinn úr Mercedes-Benz S 600 Pullman (W221) og settur upp í sérsmíðaðan miðjustokk milli ökumanns- og farþegarýmis. Þar koma síðan Alpine græjur sterkt inn en þær bjóða bæði upp á hliðræna og stafræna sjónvarpsmóttöku á ferðalögum.

Tvöfalt leiðsögukerfi sem stjórna má hvoru í sínu lagi gera farþegum í aftursætum einnig kleift að ákvarða staðsetningu sína af nákvæmni.

Sætin sem eru fest í akstursstefnu eru úr Maybach 62, með plássi fyrir vínskáp og innfellanlegt borð á milli. Hin tvö gætu verið sérsmíðuð. Mechatronik býður þennan einstaka bíl fyrir rúmlega 2.3 milljónir evra sem er jafnvirði um 350 milljóna króna.

Myndir: Mechatronics

Fyrri grein

Nýr Honda ZR-V kemur með tvinnafli og er væntanlegur í haust

Næsta grein

Nýr sportbíll á leiðinni frá Honda?

Pétur R. Pétursson

Pétur R. Pétursson

Vefstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Flaggskipið Ranger Rover SV klætt í svart í tilefni afmælisins

Flaggskipið Ranger Rover SV klætt í svart í tilefni afmælisins

Höf: Pétur R. Pétursson
13/09/2025
0

Land Rover á Íslandi fær innan fárra vikna í sýningarsalinn við Hestháls glæsilega nýja útgáfu af flaggskipi merkisins, sem ber...

Bíll byggður á Hyundai Concept Three kemur á markað árið 2026

Bíll byggður á Hyundai Concept Three kemur á markað árið 2026

Höf: Jóhannes Reykdal
11/09/2025
0

Hyundai stefnir að markaði lítilla rafbíla í Evrópu með rafknúnum hlaðbak með Ioniq-merkinu MÜNCHEN — Hyundai stefnir að því að...

Algjör veisla fyrir rúntara

Höf: Pétur R. Pétursson
12/07/2025
0

Við tókum Guðfinn Eiríksson, stjórnarmann í Bílaklúbbnum Krúser, tali eftir þáttöku hans á Västerås Summermeet sem fram fór fyrir skömmu...

Novan var vinsæl á rúntinum í denn

Novan var vinsæl á rúntinum í denn

Höf: Pétur R. Pétursson
29/06/2025
0

Þessi Nova hefur farið í gegnum algera „Frame Off“ endurbyggingu þar sem engu hefur verið til sparað. Bíllinn er sprautaður...

Næsta grein
Nýr sportbíll á leiðinni frá Honda?

Nýr sportbíll á leiðinni frá Honda?

Segðu okkur hvað þér finnst! Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Nýr Kia PV5 mun keppa við VW ID Buzz

09/10/2025
Bílasýningar

Nýr og alrafmagnaður Kia EV4 frumsýndur um land allt

09/10/2025
Bílaframleiðsla

Kia Soul hættir framleiðslu eftir árgerð 2025

08/10/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.