Bílaumboðið Askja kynnir í fyrsta sinn á Íslandi: Honda ZR-V.
Frumsýndur næstkomandi laugardag, 28. febrúar, kl. 12-16 í sýningarsal Honda að Krókhálsi 13.
Honda ZR-V sameinar klassíska hönnun Honda við kraftmikla aksturseiginleika, nýstárlegt öryggi og einstök afköst.

Hjartað í ZR-V er e:HEV drifrásin en hann notar blöndu af rafmótorum og 2.0l bensínvél og er búinn endurnýjandi hemlakerfi sem skilar afgangsorku sem fyllir á rafhlöðu bílsins. Drægni ZR-V er því allt að 1.000 km (WLTP).
Hægt er að auka kraftinn með Sport akstursstillingunni en auk þess veitir snjóstilling bestu mögulegu akstursupplifun við vetraraðstæður.

Honda ZR-V kemur í ADVANCE útfærslu til Íslands og er því með ríkulegum staðalbúnaði.
Verð: 7.890.000 kr.
“Honda ZR-V var frumsýndur í Evrópu fyrir þó nokkru síðan við frábærar viðtökur. Við höfum því verið að horfa til þess að kynna bílinn hér á landi í einhvern tíma” sagði Hlynur Björn Pálmason, sölustjóri Honda á Íslandi. “Þetta er hybrid bíll sem vekur athygli og er með einstök afköst. Við erum gríðarlega ánægð að geta boðið upp á ZR-V á frábæru verði í úrvali Honda á Íslandi.” bætir Hlynur við.
Fjölmörg hleðslutengi og geymslupláss í farþegarýminu gera ZR-V að þægilegum stað til að vera á. Hituð fram- og aftursæti með leðuráklæði, ásamt stemningslýsingu, tryggja hámarksþægindi.
Nýr ZR-V er með stafrænum upplýsingaskjá fyrir enn betra öryggi. Advance útfærslan er með framhliðarskjá sem miðlar mikilvægum upplýsingum.

Nýjasta kynslóð Honda CONNECT upplýsinga- og afþreyingarkerfisins, með snjallsímatengingu í gegnum Apple CarPlay og Android Auto, gerir tengingu við bílinn snurðulausa.
Fréttatilkynning frá Öskju




