IAA – bílasýningunni í München lýkur í dag, sunnudaginn 12. september, en hún hófst þann 7. september.
Fréttastofan Bloomberg tók saman pistil um sýninguna og er hann hafður til hliðsjónar hér en pistillinn birtist m.a. á vef Automotive News Europe. Höfum við fylgst með sýningunni gegnum erlenda miðla og þar sem við áttum ekki heimangengt skulum við skoða nánar hvað fréttaritara Bloomberg þótti standa upp úr á sýningunni.
München hýsti, sem áður segir, IAA Mobility og er þetta í raun endurgerð bílasýningarinnar sem fór fram árlega í Frankfurt, í sjötíu ár, þar til COVID -19 faraldurinn neyddi menn til að blása hana af árið 2020.
Með tilliti til umhverfismála og breyttrar heimsmyndar hefur orðið nokkur breyting á inntaki sýningarinnar. Hún einskorðast ekki við bíla og hefur, ef svo má segja, verið breytt í „sýningarskáp hreyfanleika“ rafknúinna mótorhjóla og rafmagnshjóla, rafdrifinna fólksflutningabíla og sporvagna, flutningabelta og svo líka, að sjálfsögðu, bíla.
Þetta er fyrsta stóra bílasýningin sem haldin hefur verið síðan heimsfaraldurinn lokaði á svona sýningar. Tap vegna sýninga sem blásnar hafa verið af nemur 40 milljörðum evra, að sögn samtaka þýska vörusýningariðnaðarins.
Tími bílasýninganna ekki alveg liðinn
Bílaframleiðendur voru farnir að efast um mikilvægi bílasýninga áður en heimsfaraldurinn kom til sögunnar.
Vitað var fyrirfram að Audi, BMW, Cupra, Dacia, Hyundai, Mercedes, Polestar, Porsche, Renault, Smart og Volkswagen myndu mæta, en vörumerki Stellantis, þar á meðal Opel/Vauxhall, Peugeot, Citroen og Fiat, voru hins vegar búin að tilkynna að þeir myndu ekki verða með á sýningunni og vakti það nokkra athygli.
Ferrari, Aston Martin, McLaren og Bentley tóku ekki heldur þátt í ár.
En sem sagt, nokkrir stórir framleiðendur töldu þess virði að vera hluti af sýningunni sem sett var upp í risastóru ráðstefnuhöllinni í München sem og á sumum merkustu og fegurstu sögustöðum borgarinnar, þar á meðal Bayerische Staatsoper óperuhúsinu.
Angela Merkel og Nico Rosberg fyrrum heimsmeistari í Formula 1 voru meðal þeirra sem sóttu sýninguna heim.
Nokkrir af þeim helstu á sýningunni
Mercedes-Benz kynnti fimm rafknúin ökutæki (auk blendinga) og hófu þar með 47 milljarða dala átak sem lýtur að því að koma rafbílum sínum til neytenda.
Benz EQE
Þar á meðal er EQE, sem kemur í kjölfar hinnar virðulegu EQS fólksbifreiðar sem Mercedes byrjaði að selja í síðasta mánuði. Gert er ráð fyrir að þetta minna og ódýrara systkini EQS styrki söluna hjá fyrirtækinu sem og tekjur og framlegð.
Benz EQG
Mercedes afhjúpaði einnig hugmyndabílinn EQG, rafjeppling, á sunnudeginum, degi fyrir formlega opnun sýningarinnar. Og nýjasta útspilið á hinum þekkta „Gelandewagen“ Mercedes, er rafmagns G-Wagen, ekki með sama grill og hinn bensínknúni G-Class. Í staðinn skartar hann svörtu spjaldi með upplýstri þriggja punkta stjörnu og ljómandi, kringlóttum LED framljósum.
Hlífðarstrimlar eru á hliðum og ferkantaður kassi að aftan mun geyma varadekkið og hleðslusnúruna. Fyrirtækið hefur enn ekki staðfest að það muni smíða EQG en hefur sagt að þessi hönnun sé „nánast tibúin til framleiðslu“.
Benz Maybach EQS
AMG EQS og AMG GT 4-dyra Coupe bættust einnig í hópinn, og var það undirstrikað með Mercedes-Maybach hugmynd að jeppahönnun, tvílitt og ávalt ökutæki með Maybach lógóum.
Við hringborðsumræður með blaðamönnum sagði forstjóri Mercedes-Maybach, Philipp Schiemer, að svo dýr bíll skipti sköpum fyrir langtímamarkmið Mercedes-Benz.
