Það er eitthvað sérstakt við fyrstu kynni af Hyundai Ioniq 9. Í stæðinu er bíllinn með yfirveguðu sjálfstrausti, án þess að þurfa að skarta ögrandi línum eða öskrandi framtíðarsvip.

Hyundai Ioniq 9 er stór og glæsilegur fjölskyldu sportjeppi.
Hann er einfaldlega stór, glæsilegur rafmagnsjeppi sem fær mann til að átta sig á að hér sé kominn bíll sem stefnir hátt.







Ioniq 9 er í boði í þremur útfærslum, Limited, Callygraphy og Performance. Allar mjög vel búnar og fullar af hagnýtum nýjungum.
Hyundai hefur lengi verið að styrkja stöðu sína í rafbílalandslaginu, og með Ioniq 9 er stigið skref upp á nýtt plan — þar sem rými, þægindi, drægni og tækni eru samofin í einstaklega vel heppnaðri heild.

Takið eftir ljósaklasanum. Lýsingin er kristaltær og skapar flotta ásýnd í akstri.
Meira lagt í upplifun
Strax og maður sest inn í bílinn blasir við umhverfi sem virðist hafa verið hannað með það að markmiði að draga úr álagi og skapa ró. Innréttingin er björt og opin með stóru glerþaki, bogadregnar línur og mild efni skapa hlýlegt og nútímalegt andrúmsloft, og maður fær strax á tilfinninguna að hér sé meira lagt í hugsun og upplifun en í hefðbundnum sjö manna jeppa.

Innanrýmið er fyrst og fremst þægileg og skapar afslappað andrúmsloft. Skjáir í Hyundai Ioniq 9 eru hraðvirkir stýrikerfið einfalt.
Ioniq 9 er í boði í sjö sæta útfærslu, og „lounge“-sætin í miðjunni (ef pöntuð er 6 sæta útgáfa) eru eitt af því sem gerir bílinn að raunverulegum ferðafélaga frekar en venjulegum sjö sæta bíl. Þriðja sætaröðin er líka óvenju rúmgóð og hentar fullorðnum — sem er sjaldgæft í þessum stærðarflokki.
Samhljómur rýmis og aksturseiginleika
Rýmið er eitt; aksturinn annað. Og þar kemur stærsta jákvæða áfallið. Ioniq 9 er risavaxinn bíll, en að aka honum finnur maður léttleika sem maður á varla von á. Hann er afslappaður, mjúkur og yfirvegaður á hvaða hraða sem honum var ekið. Þrátt fyrir mikla þyngd (allt að 2.725 kg) er stýrið nákvæmt, fjöðrunin vinnur af prýði við að slétta úr ójöfnum og bíllinn gefur stöðugt örugga og þægilega tilfinningu.

Virkilega skemmtileg stemningslýsing sést um allan bílinn.
Ioniq 9 kemur í fjórhjóladrifsútgáfu til Hyundai á Íslandi en það eykur traustið enn frekar, sérstaklega á íslenskum vetrarvegum. Performance AWD útgáfan skilar krafti sem bíll af þessari stærð ætti í rauninni ekki að geta boðið upp á — en gerir það samt og fer létt með það. Ioniq 9 getur dregið allt að 2500 kg.












Ioniq 9 er hlaðinn fjölbreyttum tæknibúnaði og þar af nokkrum nýjungum. Má þar nefna UV sótthreinsihólf fyrir símann og „noice cancelling” hljómflutningsbúnaði.
Hraðvirk hleðsla
Rafmagnshlið bílsins stendur einnig fyrir sínu. Ioniq 9 er búinn 110,3 kWh rafhlöðu með allt að 605 km drægni í hagkvæmustu útgáfunni. Þetta er drægni sem dugar ekki bara í daglegu amstri; hún gerir lengri ferðir ótrúlega afslappaðar.

Reynsluakstursbíllinn er á 21 tommu felgum. Takið eftir vindkljúfunum efst á hjólaskálunum til að brjóta hugsanlegt loftflæði frá dekkjum í akstri.
Hraðhleðslan er í toppklassa og nær allt að 350 kW, sem þýðir að hleðsla úr 10 í 80 prósent tekur um það bil 24 mínútur við kjöraðstæður. Þetta er hleðsluhraði sem breytir ferðavenjum — stopp eru orðin hvíldarstundir, ekki kvíðavaldur – ef stöðin er laus þegar þú kemur að henni.
Það eina sem við gátum fundið að er að hleðslugáttinn er með loki sem opnast 90° út og gæti skapað vandræði ef bíllinn er í stæði þegar hann er hlaðinn.

