Invicta Electric hjá BL

140
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

BL hefur tekið við umboði fyrir rafbíla Invicta Electric

BL hefur tekið við umboði fyrir rafknúin farartæki frá spænska fyrirtækinu Invicta Electric sem selur mismunandi gerðir 100% rafdrifinna fólks- og sendibíla ásamt rafknúnum reiðhjólum, rafmagnsvespum og rafskútum.

Á næstu vikum og mánuðum verður unnið að uppbyggingu umboðsins hér á landi sem staðsett verður við Sævarhöfða, m.a. með innkaupum á lager og uppsetningu á heimasíðu merkisins hjá BL.

Invicta Electric D2S

Til kynningar fyrir viðskiptavini hefur BL þegar nýskráð fyrstu tvö eintök rafknúna borgarsmábílsins Invicta Electric D2S sem hægt er að kynna sér í sýningarsalnum við Sævarhöfða ásamt því að prófa reynsluakstursbíl.

D2S er tveggja sæta smábíll sem er með 17 kWh rafhlöðu og uppgefna drægni allt að 150 km og hentar því vel í hverskyns útréttingar sem þarfir einstaklinga og fyrirtækja kalla á í síauknu mæli.

Til viðbótar við 5 ára ábyrgð er staðalbúnaður D2S meðal annars álfelgur, leðursæti, Bluetooth, bakkmyndavél og fjarlægðarskynjarar að aftan.

Verð á Invicta Electric D2S er 2.490.000 kr. Nánar verður greint frá öðrum gerðum farartækja Invicta Electric er nær dregur formlegri kynningu merkisins hjá BL.

87% söluaukning hjá BL í apríl

Í apríl voru 893 fólks- og sendibílar nýskráðir hér á landi og voru 174 af merkum sem BL hefur umboð fyrir eða 19,5%. Hjá BL varð 87% aukning nýskráninga miðað við sama mánuð 2020 þegar 93 bílar frá BL voru nýskráðir.

Alls hafa 755 fólks- og sendibílar af merkjum BL verið nýskráðir það sem af er ári sem er aukning um 5,6%. Markaðshlutdeild BL það sem af er a?ri er 23,3%.

Dacia og Renault vinsælastir

Dacia og Renault voru söluhæstu merki BL í apríl, með 36 nýskráningar hvort merki, og Hyundai næst söluhæst með 32 nýskráningar. Þar á eftir komu gerðir Land Rover með 24 nýskráningar.

Af heildarfjölda nýskráðra merkja frá BL í mánuðinum voru 64 nýorkubílar; 38 hreinir rafbílar og 26 tengiltvinnbílar.

Hreinu rafbílarnir voru flestir frá Nissan og Hyundai með 13 skráningar hvort merki, og af tengiltvinnbílum voru flestir frá BMW eða tólf.

Veglegir aukahlutapakkar fylgja völdum nýjum

Á Ferðadögum sem nú standa yfir hjá BL við Sævarhöfða býður fyrirtækið viðskiptavinum sínum sem kaupa nýjan BMW, Dacia, Isuzu, MINI, Nissan, Renault eða Subaru upp á aukahluti að eigin vali fyrir sem nemur þrjú hundruð þúsund krónur. Þar á meðal eru þakboga, hjólafestingar á topp eða dráttarkrók og fleira.

Svipaðar greinar