Þriðjudagur, 17. júní, 2025 @ 17:07
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Þessi sjálfhlaðandi námutrukkur er stærsta rafknúna ökutæki heims

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
02/01/2020
Flokkar: Bílaheimurinn
Lestími: 3 mín.
267 17
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Þessi sjálfhlaðandi námutrukkur er stærsta rafknúna ökutæki heims

Hann sparar 50.000 tonn af dísileldsneyti árlega

Við erum gjarnan að segja hér frá nýjum og spennandi bílum, venjulega flottum fólksbílum og sportbílum, en hér er ein „öðru vísi“ frétt, eða um stærsta rafknúna bíl í heimi.

Svissneska deildin hjá vélaframleiðandanum Kuhn hefur áhuga á að rafvæða trukkaflotann í námum. Þeir breyttu dísilknúnum risatrukk til að keyra á rafmagni og prófuðu trukkinn við vinnu í námu sem er í útjaðri Biel í Sviss. Trukkurinn er kallaður „eDumper“, og hann er stærsta rafknúna ökutæki í heimi.

Þessi stóri námutrukkur frá Komatsu, sem upphaflega var með öfluga 23,1 lítra sex strokka dísilvél er núna kominn með rafmagnsmótora og liðlega 4.000 kílóa, 600 kWklst litíumíon rafhlöðu, sem bíllinn hleður að mestu sjálfur þegar hann rúllar aftur niður brekkuna. Mynd: Andreas Sutter / eMining

EDumper byrjaði lífið sem Komatsu HD 605-7 sem knúinn var af risastórri dísilaflvél, sex stokka línutúrbódísilvél með 23,1 lítra rúmtaki. Trukkurinn er 9,4 metrar að lengd, 4,26 m á breidd og 4,26 m á hæð. Nettóþyngdin er 46,2 tonn og palluriunn rúmar 40 m³. Hámarkshraðinn er 70 km/klst.

Kuhn Schweitz fjarlægði sex strokka aflvélina og setti í staðinn rafmótora sem sækja rafstraum úr liðlega 4.000 kílóa, 600 kWklst litíumjónarafhlöðu. Til að bæta við samhengi er stærsti rafhlöðupakkinn sem boðið er upp á Tesla Model X með 100 kWh getu.

Hleður sig sjálfur á leiðinni til baka

Pakkinn vinnur með endurnýjandi hemlunartækni til að gefa eDumper raunverulega óendanlegt aksturssvið. Vísindamenn hafa ekki fundið langþráða byltingu í rafhlöðutækni; þeir notfæra sér bara grunneðlisfræði. 45 tonna eDumper ekur upp 13 prósenta halla til að ná í 65 tonna farm af kalki og kalkríkum jarðvegi sem það þarf að koma til nærliggjandi sementsverksmiðju. Trukkurinn er svo þungur þegar hann ekur aftur niður að endurnýjandi hemlakerfið nær að búa til mesta eða alla þá orku sem notuð er til að fara upp á hæðina.

Mun spara um 50.000 tonn af dísilolíu árlega

CNN setti nýlega ökumann úr Formúlu E-keppninni, Luca de Grassi, í stjórnklefann á eDumper. Hann fór af stað með 90% hleðslu á rafhlöðunum, komst á toppinn með 80% eftir og fór aftur upp í 88% hleðslu eftir að hafa farið niður brekkuna. Hver ferð er svolítið mismunandi, en Kuhn útskýrði að eDumper skapi venjulega meiri orku en trukkurinn eyðir. Að nota rafhlöður sem orkugjafa sparar um það bil 50.000 tonn af dísel árlega.

?

Næsta grein

Fiat Chrysler er að koma aftur með nafnið „airflow“

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

Höf: Jóhannes Reykdal
17/06/2025
0

Breytingar verða gerðar sem hluti af iOS 26 hugbúnaðaruppfærslunni fyrir iPhone, sem kemur út í haust Apple CarPlay mun fá...

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

Höf: Jóhannes Reykdal
11/06/2025
0

BRUSSEL — Toyota segir að nýi smábíllinn Aygo X, sem er full-tvinnbíll, sé hreinasti bíll Evrópu sem þarf ekki að...

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

Höf: Jóhannes Reykdal
08/06/2025
0

Reuters News - BERLÍN — Nokkrum evrópskum varahlutaverksmiðjum og framleiðslulínum hefur verið lokað vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum af völdum...

Afmælissýning Kvartmíluklúbbsins og Krúser – myndir

Afmælissýning Kvartmíluklúbbsins og Krúser – myndir

Höf: Pétur R. Pétursson
04/06/2025
0

Kvartmíluklúbburinn – 50 ára afmæli Kvartmíluklúbburinn, stofnaður árið 1975, hefur verið í fararbroddi íslensks mótorsports í hálfa öld. Klúbburinn rekur...

Næsta grein
Fiat Chrysler er að koma aftur með nafnið „airflow“

Fiat Chrysler er að koma aftur með nafnið „airflow“

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

17/06/2025
Bílaframleiðsla

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

11/06/2025
Bílaframleiðsla

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

08/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.