Myndavélaspeglar eru skýrir en það tók okkur aðeins skamma stund að venjast þessar tækni.
Alvöru takkar
Eitt það besta við bílinn er þó hvernig Hyundai tekst að sameina framtíðartækni og hefðbundna notendavænni. Mælaborð og miðjuskjár mynda fallega heild með tveimur 12,3″ skjám, en undir þeim eru alvöru takkar og rofar fyrir helstu stillingar. Þetta er akkúrat sá millivegur sem margir hafa verið að óska sér: fullkomin tækni, án þess að allt verði háð snertiskjánum.



Ioniq 9 er með tæknilegri bílum sem við höfum prófað en samt heldur Hyundai í hefðina og býður upp á hnappa og takka þar sem þeirra er helst þörf. Eins og t.d. miðstöð, akstursstillingar og hleðslugátt.
Kerfið er hraðvirkt, skýrt og einfalt — og tengimöguleikar fjölmargir. Þá má ekki gleyma V2L, sem gerir kleift að knýja raftæki beint úr bílunum. Þetta er eiginleiki sem hentar bæði ferðalöngum, útivistarfólki og þeim sem vilja hafa aukið öryggi ef á þarf að halda.

Hurðir opnast sérlega vel allan hringinn á bílinum. Takið eftir því að hurðin lokast yfir sílsinn sem dregur úr óhreinindum í hurðafölsum.
Þegar maður situr aftur í bílnum á lengri ferðum tekur maður eftir hljóðlátum akstrinum. Hyundai hefur greinilega lagt mikla vinnu í hljóðeinangrun, því í farþegarýminu heyrist vart veghljóð, og bíllinn svífur af stað með ótrúlegri mýkt. Fyrir farþega er þetta bíll sem skapar ró á ferðalagi. Fyrir ökumann er þetta bíll sem lætur manni líða eins og maður sé alltaf með fulla stjórn og nægt afl til að gera hvað sem þörf krefur.
Hljóðdempandi fídusinn
Í bílnum er græja sem virkar eins og „noice cancelling” á nýjustu og öflugustu heyrnartólunum. Hljóðnemar í lofti bílsins taka upp umhverfishljóð og spila síðan annað hljóð sem virkar til mótvægis.

Hér má sjá lítinn hljóðnema, staðsettan í loft bílsins. Hljóðneminn tekur upp umhverfishljóð og spilar svo mótvægishljóð í gegnum hátalarakerfið.
Farangursrýmið er sveigjanlegt og nýtist vel. Með öllum sætum uppi er plássið ágætt, en felli maður niður aðra og þriðju röð opnast risastórt rými sem minnir helst á meðalstóran sendibíl. Þessi sveigjanleiki gerir Ioniq 9 einstaklega heppilegan fyrir stærri fjölskyldur, íþróttafólk, vinnustaðaferðir eða einfaldlega þá sem þurfa stundum að flytja meira en fólk í bíl. Sjá myndband með ítarlegri úttekt á skottplássi og sætum.

Hér vantar ekki pláss. Innstig í öftustu sætaröðina er þokkalegt – allavega gat undirritaður sest þar inn án vandkvæða (59 ára, 190sm og 110 kg.).

Farangursrýmið er veglegt. Þegar þriðja sætaröðin er uppi erum við að tala um svipað stórt skottrými og í venjulegum smærri fólksbíl.
Eftir þessa einu helgi á bílnum og nokkur hundruð kílómetra akstur situr eftir klár niðurstaða: Hyundai Ioniq 9 er einn best heppnaði stóri rafmagnsjeppi sem hefur komið fram í langan tíma.
Hann sameinar yfirburða rými, þægindi og framúrskarandi drægni með rökréttri, notendavænni nálgun. Hann er hljóðlátur, rúmgóður, tæknilega þróaður og myndarlegur — og hann nýtist jafn vel sem fjölskyldubíll og ferðabíll.

Í sportstillingu þrýstast hliðar sætanna að búknum og breytast þá í nokkurskonar sportsæti.
Það er erfitt að ímynda sér breiðari hóp ökumanna sem myndu ekki finna sig í þessum bíl. Fyrir marga gæti Ioniq 9 reynst réttur bíll í mörg ár fram í tímann. Hyundai hefur á undanförnum árum sýnt að fyrirtækið kann leikinn þegar kemur að rafbílum — og með Ioniq 9 staðfesta þeir að þeir eru farnir að leiða leikinn, ekki bara fylgja honum.
Myndband
Helstu tölur:
Verð: frá 12.890.000 kr. – 14.490.000 kr. Reynsluaksturbíll af Callygraphy gerð í Performance útgáfu. 14.490.000 kr.
Hestöfl: 313/435
Drægni: 600/605 km. skv. WLTP.
Rafhlöðustærð: 110 kWh.
Eigin þyngd: 2.725 kg.
Heimahleðslugeta (AC): 11 kW.
Hraðhleðslugeta (DC): 350 kW.
Lengd/breidd/hæð í mm. 5060/1980/1790
Myndbandsupptaka: Ólöf A. Þórðardóttir







