James Riswick, blaðamaður Autoblog segir frá.
Það eru reyndar ekki margir bílar í boði ef þú ert að leita að sjö sæta rafmagnsbíl. Rivian R1S og það er upptalið – nema að þú veljir ef til vill Kia EV9 en hann er ekki alveg samanburðarhæfur við Rivian bílinn né nýjan Volvo EX90, segir James Riswick, blaðamaður Autoblog.com

Það eru tvær útgáfur í boði
Twin Motor og Twin Motor Performance. Sá fyrrnefndi, sem við fengum ekki tækifæri til að prófa, gefur 408 hestöfl og 770 Nm tog.
Það virðist vissulega vera fáránlega mikið afl fyrir Volvo jepppling, jafnvel þótt honum sé falið að draga um að minnsta kosti um 2600 kílógrömm. 0-100 tíminn er áætlaður 5,7 sekúndur.
Ef þú gefur bílnum hressilega inn verða bæði fram- og afturmótarar virkir, en oftast, við hóflega hröðun, treystir Twin mótorinn á framásinn sem einn og sér skilar 241 hestafli. Sá aftari er að skila um 160 hestöflum.

Til hvers allt þetta afl?
Twin Motor Performance er með sama fram mótor, en aftari er uppfærður í 268 hestafla einingu. Heildarframleiðsla fer upp í 517 hestöfl og 910 Nm af togi. Afli er dreift jafnara og auðveldara í þessari útgáfu.
Það er líka togstýring auk rafrænnar kúplingar á afturöxlinum, sem fræðilega stillir afl á milli afturhjólanna til að auðvelda meðhöndlun á erfiðu yfirborði.
Okkur fannst hins vegar afskaplega erfitt að greina það, að hluta til vegna þess að EX90 er bara ekki sú tegund jeppa sem þú vilt keyra með einhverjum keppnistöktum. Til dæmis þegar við reyndum bíl eins og Acura MDX Type var auðveldara að finna og meta togstýringu fjórhjóladrifskerfisins; ekki svo mikið í EX90.

Alger þögn
Það kemur ekki á óvart miðað við 4,7 sekúndna 0-100 tímann að Twin Motor Performance mun þrýsta þér fast og hljóðlaust niður í sætið þitt þegar þú botnar bílinn út á hraðbrautina og lætur ökumenn nánast víkja eftir að hafa orðið vitni að drapplituðum Volvo-jeppa birtast skyndilega á ljóshraða.
Það eru engin Star Wars aflrásarhljóð, sem er gott vegna þess að þau eru venjulega gerfileg og myndu spilla því sem er einstaklega hljóðlátt innanrými.
Vindhljóð er líka nánast ekkert. Veghljóð er lítið og mjög dauft en Orange County virðist endurnýja vegi sína á nokkurra vikna fresti, svo það er erfitt að ákvarða það með vissu.

Vegirnir sem við ókum gerði okkur erfitt fyrir að meta aksturinn nógu vel. En XC90 átti reyndar alltaf í erfiðleikum með að skila mjúkum akstri á stórum felgum.
EX90 virðist vera betri í þessu sambandi með valfrjálsum 22 tommu felgum, en það voru nokkur högg sem við fundum í akstri. Þrátt fyrir það var prófunarbíllinn okkar búinn loftfjöðrun.
Í stuttu máli, við myndum velja minni, 21 tommu staðlaðar felgur.





Mislukkaðar skjástillingar
Það eru jú akstursstillingar, en þær eru grafnar undir svo mörgum skjásmellum að þú veltir fyrir þér hvers vegna í ósköpunum Volvo hannaði viðmótið svona.
Svo virðist að djúpt sé á stillingarnar vegna þess að Volvo-eigendur eru ekki vanir slíkum búnaði. Í rauninni kemur það ekki á óvart.
Líkt og með togstýringuna kemst stillanlegur stífleiki fjöðrunar ekki nálægt því að breyta fínstilltum og öruggum EX90 í eitthvað sem gæti kallast sportleg tilfinning – þetta bara pirrar mann í akstrinum.
Munurinn á stýrisstillingunum tveimur er líka lítill, þar sem „firm” er hvergi nálægt því sem þú myndir í raun telja þétt.
Þegar öllu er á botninn hvolft virðist það vera sóun á fyrirhöfn að vera fikta í þessum stillingum. Láttu hann bara keyra eins og Volvo vill hafa hann og sættu þig við það.


„One pedal drive” með einni stillingu
Á hinn bóginn gæti endurnýjunarhemlun verið stillanlegri. „One Pedal Drive” akstursstillingin er aðgengileg með snertiskjáhnappi í mælaborði, en hún hentar best fyrir akstur í þungum borgarakstri eingöngu. Hemlunin er of sterk annars staðar og það var erfitt að vera nógu fimur á inngjöfinni til að koma í veg fyrir að farþeginn minn sveiflaðist til og frá.
Millivegur væri vel þeginn, líkt og EV9 og margir aðrir bjóða upp á, sem gerir þér kleift að njóta nokkurra kosta „one pedal drive” aksturs án þess að bíllinn togi í þig í hvert skipti sem þú hægir á ferðinni.

