Fimmtudagur, 9. október, 2025 @ 23:15
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Fyrsti 100% hreini rafbíllinn frá Mazda

Pétur R. Pétursson Höf: Pétur R. Pétursson
02/09/2020
Flokkar: Fréttatilkynning
Lestími: 6 mín.
267 17
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Fyrsti 100% hreini rafbíllinn frá Mazda

Mazda MX-30, fyrsti 100% hreini rafbíll Mazda, er nú á leiðinni til Íslands og mun Brimborg bjóða hann með ríkulegum staðalbúnaði, víðtækri ábyrgð og innbyggðri varmadælu á verði frá 3.980.000 kr. Bílar hins japanska bílaframleiðanda Mazda hafa notið gríðarlegra vinsælda á Íslandi í áratugi sökum gæða og einstakra aksturseiginleika og nú kemur sá fyrsti sem er eingöngu knúinn rafmagni.

Forpöntun á Mazda MX-30 hefst í Vefsýningarsal Brimborgar á miðnætti 4. september. Sýningar- og reynsluakstursbílar koma til Íslands í október og afhendingar til viðskiptavina hefjast í lok árs.

Bakkmyndavél og GPS vegaleiðsögn hluti ríkulegs staðalbúnaðar

Mazda bílar eru þekktir fyrir ríkulegan staðalbúnað og þar er nýi rafbíllinn MX-30 enginn undantekning. Í SKY grunnbúnaði MX-30 er að finna bakkmyndavél, fjarlægðarstillanlegan hraðastilli (Mazda Radar Cruise Control), GPS vegaleiðsögn ásamt umferðaskiltalesara, öflug hljómtæki, 8,8“ skjá, Mazda Connect með USB tengingu fyrir Android Auto eða Apple Car Play, leðurklætt stýrishjól, tölvustýrða miðstöð með loftkælingu (AC) og 18“ álfelgur svo fátt eitt sé nefnt.

Lágmörkun á mengunarfótspori frá framleiðslu til förgunar

Hnattræn hlýnun kallar á nýjar lausnir. Við hönnun Mazda MX-30 var lögð áhersla að minnka mengunarfótspor bílsins í heild þ.e. heildarmengun bílsins frá framleiðslu til förgunar (Life Cycle Assesement). Þá er horft til umhverfisvænna aðfanga og framleiðsluferla, notkunar bílsins á líftíma hans og að lokum förgunar. Hluti af þessari vegferð er að létta bílinn sem dregur úr notkun aðfanga.

Léttari bíll með léttari drifrafhlöðu lækkar rafmagnsnotkun í akstri (orkueyðsla) og raundrægni verður sem næst mældri drægni, aksturseiginleikar verða betri og förgunarkostnaður í lokin lágmarkaður. Með þessari nálgun er hleðslutími drifrafhlöðunnar einnig lágmarkaður og hún tekur ekkert af farangursrými bílsins sem eykur notagildi hans.

Létt drifrafhlaðan er eldsnögg í hleðslu og skilar framúrskarandi drægni fyrir bæjarsnattið

Daglegur meðalakstur á Íslandi er um 40 km og með 35,5 kWh drifrafhlöðunni er bæjardrægni einstaklega góð eða 265 km. og blönduð drægni með langkeyrslu 200 km. skv. WLTP mælingum. Bæjardrægni rafbíla er oft umtalsvert meiri en langakstursdrægni sökum þess að hraði er minni og hemlaorka nýtist oftar til að hlaða inn á drifrafhlöðuna. Miðað við hefðbundna bæjarnotkun þá þarf aðeins að hlaða drifrafhlöðuna að jafnaði á viku fresti.

Mazda MX-30 100% rafbíll er með 6,6 kW 16A hleðslustýringu og í einfasa 7,4 kW hleðslustöð (AC) heima eða í vinnu er hægt að hlaða úr 20% í 80% drægni á rúmum 3klst. Tóma drifrafhlöðu má síðan fullhlaða yfir nótt á 5 klst. Fyrir lengri ferðir út á land þarf að bæta á rafmagni og í algengustu hraðhleðslustöðvum (DC) á Íslandi, 50 kW, tekur aðeins 36 mínútur að hlaða úr 20% í 80% drægni.

