Það koma ekki nýir smábílar og litlir sportjeppar í staðinn, þar sem Audi einbeitir sér að stærri gerðum
Framleiðslu á smábílunum Audi A1 (myndin hér efst) og og litla sportjeppanum Q2 er hætt eftir meira en áratug.
Audi skráði 1.389.658 afhendingar af A1 frá því að hann var settur á markað árið 2010, en samtals 887.231 eintök af Q2 hafa runnið af framleiðslulínunni síðan hann kom árið 2016.
Audi sagði að gerðirnar væru sérstaklega vinsælar í Þýskalandi, Bretlandi og Ítalíu.
Þeim verður ekki skipt út beint: Audi er að hætta að smíða litla og hagkvæmari bíla og einbeita sér frekar að arðbærari kjarna lúxusbílamarkaðarins.
Komandi A2 E-tron, rafbíll undir sem svarar 4,9 milljónum ISK byggður á Volkswagen ID 3, mun í raun taka sæti þeirra í línunni og verða nýja grunngerð Audi.
Minstu gerðir þýska vörumerkisins með brunahreyfli eru nú A3 hatchback og Q3 sportjeppi.
Lokframleiðslu á A1 losar um pláss á framleiðslulínunni í Martorell á Spáni fyrir væntanlega línu Volkswagen-samsteypunnar af litlum rafbílum: Cupra Raval, Skoda Epiq, Volkswagen ID Polo og Volkswagen ID Cross.

Framleiðslu Audi Q2 lýkur
Á sama hátt víkur Q2 fyrir nýja A2 E-tron sem verður smíðaður í heimabækistöðvum Audi í Ingolstadt í Þýskalandi.
Að auki staðfesti fyrirtækið að nýi flaggskipssportbíllinn þeirra muni hefja framleiðslu á næsta ári. Hann verður smíðaður af Audi Sport í verksmiðjunni Böllinger Höfe, sem byggir á lágmarksútgáfunni Concept C og er innblásinn af TT.
Eins og Autocar hefur áður greint frá, verður núverandi aðalgerð þeirra – E-tron GT, sem er sett saman í sömu verksmiðju – hætt í framleiðslu síðar til að rýma til fyrir nýja sportbílnum.
(frétt á vef Autocar)




