Nýr og alrafmagnaður lúxusjeppi frá Mercedes-EQ frumsýndur á laugardag

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Nýr og alrafmagnaður lúxusjeppi frá Mercedes-EQ frumsýndur á laugardag

Bílaumboðið Askja frumsýnir nýjan og glæsilegan EQS SUV frá Mercedes-EQ á laugardaginn næstkomandi klukkan 12-16 í sýningarsal Mercedes-Benz á Krókhálsi 11.

EQS SUV er rafmagnaður lúxusjeppi með einstaka afkastagetu og drægi hans er allt að 616 kílómetrar.

EQS SUV setur ný viðmið fyrir rafmagnaðri framtíð í flokki lúxusjeppa með einstakri hönnun og glæsilegu innra rými.

Líkt og EQS fólksbíllinn hefur hann sama langa hjólhafið, góða veghæð og loftpúðafjöðrum sem skilar sér í framúrskarandi akstursgetu.

EQS SUV verður fáanlegur með allt að 22kW, þriggja fasa hleðslugetu sem hleður bílinn frá 0-100% á 5,5 klukkustund.

Hraðhleðslugeta bílsins er 200kW sem þýðir að hægt verður að ná 300 km drægni á aðeins 15 mínútum og hlaða bílinn 10-80% á u.þ.b. 30 mínútum.

Frumsýningin stendur frá kl. 12–16 í sýningarsal Mercedes-Benz á Krókhálsi 11 og eru allir velkomnir.

(fréttatilkynning frá Öskju)

Svipaðar greinar