Varmadæla er mikilvægur búnaður í rafbílum, sérstaklega á Íslandi því hún vinnur best frá 5 gráðum undir frostmarki og til 15 gráðu hita og er staðalbúnaður í Mazda MX-30 á Íslandi. Varmadæla endurnýtir orku úr umhverfinu fyrir bæði miðstöð og drifrafhlöðu bílsins sem gerir kleift að að spara orku drifrafhlöðunnar við hitun eða kælingu bílsins. Það getur munað allt að 30 km eða um 15% af drægni bílsins hvort varmadæla er í bílnum eða ekki.

Mazda gæði með 5 ára víðtækri ábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.

Við hönnun Mazda MX-30 var ekkert slakað á gæðakröfum japanska bílaframleiðandans sem endurspeglast í 5 ára víðtækri ábyrgð á bílnum og 8 ára (160.000 km.) ábyrgð á drifrafhlöðu.

Ábyrgðarskilmálar gilda aðeins um bíla sem eru seldir hjá Brimborg og eru háðir því að bíllinn komi í þjónustu skv. skilmálum Mazda Motor Corporation og Brimborgar.

Mögnuð e-Skyactiv aksturstækni Mazda skilar einstökum aksturseiginleikum

100% hreini rafbíllinn Mazda MX-30 er hannaður út frá áratugalangri keppnisreynslu Mazda bílaframleiðandans. Rafvélin er 145 hestafla og skilar 270,9 Nm af togi. e-Skyactiv aksturstæknin heldur bílnum sem límdum við götuna eins og Mazda er einum lagið þar sem einstakt fjöðrunarkerfið og akstursstjórnunartæknin Electric G-Vectoring Control Plus (e-GVC PLUS) leika lykilhlutverk. Nýja rafdrifna orkugjöfin notar nýja tækni til að ná tilætluðum hraða með því að greina líkamsstöðu ökumanns og fyrirhugaða hröðun eða hraðaminnkun. Fyrir fullkominn hemlunarárangur leyfir hemlafótstigið hemlaþrýsting að byggjast upp varlega, viðhalda stöðugum styrk og sleppa síðan mjúklega.

Þetta tryggir náttúrulega akstursánægju Mazda.

Óviðjafnanleg fegurð með einstakri hurðaopnun sem skapar framúrskarandi aðgengi

Einstök Kodo hönnun Mazda MX-30 100% hreina rafbílsins á engan sinn líka. Hábyggð yfirbyggingin sómir sér vel á götu, stórir og bjartir gluggar skapa gott útsýni, einstök hurðaopnun býður upp á einstakt aðgengi með 82 gráðu opnun framhurða og 80 gráðu opnun afturhurða og há sætisstaðan býður ökumenn og farþega velkomna.

Innanrými með einstöku notagildi, hárri sætisstöðu og umhverfismildum gæðaefnum

Þegar sest er inn í Mazda MX-30 100% hreina rafbílinn blasir við einstakt samval gæðaefna sem hafa verið valin með umhverfisvernd og endingu að leiðarljósi. Korkur er notaður í miðjustokk sem unnin er úr trjám án þess að þau séu felld og efni í innréttingum framleidd úr endurunnum plastefnum. Áferð, saumar og önnur smáatriði bera þess merki að vera samsett af mikilli natni og gefa bílnum einstaka lúxusásýnd.

Mazda MX-30 fékk Red Dot 2020 alþjóðlegu hönnunarverðlaunin en áður höfðu Mazda 3 og Mazda CX-30 fengið þessi virtu verðlaun.

Forpantanir hefjast 4. september á verði frá 3.980.000 kr.

