Hjá DesignCars í Jáeva eru allar óskir þínar uppfylltar

138
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

Hjá DesignCars í Jáeva eru allar óskir þínar uppfylltar

Hvort sem þig langar í nýjan ofursportbíl eða einn gamlan og klassískan

Þegar sá blaðamaður hjá www.billinn.is sem þetta skrifar var staddur hér í þessum litla og friðsæla ferðamannabæ á Costa Blanca á liðnu hausti uppgötvaði hann að hér var að finna eina flottustu bílasölu eðalvagna á Spáni og jafnvel þótt víðar væri leitað.

Bílasala þessi heitir Design Cars og er um 20 ára gömul, en hefur síðustu tvö árin verið hér í Jáeva, eða Xabia eins og bærinn heitir upp á katalónsku. Bærinn er mitt á milli Alicante og Valencia, en út við ströndina og því aðeins úr alfaraleið.

En nú þegar ég var kominn aftur hingað í þennan litla strandbæ var stefnan sett á heimsókn í Design Cars, og ég fékk í lið með mér eina íslendinginn sem ég veit til að búi hér allt árið og ég vissi einnig að hann væri hnútum kunnugur á staðnum. Hann heitir Ingvar Gissurarson og margir bílaáhugamenn hér á landi vita eflaust deili á honum vegna þekkingar hans á Jaguar-bílum og eins munu margir mótaorhjólamenn notið liðsinnis hans á liðnum árum. En hann er sem sagt búsettur hér á Spáni, og við héldum í heimsókn í Design Cars.

Þegar við komum á staðinn kom í ljós að eigandinn var staddur í Þýskalandi í einkaerindum, en fulltrúi hans, hún Elena, leiddi mig í allan sannleika um þessa bílasölu.

Hefur starfað í 20 ár

Að sögn Elenu þarf fyrirtækið ekki að standa í miklu markaðsstarfi, svo vel er þessi eðalbílasala orðin þekkt meðal áhugamanna um eðalvagna, bæði nýja og gamla, og sölusvæðið er öll Evrópa, eða eins og segir á heimasíðu þeirra: „Draumar og óskir kristallast í DesignCars, þar sem þeir hafa haft ánægju viðskiptavina sinna sem forgangsverkefni í meira en 20 ár.

Ástríðan fyrir sportbílum og lúxusbílum er drifkarftur okkar og hvatning“, segir á heimasíðu þeirra. „En forgangsverkefnið er að uppfylla allar kröfur sem viðskiptavinurinn kann að hafa“.

Sýningarsalur með bíla að andvirði hundraða milljóna

DesignCars er með sýningarsal þar sem hægt er að sjá og skoða bestu bíla í heimi, þar með talin nýjustu og mest aðlaðandi gerðirnar og nýjungar sem flottustu bílaframleiðendur í heiminum hafa upp á að bjóða.

Eða eins og þau hjá Design Cars segja: „Við þekkjum engin mörk eða landamæri, og þess vegna sem við getum fullnægt öllum kaupendum bíla, sama hvort þeir búa á Spáni eða öðru landi“.

Fjölbreytt úrval bíla í salnum

Að sögn Ingvars, sem hefur heimsótt sýningarsalinn reglulega, þá er nýbúið að taka úr marga fornbíla sem voru þar til sýnis og sölu og bæta inn nýjum glæsivögnum í staðinn. Öll helstu merki eðalvagna sem eru framleidd í heiminum má finna þarna í salnum og jafnframt suma mjög sjaldgæfa. Þar á meðal Mercedes Benz XLX AM6 „Final Run“ sem aðeins var framleiddur í örfáum eintökum og sá sem var þarna í salnum mun vera falur fyrir 600.000 evrur eða sem svarar 78 milljónum króna.

Við hlið sýningarsalarins er stórt verkstæði fyrirtækisins sem sérhæfir sig í viðgerðum og eins að gera upp gamla og nýrri eðalvagna og þar inni mátti sjá marga flotta bíla á gólfinu. Fyrir þá sem vilja skoða meira þá er vefsíðan þeirra: http://www.designcars.es/

En hér að neðan gefur að líta nokkrar svipmyndir úr þessari flottu bílasölu og látum þær tala sínu máli.
Maserati MC Gran Cabrio
Ferrari 328 GTS
Porsche Boxter PDK
Mercedes Benz XLX AMG – „Final Run“ – verðmiðinn „aðeins“ 78 milljónir króna.

Hér blasir vörumerki bílasölunnar við á veggnum á bak við þessa glæsilegu bíla frá Mercedes Benz en í gegn um gluggann sést inn á sérbúið verkstæðið sem sinnir viðhaldi og viðgerðum á nýjum og gömlum glæsivögnum.

Svipaðar greinar