Volvo hefur sölu á rafmagnsvörubílum
Volvo Trucks hefur tilkynnt að sala á Volvo FL og Volvo FE rafknúnum vörubílum sínum verði hafin á völdum mörkuðum innan Evrópu og til að mæta aukinni eftirspurn eftir sjálfbærum flutningalausnum í borgum.

Útblásturs lausir og hljóðlátari, bjóða rafmagnsknúnir vörubílar uppá mikla möguleika í þéttbýli. Í fyrsta lagi gerir lágur hávaði það mögulegt að framkvæma afhendingar og sorphirðu snemma á morgnana, seint á kvöldin eða jafnvel á nóttunni, sem hjálpar til við að bæta flutninga og draga úr þrengslum á álagstímum. Í öðru lagi, með betri loftgæðum og minni hávaða, skapa rafmagnsknúnir vörubílar ný tækifæri fyrir borgarskipulag og vegamannvirki. Til dæmis er hægt að nota rafmagns vörubíl á hleðslusvæðum innanhús.

„Alþjóðleg þéttbýlismyndun krefst flutninga í þéttbýli og flutninga á vörum með núlllosun og minni hávaða. Með Volvo FL Electric og Volvo FE Electric getum við bæði mætt sterkum kröfum umhverfisins sem og kröfum viðskiptavina okkar, “segir Jonas Odermalm, framkvæmdastjóri vörulínu rafvæddra tæknilausna.
Ein áskorunin er að hámarka burðarþol á sama tíma og hámarka drægni. „Lausnir Volvo Vörubíla munu byggjast á þörfum hvers viðskiptavinar fyrir sig og þarf að taka tillit til fjölda einstakra þátta, svo sem aksturslotna, burðargetu og leiðargreiningar, til að nota getu rafhlöðunar á sem hagkvæmastan hátt,“ heldur Jonas Odermalm áfram.
Volvo FL Electric og Volvo FE Electric voru þróaðir í nánu samstarfi við valda viðskiptavini sem starfa í Gautaborg, Svíþjóð. Viðbrögðin hafa verið mjög jákvæð og ökumennirnir sem tóku þátt í samstarfinu eru sérstaklega hrifnir af akstursupplifuninni, jafnri hröðuninni og hversu hljóðlátir flutningabílarnir eru.
„Þó viðbrögð viðskiptavina hafi verið jákvæð,“ útskýrir Jonas Odermalm, „gerum við okkur grein fyrir því að hleðslulausnir eru enn í þróun í flestum borgum og við vinnum með bæði opinberum- og einkaaðilum til að koma okkur saman um langtímastefnu um stækkun innviða fyrir hleðslu. En það er ljóst að hraða þarf uppbyggingu hleðslumannvirkja.“
Til að takast á við loftslagsbreytingar þarf framboð á mismunandi aflgjöfum fyrir vörubíla.
„Rafknúin ökutæki, hlaðin rafmagni frá endurnýjanlegum orkugjöfum, eru öflugt skref í átt til sjálfbærari vörudreifingar í þéttbýliskjörnum. Það mun þó ekki vera einn orkugjafi sem tekur á loftslagsbreytingum og öllum öðrum umhverfismálum. Mismunandi tegundir vöruflutninga krefjast mismunandi gerða af driflínulausnum, “segir Jonas Odermalm að lokum.
Byggt á fréttatilkynningu frá Volvo Trucks



