Meira sýnt af Opel Mokka

137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Meira sýnt af Opel Mokka

Vauxhall sem framleiðir samnefndar bifreiðar og undir merki Opel kynnti nýjan framenda Opel Mokka  nýverið. Við sýndum einmitt nokkrar njósnamyndir af bílnum fyrir skömmu í þessari grein.

Forsvarsmenn fyrirtækisins ætla að sú hönnunarstefna sem viðhöfð er með þennan nýja bíl muni smitast út í allar gerðir Vauxhall/Opel bíla á næstu misserum.

Á mynd sem Vauxhall sýnir eru LED matrix ljós aðalnúmerið en þau eru hluti af grilli bílsins. Þetta er svo sem ekki aveg nýtt fyrirbrigði í bílahönnun í dag því Toyota Corolla byggir á svipaðri grill hönnun.  Þetta má einnig sjá í Peugeot 508 bílnum.

Engu að síður er þessi nýja hönnun Vauxhall/Opel ágætlega flott og þeir kalla hana Vizor.

Einnig rafdrifinn

Reiknað er með að nýr Opel Mokka verði um 134 hestöfl með 50kWh rafhlöðu og með drægni upp á 320 kílómetra. Hann verður einnig í boði með 1.2 lítra, þriggja strokka túrbó bensínvél og 1.5 lítra, fjögurra strokka dísel vél. Bíllinn er áætlaður sem 2021 módel.

Svipaðar greinar