Þriðjudagur, 20. maí, 2025 @ 11:19
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Sjö sæta Hyundai Ioniq 7 kemur árið 2024

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
08/07/2022
Flokkar: Bílaframleiðsla
Lestími: 5 mín.
273 20
0
140
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter
Þessi glæsilegi Ioniq 7 jepplingur verður stærsti rafbíll Hyundai
Bílavefur Auto Express birti í gær myndir sínar af stórum rafdrifnum sportjeppa sem von er á frá Hyundai

Hyundai eykur rafbílaframboð sitt og næsti rafbíll sem koma mun fram á sjónarsviðið verður stór sportjeppi, kallaður Ioniq 7. Hann kemur í framhaldi af Ioniq 5 og nýkynntum Ioniq 6 í rafbílaframboði Hyundai. Sem sjö sæta bíll mun hann keppa við Tesla Model X og Mercedes EQB.

Hyundai hefur þegar sett dagsetninguna 2024 fyrir komu Ioniq 7, þannig að búist er við að bíllinn gæti birst okkur annað hvort seint á þessu ári eða snemma árs 2023.

Óneitanlega vígalegur – Hyundai Ioniq 7 (mynd Auto Express)

Til grundvallar Ioniq 7 verður E-GMP stigstækkandi grunnur Hyundai-Kia fyrir rafbíla, með breidd og hjólhafslengd hvers bíls tiltölulega frjálsa. Með færri takmörkunum á þessum breytum mun stærð rafhlöðunnar sem stóri jeppinn þarf, skipta miklu máli.

Til viðmiðunar má nefna að hjólhaf Ioniq 5 crossover er 3.000 mm, sem er nú þegar 235 mm lengra en sjö sæta jeppa Hyundai, Santa Fe. Hins vegar, fyrir Ioniq 7, væri hægt að teygja þetta enn frekar til að stækka farþegarýmið – og plássið sem er til staðar til að staðsetja stærri rafhlöðu á gólfi bílsins, sem bætir drægni fyrir þennan stóra, fyrirferðarmikla og eflaust þunga bíl.

Þar af leiðandi mun hann líklega rúma stærri rafhlöðu en Ioniq 5 og 6, sem hjálpar til við að vega upp á móti aukaþyngd bílsins samanborið við systkini hans af millistærð.

Þetta gæti gefið allt að 100kWst af orku, með þróun í rafhlöðuefnafræði sem þýðir að Hyundai mun fara yfir í fjórðu kynslóðar tækni fyrir árið 2023, auka orkuþéttleika yfir núverandi fyrirkomulagi um á milli 10 og 20 prósent og gefa jeppanum drægni um eða yfir 640 km.

Hyundai Ioniq 7 – aftan (mynd Auto Express)

800V rafræn uppsetning E-GMP grunnsins mun útbúa Ioniq 7 með 350kW hraðhleðslugetu, sem þýðir að hægt er að bæta við allt að 100 km drægni á aðeins fimm mínútum. Miðað við staðsetningu 7 sem flaggskip gæti hann þó einnig verið með þráðlausa hleðslu. Þetta er möguleiki fyrir E-GMP, þar sem yfirmaður rafvæðingarþróunarhóps Hyundai, Chung Jin-Hwan, leggur áherslu á: „Það er í þróun; við höfum verið að leysa mörg vandamál sem koma upp við þráðlausa hleðslu.“

Burtséð frá því, þá er það snjöll notkun grunnsins á plássi sem mun einkenna Ioniq 7, alveg eins og það gerir í Ioniq 5 stallfélaga sínum. Tiltölulega þunn rafhlaðan gerir einnig kleift að fá fullkomlega flatt gólf inni í farþegarýminu og þar sem jeppabygging Ioniq 7 skilar hærri sætisstöðu ætti bíllinn að bjóða upp á ótrúlegt pláss og notagildi.

Fyrir 7-bílinn má búast við svipaðri hönnun innanrýmis og í 5-bílnum, með áherslu á notagildi.

Miðað við stærð Ioniq 7 er líklegt að jeppinn gæti notað tvöfalda mótora uppsetninguna frá Ioniq 5, sem nú skilar allt að 301 hö og 605 Nm togi, og 4WD getu. Í minni crossover-bíl er þetta nóg fyrir 5,2 sekúndna 0-100 km/klst tíma, þannig að stærsta Ioniq gerðin ætti samt að skila fullnægjandi afköstum.

Hins vegar hefur þessi tækni í EV6 GT-bílnum frá systurmerkinu Kia verið stillt til að skila allt að 577 hestöflum, þannig að Hyundai gæti aukið þetta fyrir Ioniq 7. Margir eigendur stórra jeppa nota líka bíla sína til að draga eftirvagna eða hjólhýsi, og þessi tækni ætti að gefa 7-bílnum góða dráttargetu óháð afli; Ioniq 5 getur dregið allt að 1.600 kg.

