Fimmtudagur, 9. október, 2025 @ 5:56
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Glænýr Peugeot 3008 frumsýndur

Pétur R. Pétursson Höf: Pétur R. Pétursson
05/02/2021
Flokkar: Fréttatilkynning
Lestími: 4 mín.
267 17
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Glænýr Peugeot 3008 frumsýndur

Brimborg frumsýnir glænýjan, ríkulega búinn Peugeot 3008 laugardaginn 13. febrúar að Bíldshöfða 8 í Reykjavík og Tryggvabraut 5 á Akureyri frá kl. 12-16. Brimborg mun bjóða Peugeot 3008 í bensín, dísil og í tengiltvinn rafútfærslu með ríkulegum staðalbúnaði, 7 ára víðtækri verksmiðjuábyrgð á bíl og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.

Nýr stórglæsilegur, kröftugur framendi og ríkulegur staðalbúnaður

Glænýr Peugeot 3008 er með nýjum, stórglæsilegum, kröftugum framenda þar sem nýtt grill, LED framljós með háuljósaaðstoð og LED afturljós leika aðalhlutverk. Ríkulegur staðalbúnaður einkennir nýjan Peugeot 3008. GPS vegaleiðsögn, bakkmyndavél með 180° víddarsýn, nýr 10″ margmiðlunarskjár, Mirror Screen speglun, ásamt nýjustu öryggistækni, til að mynda sjálfvirk neyðarhemlun. Peugeot 3008 er nú fáanlegur með nýrri næturmyndavél sem skynjar vegfarendur eða dýr í allt að 200 m fyrir framan ökutækið.

Peugeot 3008 tengiltvinn rafbíll er með fjarstýrðri forhitun sem tryggir heitan og þægilegan bíl.

Mikil veghæð, há sætisstaða og nútímalegt innra rými

Glænýr Peugeot 3008 er með mikla veghæð og háa sætisstöðu svo það er einstaklega þægilegt að ganga um hann. Nýr Peugeot 3008 er hár undir lægsta punkt eða 22 cm sem er með því hæsta sem þekkist í flokki tengiltvinn rafbíla.  Glænýr Peugeot 3008 er með nýjustu kynslóð af i-Cockpit® innréttingu sem hefur verið uppfærð og sérhönnuð til að veita einstaka akstursupplifun. Innra rýmið er fullkomið; nútímalegt og notendavænt þar sem nýjasta kynslóð af i-Cockpit innréttingu leikur aðalhlutverk.

Notagildi og  þægindi fyrir ökumann eru höfð að leiðarljósi þar sem öll stjórntæki, mælar og skjáir eru í sjónlínu ökumanns.

Sparneytinn bensín, disil eða tengitvinn rafbíla útfærsla með 8 þrepa sjálfskiptingu

Glænýr Peugeot 3008 er fáanlegur í bensín, dísil- eða í tengiltvinn rafbíla útfærslu. Bensín- og dísilvélarnar eru með nýjustu kynslóðum sparneytinna PureTech bensín og Blue Hdi dísilvéla sem eru jafnframt með þeim umhverfisvænustu á markaðnum í dag. Sparneytin bensínvélin eyðir frá 6,4 l per 100 km, sparneytinn dísilvélin eyðir frá 5,2 l per 100 km og tengitvinn rafbíll eyðir frá 1,6 l per 100 km skv. WLTP mælingu.

Peugeot 3008 tengiltvinn rafbíll er þekktur fyrir lágan rekstrarkostnað þar sem það kostar einungis um 220 kr að fylla 13,2 kWh drifrafhlöðuna og með 33 gr í C02 losun og því eru bifreiðagjöld í lægsta flokki.

Peugeot 3008 er með nýrri 8 þrepa sjálfskiptingu sem sparar allt að 7% af eldsneyti miðað við eldri 6 þrepa sjálfskiptingar.

Kraftmikill, fram- eða fjórhjóladrifinn tengitvinn rafbíll

Glænýr Peugeot 3008 PHEV er fáanlegur fram- og fjórhjóladrifinn. Framdrifinn Peugeot 3008 PHEV skilar samanlagt 225 hestöflum og fjórhjóladrifinn Peugeot 3008 PHEV skilar 300 hestöflum.

