Það var greinilegt að margir höfðu áhuga á því að skoða hvað væri í boði þegar ÍSBAND, umboðsaðili Jeep og RAM á Íslandi var með glæsilega og rafmagnaða jeppasýningu í gær, laugardaginn 2. október.
Þar mátti meðal annars sjá 4xe Plug-In-Hybrid línuna frá Jeep: Jeep Wrangler Rubicon 4xe, Jeep Compass 4xe og Jeep Reneagde 4xe, alvöru jeppar með alvöru fjórhjóladrifi í Plug-In-Hybrid útfærslu.
Málin rædd hjá Ísband á laugardaginn.
Það var Jeep Wrangler Rubicon 4xe í Launch Edition útgáfu sem vakti einna mesta athygli. Þetta er sérlega öflugur og vel útbúinn jeppi sem hefur svo sannarlega slegið í gegn. Með alls 373 hestafla vél og 670 Nm í togi, 100% driflæsingum að framan og að aftan og með aftengjanlegri jafnvægisstöng að framan. Mikið hefur verið um það að Wrangler Rubicon sé breytt, og býður Breytingaverkstæði ÍSBAND upp á fjölbreytt úrval breytingapakka með 35”, 37” og 40” breytingum. 37” og 40” breyttir Wrangler Rubicon 4xe voru á sýningunni.
Jeep Compass 4xe var sýndur í þremur útfærslum; í Limited og Trailhawk útfærslum sem nú þegar hafa vakið verðskuldaða athygli íslenskra bílakaupenda og einnig frumsýndi Ísband Compass S, en hann kemur til landsins síðar á árinu.
Glæsileg og sportleg útfærsla Jeep Compass S, með panorama glerþaki og á 19” felgum. Bíllinn verður til afhendingar síðar á árinu.
RAM 3500 pallbílarnir voru einnig til sýnis. Líkt og með Jeep þá býður breytingaverkstæði ÍSBAND upp á breytingapakka fyrir RAM með 37” og 40” breytingum, en sjá mátti 40” breyttan RAM í sýningarsalnum.
Umræður um þessa grein