Nýr 2021 Volkswagen Transporter T7 með tengitvinnbúnaði næst á mynd í felulitum
- Útlit er fyrir að tengitvinnútgáfa af nýjum Volkswagen Transporter T7 sendibíl sé á leiðinni og hún gæti notað sömu aflrás og nýi Golf
Njósnaljósmyndarar Auto Express hafa séð tengutvinnútgáfu af komandi Volkswagen Transporter T7 sem er í prófun á Nurburgring. Bíllinn mun koma í sölu á næsta ári og mun keppa við Ford Transit, Mercedes Sprinter og Vauxhall Vivaro.
Helsta uppljóstrunin á vef Auto Express er að þetta er næsta kynslóð af Volkswagen Transport er með tengitvinnbúnaði fyrir rafmagn, og það sem gefur það til kynna er auka hurð fyrir tenginingu á framhlið bílsins, sem er að fela hleðslutengi.

Þessar nýjustu myndir kynda enn frekar undir sögusagnirnar um að nýi sendibíllinn muni færa sig á MQB-grunn Volkswagen. Allar núverandi PHEV gerðir fyrirtækisins eru byggðar á þessum palli og ólíklegt er að Volkswagen muni þróa nýjan undirvagn til að hýsa tæknina í Transporter vegna mikils kostnaðar sem því fylgir.

Sama drifrás og í Golf 8 PHEV?
Sem slíkur ætti nýi Transporter með tengitvinnbúnaði að vera með sömu drifrás og Mk8 Golf PHEV. Þessi drifrás samanstendur af turbó 1,4 lítra fjögurra strokka bensínvél og 113 hestafla rafmótor, sem gefa hámarks sameinuð afköst sem eru 242 hestöfl og 400Nm togi.
Afgangurinn af vélarviði Transporter mun samanstanda af kunnuglegu úrvali Volkswagen samstæðunnar af túrbó 2,0 lítra fjögurra strokka dísilvélum, sem notaðar eru í bílum eins og Tiguan og SEAT Ateca jeppum. Eins og T6.1, ætti að bjóða þessa nýju gerð bæði með fram- eða fjórhjóladrifi.
Hönnun nýja Transporter verður þróun núverandi gerðar en með ákveðnum atriðum úr nýjasta fólksbílasviði vörumerkisins. Njósnamyndirnar sýna að hann er með aðeins meira ávölum hornum og breiðara glerhúsi, en hönnun framhliðarinnar er lík og á nýja Golf og deilir svipuðu grilli lögun á stuðara og LED framljósahönnun.
Teygir sig lengra fram
Volkswagen hefur einnig framlengt mælaborð og framrúðu Transporter yfir framöxulinn og mjókkað A-bitana. Þýska fyrirtækið hefur bætt við nýjum litlum glugga fyrir ofan A-hlutann til að bæta sýnileika og leyfa meira ljós inn í farþegarýmið.

Að innan gerum við ráð fyrir að Transporter T7 muni hafa svipað úrval tækniuppfærslu og Golf, þar sem best búna gerðin fær stafrænt mælaborð og nýtt 10 tommu upplýsingakerfi – ásamt venjulegri ökumannatækni, svo sem akreinaaðstoð, skriðstilli og vöktunarbúnað fyrir blinda bletti.
Fyrri kynslóð Transporter T6.1 var einnig fáanleg með rafmagns drifrás sem þróað var í samvinnu við þýska ABT-fyrirtækið. Kerfið samanstendur af 109 hestafla rafmótor og 37,3 kWh rafhlöðupakka og býður upp á 133 km aksturssvið. Sem slík er rafmagnsútgáfa af nýjum T7 líklega á líftíma sendibílsins.
(byggt á grein á Auto Express)