Allt að 59 km drægni á 100% hreinu rafmagni

Stærð drifrafhlöðunnar í framdrifnum Peugeot 3008 PHEV er 12 kWh og 13,2 kWh í fjórhjóladrifnum 3008 PHEV. Drægni hennar skv. WLTP mælingu í 100% rafmagnsstillingu er allt að 59 km (50 km í FWD) sem hentar einstaklega vel í allan daglegan akstur þar sem meðalakstur Íslendinga er 40 km á dag.

Peugeot 3008 PHEV er fáanlegur með 7,4 kW innbyggðri hleðslustýringu og því er auðvelt að hlaða Peugeot 3008 heima eða í vinnu á innan við 2 tímum með 7,4 kW hleðslustöð.

Einstök öryggis- og aðstoðartækni

Glænýr Peugeot 3008 er búin nýjustu kynslóð af öryggis- og aksturstækni til að tryggja öllum farþegum örugga ökuferð.  Bakkmyndavél með 180° víddarsýn, veglínuskynjun, ökumannsvaki, blindpunktsaðvörun, vegskiltalesari, sjálfvirk neyðarhemlun (Active City Break) og aðlögunarhæfur hraðastillir eru dæmi um einstaka öryggis- og aðstoðartækni.

7 ára víðtæk ábyrgð á bíl og 8 ár á drifrafhlöðu

Gæði Peugeot eru einstök enda í boði með víðtækri 7 ára verksmiðjuábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi ferli framleiðenda hvað varðar þjónustuskoðanir.

Peugeot 3008 kostar frá 5.190.000 kr. og er fáanlegur í tveimur útfærslum; Allure og GT.

Peugeot 3008 tengiltvinn rafbíll kostar frá 6.090.000 kr. og er fáanlegur fram- og fjórhjóladrifinn í tveimur  búnaðarútfærslum; Allure og GT.

Nánari upplýsingar um glænýjan Peugeot 3008 er að finna á vef Peugeot á Íslandi peugeotisland.is, eða hjá sölustjóra Peugeot á Íslandi, Benný Ósk Harðardóttur eða í síma 5157802.

Fyrri grein

Bílasalan fer hægt af stað

Næsta grein

Flottur Maxus Euniq fjölnotabíll

Pétur R. Pétursson

Pétur R. Pétursson

Vefstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

XPENG frumsýnir nýja G6 og G9 á Íslandi.

XPENG frumsýnir nýja G6 og G9 á Íslandi.

Höf: Pétur R. Pétursson
25/09/2025
0

Laugardaginn 27. september kl. 12-16 í sýningarsal XPENG að Vínlandsleið 6-8 Reykjavík, september 2025 – XPENG, eitt hraðast vaxandi rafbílamerki...

Mitsubishi Motors Europe kynnir nýjan 100% rafmagnaðan Eclipse Cross

Mitsubishi Motors Europe kynnir nýjan 100% rafmagnaðan Eclipse Cross

Höf: Jóhannes Reykdal
19/09/2025
0

Mitsubishi Motors Europe frumsýndi í gær, 17. september, nýjan Eclipse Cross, 100% rafmagnsjeppling fyrir Evrópumarkað. Bíllinn er í flokknum C-SUV...

Flaggskipið Ranger Rover SV klætt í svart í tilefni afmælisins

Flaggskipið Ranger Rover SV klætt í svart í tilefni afmælisins

Höf: Pétur R. Pétursson
13/09/2025
0

Land Rover á Íslandi fær innan fárra vikna í sýningarsalinn við Hestháls glæsilega nýja útgáfu af flaggskipi merkisins, sem ber...

Við kynnum nýjan Model Y Performance

Við kynnum nýjan Model Y Performance

Höf: Pétur R. Pétursson
06/09/2025
0

Fyrr á þessu ári setti Tesla á markað mikið endurbætta útgáfu af þessum vinsæla bíl og í dag kynnir Tesla...

Næsta grein
Flottur Maxus Euniq fjölnotabíll

Flottur Maxus Euniq fjölnotabíll

Segðu okkur hvað þér finnst! Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Kia Soul hættir framleiðslu eftir árgerð 2025

08/10/2025
Bílaheimurinn

Tesla kynnir stóra FSD uppfærslu sem endurspeglar akstursstíl þinn

08/10/2025
Bílaframleiðsla

Hugmyndabíllinn Dacia Hipster

07/10/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.