Brimborg mun byrja að taka við forpöntunum á Mazda MX-30 100% rafbílnum á miðnætti þann 4. september í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg. Sýningar- og reynsluakstursbílar verða hjá Brimborg í október og afhendingar til kaupenda hefjast í lok árs. Mazda MX-30 100% rafbíllinn verður kynntur á einstaklega hagstæðu verði eða aðeins frá 3.980.000 kr. og er Mazda MX-30 því einn ódýrasti rafbíllinn á Íslandi. Staðfestingargjald við staðfestingu pöntunar er 10% eða 400.000 kr.

Í Vefsýningarsal  er að finna alla Mazda MX-30 100% rafbíla  í pöntun. Þegar draumabíllinn er fundinn er send fyrirspurn beint úr Vefsýningarsalnum sem söluráðgjafi svarar um hæl. Viðskiptavinir geta auðveldlega breytt bílum í pöntun að sínum smekk með aðstoð söluráðgjafa Brimborgar.

Helstu mál og stærðir

Lengd: 4.395 m

Breidd: 1.795 m

Hæð: 1.555 m

Stærð á skotti 366 lítrar, stækkanlegt 1171 lítra

Veghæð: 15.7 sentimetrar

Eigin þyngd: 1.750 kg

Þyngdardreifing milli fram- og afturáss: Nálægt 50/50

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um Mazda MX-30 100% rafbíl er að finna á vef Mazda á Íslandi eða hjá sölustjóra Mazda á Íslandi,  Benný Ósk Harðardóttur @Benný Ósk Harðardóttir eða í síma 5157802. Smelltu hér til að kynna þér allt um Mazda MX-30 100% rafbíl.

Fyrri grein

Rafknúni sportjeppinn Skoda Enyaq iV býður upp á svið afls og rafhlöðustærða

Næsta grein

Mercedes S-Class fær tækniuppfærslur til að auka þrýsting á Tesla Model S

Pétur R. Pétursson

Pétur R. Pétursson

Vefstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Nýr og alrafmagnaður Kia EV4 frumsýndur um land allt

Nýr og alrafmagnaður Kia EV4 frumsýndur um land allt

Höf: Pétur R. Pétursson
09/10/2025
0

Laugardaginn 11. október kl. 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 og hjá umboðsaðilum Kia um land allt. Reykjavík, október...

XPENG frumsýnir nýja G6 og G9 á Íslandi.

XPENG frumsýnir nýja G6 og G9 á Íslandi.

Höf: Pétur R. Pétursson
25/09/2025
0

Laugardaginn 27. september kl. 12-16 í sýningarsal XPENG að Vínlandsleið 6-8 Reykjavík, september 2025 – XPENG, eitt hraðast vaxandi rafbílamerki...

Mitsubishi Motors Europe kynnir nýjan 100% rafmagnaðan Eclipse Cross

Mitsubishi Motors Europe kynnir nýjan 100% rafmagnaðan Eclipse Cross

Höf: Jóhannes Reykdal
19/09/2025
0

Mitsubishi Motors Europe frumsýndi í gær, 17. september, nýjan Eclipse Cross, 100% rafmagnsjeppling fyrir Evrópumarkað. Bíllinn er í flokknum C-SUV...

Flaggskipið Ranger Rover SV klætt í svart í tilefni afmælisins

Flaggskipið Ranger Rover SV klætt í svart í tilefni afmælisins

Höf: Pétur R. Pétursson
13/09/2025
0

Land Rover á Íslandi fær innan fárra vikna í sýningarsalinn við Hestháls glæsilega nýja útgáfu af flaggskipi merkisins, sem ber...

Næsta grein
Mercedes S-Class fær tækniuppfærslur til að auka þrýsting á Tesla Model S

Mercedes S-Class fær tækniuppfærslur til að auka þrýsting á Tesla Model S

Segðu okkur hvað þér finnst! Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Nýr Kia PV5 mun keppa við VW ID Buzz

09/10/2025
Bílasýningar

Nýr og alrafmagnaður Kia EV4 frumsýndur um land allt

09/10/2025
Bílaframleiðsla

Kia Soul hættir framleiðslu eftir árgerð 2025

08/10/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.