Fiat 500e rafbíll og ítölsk stemming hjá Ísband um helgina

137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Fiat 500e rafbíll og ítölsk stemming hjá Ísband um helgina

ÍSBAND umboðsaðili FIAT frumsýnir fyrsta 500e rafmagnsbílinn og jafnframt fyrsta 500 bílinn með 3+1 hurðum laugardaginn 6. nóvember.

500e er ítölsk hönnun þar sem mikið er lagt upp úr sérstöðu, fallegu útliti innan sem utan og notagildi.

Fyrstu 500e bílarnir koma í 9 mismunandi litum og útfærslu sem kallast „La Prima“ sem er hlaðin aukabúnaði eins og 3+1 hurðum (3+1 hurð er afturhurð farþegamegin sem auðveldar aðgengi að aftursætum), leðursætum, leðurstýri, hita í sætum, 10,25” skjá með leiðsögukerfi, þráðlausri símahleðslu, sjálfvirkri miðstöð með loftkælingu, bakkmyndavél, þráðlausu Apple/Android Carplay, 85KW hraðhleðslu, 17” álfelgum, 360? fjarlægðaskynjurum, Led ljósum, lykillausu aðgengi og ræsingu, glerþaki, fjarlægðastilltum hraðastilli með hraðaskiltalesara o.fl.

Fiat 500e er vel búinn með öllum þeim helsta búnaði sem hægt er að óska sér í svona bíl.
Þriðja hurðin sem er farþegamegin, opnar gott aðgengi að aftursætunum, auk þess að opnast að gangstéttinni en ekki út í umferðina, sem eykur öryggið.

Drægni 320 til 460 kílómetrar

Rafhlaðan er 42kW og er 8 ára ábyrgð á rafhlöðu og 5 ára ábyrgð á bílnum. Drægnin er 320 km skv. WLTP í blönduðum akstri og allt að 460 km innanbæjar. 500e er sjálfskiptur og framdrifinn. Með 85kW hraðhleðslu er hægt að hlaða 50 km drægni á 5 mínútum.

Ítalskt kaffi og veitingar

Það verður ítölsk stemming hjá ÍSBAND á laugardaginn þar sem kaffibarþjónn frá Lavazza töfrar fram úrvals ítalskt Lavazza kaffi ásamt fleiri veitingum.

Sýningin er opin á milli kl. 12-16 á laugardaginn 6. Nóvember, og er í sýningarsal ÍSBAND í Mosfellsbæ, Þverholti 6.

Svipaðar greinar