Eins og margir í þessum flokki er EX90 boðinn í sex og sjö sæta útgáfum. Sex sæta útfærslan er með stólum í annarri röð, en fjölskyldur með yngri börn ættu ekki að haka í þann reit svo fljótt þar sem venjulegur 40/20/40 skiptur bekkur er mun hagnýtari og þægilegri og inniheldur pop-up barnastól í miðhlutanum.
Þriðja röðin er sú sama hvort sem er, og þó að höfuðrýmið sé þröngt fyrir hærra fólk, erum við samt að tala um sæti sem er hærra frá gólfi en í XC90 – og því þægilegra og rúmbetra. Rivian R1S er þó enn betri finnst okkur.
Sætin dásamlega góð
Framsætin munu svo sannarlega ekki valda þeim vonbrigðum sem búast við því að sætin í Volvo séu framúrskarandi. En því miður hefur Volvo dottið í þann pytt að setja allar stillingar sætanna í einn lítinn hnapp, sem er bara vesen fyrir notandann.
Þú þarft svo að horfa á skjáinn í mælaborðinu til að sjá hvernig þú ert að stilla sætið og fikta í þessum litla hnappi á meðan. Þessi stilling tekur skjáinn alveg yfir og þú sérð lítið annað á skjánum á meðan.
Þessi litli hnappur hætti líka að virka í einum af prófunarbílunum okkar og þurfti að skipta yfir í annað farartæki þar sem við gátum bókstaflega ekki hreyft sætið til að keyra örugglega.






Það er búið að fjarlægja rúðu upphalara hnappinn fyrir afturrúður úr framhurðinni, hazardinn hefur verið settur í innbyggðan í snertiskjáinn og það sem er mest pirrandi, spegla- og stýrisstillingar þurfa í gegnum mörg lög af skjámyndum sem tekur athygli og minnkar eftirtekt í akstri.
Því miður Volvo, en það er erfitt að halda því fram að öryggi sé í forgangi þegar þið ætlist til að maður taki augun af veginum í of langan tíma bara til að fínstilla spegil- eða stýri.
Að sjálfsögðu er myndavél sem starir stöðugt á þig til að tryggja að þú týnist ekki of mikið í erfiðum skjástillingum – eða kinkar bara kolli.
Njósnamyndavél á toppnum
Það er nú ekkert miðað við hnúðinn uppi á toppnum á bílnum. Þessi áberandi hnúður rétt fyrir ofan framrúðuna hýsir LiDAR skynjarana sem auka verulega getu EX90 til að greina hluti fyrir framan bílinn.
Jacob McKim, háttsettur hugbúnaðarverkfræðingur frá LiDAR birgjanum Luminar, sagði að belgurinn væri þar sem hann er til að veita besta mögulega sýnileika fram á við – að hafa hann innbyggðan hjá baksýnisspeglinum til dæmis, væri eins og að setja augun á hnén.
Hann sagði að hægt væri að setja næstu kynslóð skynjara á bak við gler (ef OEM vildi það), en sú tækni er ekki alveg til staðar ennþá. Skynjarinn ofan á bílnum er nauðsynlegur í dag.

Gögnin sem safnað er frá tækinu ofan á bílnum, ásamt öllum öðrum ratsjár- og myndavélarskynjurum, eru færð inn í tölvu frá Nvidia. Og þessi tölva sem gögnin fara í er ekki stór.
Toppgræjur
Bowers & Wilkins hljóðkerfið í prófunarbílnum okkar var einstakt, jafnvel þótt þú spilir ekki Dolby Atmos efni. Í hljóðlátu innanrými EX90 og yfirburða hljóðkerfisins ertu í rauninni keyra hljóðver á hjólum.

Endurunninn efni
Hvað hönnun farþegarýmisins varðar, þá er hún hreint og flott, en það er mjög erfitt að setja stóran, lóðréttan skjá á miðju mælaborðs og halda gildum hönnunar. Innanrýmið lítur í grundvallaratriðum út eins og í Tesla með umtalsvert betri efnum og eflaust dýrari.
EX90 er svo sannarlega flottur að innan. Við fengum tækifæri til að prófa tvær útgáfur, hvorug með leðri þar sem það er ekki fáanlegt.
Annar var með Nordico, leðurstaðgengli úr furuolíu, gömlum víntöppum og endurunnum plastflöskum. Það lítur vissulega ágætlega út og fílingurinn er líkt og gæðaefni sé að ræða en við veðjum á að það taki lit úr gallabuxum og þessháttar. Hinn kosturinn er ullarblandað efni, vottað af dýravelferðarsamtökum, búið til úr endurunnum efnum.

Gott og vel, þetta er semsagt bíll með hellingi af plássi, flottu afþreyingarkerfi, drápshljómtækjum og miklu meiri hröðun en hann þarfnast. Sérstakt áklæði á sætum líka. EPA-áætluð drægni fyrir báðar mótorútgáfur er um 483 km. með 20 og 22 tommu felgum og 498 km. með 21 tommu felgum.
Eitt er öruggt: Ef þú hefur verið að bíða eftir rafdrifnum fjölskyldujeppa sem fellur pottþétt undir „lúxus” skilgreininguna og getur tekið sjö í sæti, þá er bíllinn kominn.

Verðið er frá rétt um 16 milljónum upp í 18.3 milljónir hjá Brimborg.
Unnið upp úr reynsluakstri Autoblog.
Umræður um þessa grein