„Ný tækni fyrir lúxus viðskiptavininn er alltaf áhugaverð,“ sagði Schiemer við blaðamennina. „Það verður meira sjálfstraust [hvað raforku varðar] þegar við förum inn í nýja tímabilið, svo það er fyllilega rökrétt að megináhersla okkar verði á rafvæðinguna sjálfa.“
BMW i Vison Circular
Á sama tíma tilkynnti vörumerkið BMW, sem er á „heimavellii“ í München, að það myndi tvöfalda pantanir sínar á rafhlöðusellum þegar það afhjúpaði framleiðsluútgáfur af iX og i4 rafbílum sínum, auk fjölda rafmagnsmótorhjóla.
„Endurhugsum, drögum úr, endurnýtum og endurvinnum“, endurtók forstjóri BMW, Oliver Zipse, á kynningunni.
Mest áberandi hjá BMW var i Vision Circular „belgurinn“ úr endurunnu ómáluðu áli, stáli og öðru endurnýttu efni. Hugmyndabíllinn var ætlaður til að sýna hvernig BMW gæti orðið árið 2040.
Porsche Mission R
Porsche sýndi rafknúið ökutæki sem snýst örugglega ekki um endurvinnslu heldur frekar það að aka hratt. Hugmyndin að baki Porsche Mission R er byggð á tilgátu fyrirtækisins um hvernig „bikarbíll“ kappakstursmanna yrði ef hann væri knúinn rafhlöðum.
Nánast á stærð við Porsche Cayman, með einu sæti og veltibúri, sem er fellt beint inn í þakið, er Mission R hvorki löglegur í umferðinni né keppni undir merkjum FIA. Verði honum gefið grænt ljós er líklegt að bíllinn verði framleiddur árið 2024 og mun uppfylla hvaða reglugerðir sem þá eru í gildi, sagði forstjóri Porsche, Oliver Blume, við Bloomberg.
Samhliða rafrænu eldsneyti, hraðhleðslukerfi, blendingum og farsælli Taycan fólksbifreiðinni er bíllinn hluti af markmiði Porsche að verða kolefnishlutlaus framleiðandi árið 2030. „Við lítum á okkur sem frumkvöðla í fjárfestingum og þróun þessarar tækni,“ sagði Blume.
Audi Grandsphere
Hvað Audi varðar, þá kynnti fyrirtækið, sem er innan Volkswagen Group, annan bílinn af þremur í röð „sphere“ hugmyndabíla; Grandsphere. Það eru aðeins fáeinar vikur síðan fyrirtækið sýndi Skysphere coupé hugmyndabílinn í Los Angeles.
Grandsphere er með stillingu fyrir sjálfstæðan akstur, sem felur bæði stýrið og fótstigin.
Sagt er að bíllinn muni hafa 745 km drægni, og að hægt verði að bæta 300 km drægni við með 10 mínúna hleðslu þegar þess er þörf, með sérstökum hleðslutæki.
Yfirstjórnendur Audi hafa lofað að allir bílar þeirra verði rafknúnir frá og með árinu 2026. Árleg afhending Audi bíla mun tvöfaldast í 3 milljónir árið 2030, sögðu þeir.
Miðað við vikuna í München, geta þýsku bílaframleiðendurnir horft upplitsdjarfir fram á veginn hvað rafbíla varðar – að minnsta kosti í Evrópu.
Gert er ráð fyrir að sala á rafbílum í Þýskalandi verði 3,4 milljónir árið 2040, samkvæmt langtímahorfum BloombergNEF. Yrði það rúmlega 90 prósent allrar sölu nýrra bíla í landinu.
VW ID Life
Þó margir rafbílar sem sýndir voru á sýningunni í München falli í lúxushlutann gefur Volkswagen ID Life innsýn í hvernig rafmagnsbílar í grunngerð gætu litið út á næstu árum.
„Hugmyndin veitir forskoðun á ID-gerð í stærðarflokki lítilla bíla, sem við munum setja á markað árið 2025, verðlagt á um 20.000 evrur. Þetta þýðir að rafmagnsbílar verði mögulegur valkostur mun fleiri kaupenda,” sagði Ralf Brandstaetter forstjóri VW vörumerkisins.
Þessi litli kassalaga sportjeppi er hannaður til aksturs á þröngum borgargötum. Hann er byggður á minna afbrigði af rafdrifsgrunni VW (MEB) sem var þróaður sérstaklega fyrir smábílahlutann. Þetta er í fyrsta skipti sem ökutæki byggt á MEB verður með framhjóladrifi.
Með 172 kW rafmótornum getur ID Life farið frá núlli í 100 km/klst á 6,9 sekúndum, en 57 kWh rafhlaðan gerir 400 km aksturssvið mögulegt.
(Byggt á frétt Bloomberg á Automotive News Europe og öðrum bílavefsíðum)
?
Umræður um þessa grein