Sunnudagur, 29. júní, 2025 @ 5:00
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Brunabílar 1974

Jón Helgi Þórisson Höf: Jón Helgi Þórisson
10/11/2021
Flokkar: Bílasagan
Lestími: 3 mín.
281 6
0
137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Brunabílar 1974

Undirritaður fékk skemmtilega ábendingu í tölvupósti frá einum af lesendum Bílabloggsins:

Sæll.

Þakka skemmtilegar og fróðlegar greinar á Bílablogginu.

Til gamans langar mig aðað benda þér á, það er að segja ef þú veist það ekki nú þegar, að ca 1974-76 voru fluttir inn Datsun bílar sem höfðu orðið fyrir reykskemmdum í bíla fluttningaskipi sem kviknaði í. Þessir bílar voru kallaðir brunabílar.

Sumir voru örlítið sviðnir að utan og reykpest var innan í þeim en þessir bílar voru ódýrir og fengu færri en vildu.

Amk. 2 eða 3 komu í Mosfellsveit á þeim tíma og reyndust vel.

Mig minnir að Ingvar Helgason hafi sjálfur staðið að þessum innflutningi en er ekki alveg viss allavega fengu allmargir starfsmenn hans svona bíla.

Kveðja,

Georg Magnússon.

Ég verð að viðurkenna að mér var alls ókunnugt um þetta en ég var bara rétt tæplega 12 ára þegar þessir bílar voru fluttir inn til Íslands.

Eftir skamma leit með aðstoð Jóhannesar Reykdal ritstjóra Bílabloggsins fannst heimildarmaður sem hafði eignast einn af þessum Datsun bílum. Heimildarmaðurinn heitir Hlynur Árnason og vann á einu af þjónustuverkstæðum Ingvars Helgasonar og vann sem slíkur við viðgerðir á sumum af þeim.

Datsun 120Y árgerð 1974.

Hlynur rifjaði upp söguna en hún er eitthvað á þessa leið:

Árið 1974 kviknaði í flutningaskipi sem var að flytja Datsun bíla sem áttu að enda hjá umboði Datsun á Norðurlöndum sem var í Danmörku.

Ingvari Helgasyni var boðið að kaupa þessa bíla með verulegum afslætti. En þegar þeir komu bauðst starfsfólki Ingvars Helgasonar og þjónustuverkstæða Datsun ásamt ættingjum að kaupa þá á mjög hagstæðu verði.

Þessir bílar voru kallaðir brunabílar. Bílarnir sem komu hingað höfðu þó ekki brunnið og það var engin brunalykt inni í þeim. Datsun bílarnir voru með lakkskemmdum og krómið var líka skemmt. Allt gler, dekk og plastljós voru í stakasta lagi. Það sem olli skemmdunum voru efnin sem úðað var til að slökkva eldinn í skipinu.

Sennilega var það slökkvifroða (ágiskun mín) sem fór svona illa með lakkið og krómið. Þetta voru sem sagt nýir en útlitsgallaðir bílar sem voru seldir með afslætti.

Það komu Datsun 1200, 120 og 160 og kannski fleiri týpur líklega allt að 200 bílar í það heila.

Eitthvað var líka flutt inn af varahlutum sem komu úr bílum sem voru rifnir í Danmörku. Væntanlega voru bílarnir of illa farnir til að selja þá í heilu lagi.

Datsun 160 árgerð 1974.

Nissan framleiddi Datsun á þessum tíma og á vörumerkið

Þekkja fleiri til „brunabílanna“ og annað hvort keyptu eintak eða keyptu á svipuðum tíma nýjan Datsun sem var ekki útlitsgallaður?

Hvaða skoðun hefur fólk á því að það séu fluttir inn útlitsgallaðir bílar samhliða heilum nýjum bílum?

Georg og Hlynur fá kærar þakkir frá mér fyrir þeirra ábendingar og upplýsingar sem þeir veittu og stuðluðu að gerð þessarar greinar.

Lesendum Bílabloggsins er ævinlega velkomið að senda okkur tölvupóst varðandi málefni sem þeir vilja að við fjöllum um.

Fyrri grein

Þá ók blaðamaður inni í húsi og uppi á þaki

Næsta grein

Dísilvélin og uppruni hennnar

Jón Helgi Þórisson

Jón Helgi Þórisson

Bifvélavirki og blaðamaður

Svipaðar greinar

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Höf: Jóhannes Reykdal
23/06/2025
0

Audi var stofnað árið 1909 en fékk ekki fjóra hringi fyrr en árið 1932. Við skoðum söguna… Ef einhver segði...

Ford Pinto, elskaður og hataður

Ford Pinto, elskaður og hataður

Höf: Pétur R. Pétursson
08/04/2025
0

Ford Pinto var svar Ford Motor Company við vaxandi samkeppni frá japönskum og evrópskum smábílum á sjöunda áratugnum. Pinto var...

1969 BMW 2000CS – klassískur kúpubakur!

Höf: Pétur R. Pétursson
09/03/2025
0

BMW 2000CS er hluti af „Neue Klasse“ línunni frá BMW og var framleiddur frá árinu 1965 til 1969. Þetta var...

Hvað er „sportjeppi“? Við höfum svarið … eða þannig

Hvað er „sportjeppi“? Við höfum svarið … eða þannig

Höf: Jóhannes Reykdal
16/02/2025
0

En umræðurnar halda áfram..... Ein umdeildasta umræða í bílaheiminum er um skilgreininguna á SUV („Sport Utility Vehicle”) sem við hér...

Næsta grein
Dísilvélin og uppruni hennnar

Dísilvélin og uppruni hennnar

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

28/06/2025
Bílaheimurinn

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

25/06/2025
Bílaframleiðsla

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

24/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.