Miðvikudagur, 18. júní, 2025 @ 18:13
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

VW fækkar bílum með handskipta gírkassa

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
02/09/2021
Flokkar: Bílaframleiðsla
Lestími: 3 mín.
282 3
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Volkswagen Group byrjar að fækka bílum með handskipta gírkassa

Næsta kynslóð Tiguan og Passat árið 2023 mun ekki bjóða upp á handskiptingu

Autoblog-vefurinn fjallar um minnkandi hlutfall handskiptra gírkassa í bílum og segir:

Upphafið að endalokum handskiptra gírkassa hófst fyrir meira en áratug; hlutfall handskiptra gírkassa í flotanum var orðið það lítið árið 2010 að tímaritið Car & Driver hóf herferðina „Save the Manuals“ í júlí það sama ár.

Núna greinir Auto Motor und Sport frá því að Volkswagen mun byrja að draga verulega úr framboði á handskiptingum eftir tvö ár. AMS segir að þriðja kynslóð Tiguan, sem búist er við að komi árið 2023, verði ekki boðin með handskiptingu í neinni gerð og nýja Passat-línan sem kemur sama ár mun ekki heldur bjóða upp á handskipta valkosti.

Þegar Volkswagen stefnir að því markmiði sínu að ná 70% af sölu rafknúinna ökutækja fyrir árið 2030 og selja eingöngu rafbíla í Evrópu árið 2035, mun sparnaður við að kasta út handskiptingunni spara þróunarkostnað, sem kemur sér vel, því að þróa rafbíla er ótrúlega dýrt.

Fleiri munu fylgja á eftir

Greinin í Auto Motor und Sport nefnir aðeins Volkswagen vörumerkið og tilgreinir evrópskan, bandarískan og kínverskan markað, en samkvæmt því sem Autoblog skrifar er óhætt að gera ráð fyrir að þetta verði um allt.

Undirmerki VW-samstæðunnar, Seat og Skoda selja endurgerðir Volkswagen-bíla þannig að þegar skrúfað er fyrir „hefðbundinn gírkassakrana“ verður það einnig svo hjá þeim.

Handskiptingar eru settar upp til að vinna með brunahreyflum og Audi hefur þegar sagt að hætt sé að þróa nýjar gerðir brunahreyfla.

Lamborghini, Bentley og Bugatti eru ekki í handskiptingum. Þetta skilur þá eftir atvinnubíla og þunga vörubíla frá Man og Scania. Stórir bílar eru þegar að skipta yfir í sjálfskipta gírkassa og þegar I.D. Buzz sendibíllinn kemur, verður jafnvel hinn algengi vinnubíll að fara sömu leið og fólksbílarnir. En eins og Autoblog segir: „Fyrir okkur sem enn elskum að skipta með höndunum virðist Porsche vera eina von okkar.“

Aðeins lítið hlutfall bíla með handskiptingu í Bandaríkjunum

Hinum megin í heiminum sagði Drive í Ástralíu að heimildir sínar „benda til þess að tímalínan sem fram kemur í Auto Motor und Sport greininni sé nákvæm,“ en talsmaður VW í Ástralíu bætti við: „Við erum nokkuð langt á veg komnir hér, handskiptingar eru aðeins lágt hlutfall af heildarsölu.”

Að sögn Edmunds, af 327 bílategundum sem seldar voru í Bandaríkjunum á síðasta ári, bauð 41 bíll upp á handskiptingu eða 13%.

Raunverulegt hlutfall er miklu lægra; CarMax, stærsti söluaðili notaðra bíla í Bandaríkjunum, sagði í fyrra að sala þeirra á handskiptum bílum væri aðeins 2,4% af heildarsölu. Árið 2019 sagði Toyota að aðeins 1% kaupenda Corolla veldi handskiptingu.

Autoblog lýkur umfjöllun sinni á því að segja „að stærðfræðin muni sýna hvers vegna ökumenn handskiptra bíla munu brátt búa í hellum sem upplýstir eru með blysum“.

Fyrri grein

Karl Benz og fyrstu bílarnir

Næsta grein

Aston Martin afhjúpar Corgi módel í fullri stærð af DB5 bíl James Bond

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

Höf: Jóhannes Reykdal
17/06/2025
0

Breytingar verða gerðar sem hluti af iOS 26 hugbúnaðaruppfærslunni fyrir iPhone, sem kemur út í haust Apple CarPlay mun fá...

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

Höf: Jóhannes Reykdal
11/06/2025
0

BRUSSEL — Toyota segir að nýi smábíllinn Aygo X, sem er full-tvinnbíll, sé hreinasti bíll Evrópu sem þarf ekki að...

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

Höf: Jóhannes Reykdal
08/06/2025
0

Reuters News - BERLÍN — Nokkrum evrópskum varahlutaverksmiðjum og framleiðslulínum hefur verið lokað vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum af völdum...

Flottur Renault 4 minnir margt á gamla kassalaga bílinn

Flottur Renault 4 minnir margt á gamla kassalaga bílinn

Höf: Pétur R. Pétursson
03/06/2025
0

Sala á að hefjast í júlí og viðskiptavinir sem kaupa sérstakan R Pass munu geta lagt inn pöntun einhverjum vikum...

Næsta grein
Aston Martin afhjúpar Corgi módel í fullri stærð af DB5 bíl James Bond

Aston Martin afhjúpar Corgi módel í fullri stærð af DB5 bíl James Bond

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

17/06/2025
Bílaframleiðsla

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

11/06/2025
Bílaframleiðsla

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

08/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.