Pontiac Catalina: kraftmikill gæðingur frá 1960

143
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

1960 Pontiac Catalina er bíll frá gullöls bandarískra „full-size” krúseranna — tímabil þegar hönnun, vélarstærðir og akstursupplifun skiptu jafn miklu máli og hreinn kraftur.

Catalina-nafnið birtist fyrst hjá Pontiac um miðjan sjötta áratuginn sem útfærslustig, en frá 1959 varð Catalina sjálfstæð módellína. Þetta var líka tíminn þegar Pontiac fór að byggja upp ímynd sína sem sportlegri og kraftmeiri deild innan General Motors, meðal annars undir stjórn Semon „Bunkie“ Knudsen og með verkfræðinga eins og John DeLorean innanborðs — menn sem lögðu grunn að performance-ímynd Pontiac sem síðar skilaði bílum eins og GTO.

Pontiac kallaði þessa bíla „Wide-Track“ á þessum tíma, með breiðari sporvídd sem átti að bæta bæði stöðugleika og útlit.

Catalina var þannig bæði fjölskyldubíll og „muscle cruiser“ áður en muscle car hugtakið varð almennt — stór, lágur, kraftmikill og með naut mikillar athygli hvar sem hann fór.

Flott uppgerður

Þessi tiltekni 1960 Catalina hefur verið endurgerður af mikilli natni þar sem klassískt útlit og smekklegar uppfærslur fara saman. Bíllinn er í djúpglansandi svörtum lit með áberand krómáherslum og situr á klassískum 8-lug Pontiac felgum með breiðum hvítum hringjum sem gefa honum mjög rétt „period correct“ lúkk.

Undir húddinu er Pontiac 389 rúmtommu V8 með hinu goðsagnakennda Tri-Power setupi — þrír tveggja hólfa blöndungar sem gefa bæði góða hröðun og karakter þegar kerfið opnast.

Krafturinn fer í gegnum Muncie 4 gíra beinskiptingu aftur í Pontiac afturdrif með 3.23:1 hlutfalli, sem er skemmtileg blanda af krús-gír og spræku viðbragði.

Bíllinn er einnig með sérsmíðað pústkerfi, vökvastýri, vökvabremsur og uppfærða fjöðrun í verksmiðjustíl, þannig að aksturseiginleikarnir eru mun betri en margir tengja við bíla frá þessum tíma.

Þetta er þannig klassískur amerískur krúser sem má bæði njóta í rólegum sunnudagsrúnti eða gefa í þegar stemningin kallar á það.

Sérsmíðaðar innréttingar

Innréttingin er sérsmíðuð en heldur klassískum anda — krómáherslur, ný loftklæðning, bucket-sæti bæði að framan og aftan, miðjustokkur með 4 gíra gírstöng, upprunalegir mælar og Pontiac stýri.

Retro-style útvarp og sérsmíðuð hurðaspjöld bæta svo heildarmyndina. Mælaborðið er málað og skottið fullfrágengið með klæðningum sem sýna að hér hefur verið lagt upp úr heildarlúkki ekki bara yfirborðsútliti.

Pontiac Catalina naut mikilla vinsælda á sínum tíma og margir bandarískir tónlistar- og kvikmyndastjörnur keyrðu Pontiac á sjötta og sjöunda áratugnum — Elvis Presley var til dæmis þekktur fyrir Pontiac-áhuga og átti nokkra slíka bíla, sem hjálpaði við að styrkja ímynd merkisins sem bæði töff og lúxus.

Catalina var þó fyrst og fremst bíll almennings sem vildi stóran, stílhreinan og kraftmikinn amerískan bíl.

Í dag er svona Catalina blanda af safngrip og akstursbíl — bíll sem vekur athygli, hefur sögu og karakter og minnir á tímann þegar bandarísk bílahönnun var stór, djörf og full af sjálfstrausti. Endurgerð eintök eins og þetta sýna líka hvað vel þessir bílar eldast þegar rétt er staðið að endurgerðinni.

Svipaðar greinar