Miðað við hlutföll Ioniq 7 er ólíklegt að við sjáum sportlegt N afbrigði í stíl við Ioniq 5 N og Ioniq 6 N, en myndir Auto Express sýna hvernig nýr sjö sæta Ioniq kóreska fyrirtækisins gæti litið út.

Áður birt skuggamynd frá Hyundai sýnir Ioniq 5, Ioniq 6 og Ioniq 7 saman, með Ioniq 5 í miðjunni sem gefur tilfinningu fyrir því hvernig 6 og 7 módelin verða mismunandi í hönnun og stærð.
Ioniq 6 – fólksbíllinn kemur á þessu ári og stóri sportjeppinn Ioniq 7 á árinu 2024

Hyundai á hlut að samningi sem mun sjá um nýjan „Nvidia Connected Drive“ hugbúnaðarvettvang með þráðlausa uppfærslumöguleika sem komið er fyrir í nýjum bílum Hyundai frá 2022. Búast má við háþróuðu sjálfstæðu ökumannsaðstoðarkerfi líka.

Ytra útlit bílsins verður í samræmi við útlit Ioniq 5-bílsins, með djörfum og áberandi línum á yfirborði, en Ioniq mun einnig vera með LED ljós sem hann deilir með Prophecy, hugmyndabíl framleiðandans, bíl sem gaf vissa hugmynd um útlit Ioniq 6 fólksbílsins.

Eins og myndir Auto Expres sýna er búist við að Ioniq 7 sé með samtengda ljósastiku í fullri breidd að framan og „Parametric Pixel LED“-ljósum fyrir neðan. Há vélarhlífin og framhliðin munu undirstrika stöðu 7 í röðinni, en án brunavélar undir vélarhlífinni mun plássið gefa umtalsverða geymslumöguleika, þar á meðal fyrir hleðslusnúrur bílsins, til að losa enn frekar um farangursrými. Gróft yfirborð á hliðum mætir stórum gluggum og sameinast í ferköntuðum afturenda sem einnig er með áberandi LED hönnun.

(grein á vef Auto Express – myndir Auto Express og Hyundai)

Þessu tengt: 

Ioniq 6: Spennandi Streamliner brátt sýndur

Ioniq 5: Kemst lengra en gefið er upp

Víst er eftirspurn eftir rammíslensku votviðri!

Hyundai Ioniq 5 heimsbíll ársins 2022

Fyrri grein

Nýr 2022 Volkswagen Amarok pallbíll með V6 vél

Næsta grein

Mótorhjólaséní frá því hann var tveggja

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Fiat 500 fær aftur bensínvél

Fiat 500 fær aftur bensínvél

Höf: Jóhannes Reykdal
15/05/2025
0

Stellantis staðfestir framleiðslu á Fiat 500 tvinnbíl, byggðum á rafbílnum, í ítalskri verksmiðju Stellantis stefnir að því að hefja framleiðslu...

Alrafmagnaður Isuzu D-MAX 4×4 á markaði Evrópu í haust

Alrafmagnaður Isuzu D-MAX 4×4 á markaði Evrópu í haust

Höf: Pétur R. Pétursson
14/05/2025
0

Isuzu Motor Group hefur hafið fjöldaframleiðslu á rafdrifnum D-MAX með fjórhjóladrifi fyrir Evrópumarkað í verksmiðju sinni í Samron í Tælandi....

Volvo XC70 snýr aftur sem tengitvinnbíll með 199 km drægni á rafmagninu

Volvo XC70 snýr aftur sem tengitvinnbíll með 199 km drægni á rafmagninu

Höf: Jóhannes Reykdal
13/05/2025
0

Nýr Volvo sportjeppi er fyrst og fremst hannaður fyrir kínverska markaðinn en alþjóðleg kynning er í skoðun. Volvo er að...

Nýr Mercedes GLC EV verður kynntur á bílasýningunni í München

Nýr Mercedes GLC EV verður kynntur á bílasýningunni í München

Höf: Jóhannes Reykdal
10/05/2025
0

Mercedes-Benz mun kynna nýja rafknúna GLC sportjeppann á bílasýningunni í München í september, að því er forstjórinn Ola Kallenius segir....

Næsta grein
Mótorhjólaséní frá því hann var tveggja

Mótorhjólaséní frá því hann var tveggja

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Álit

BYD Sealion 7 – fágaður lúxus og kraftmikið tæknibúnt

19/05/2025
Bílaheimurinn

Þjónustudagur Toyota

16/05/2025
Bílasýningar

Vígalegur 35″ Defender og fjallahjólhýsi á vorsýningu Land Rover á laugardag

16/05/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.