- Hugmyndabíllinn er með rafrænt kerfi stýris og stýri sem hægt er að leggja saman í aðstæðum sjálfvirks aksturs.
Opel/Vauxhall sagði að tilraunabíll þeirra, sem kallast Experimental, sem er alrafmagnaður, gefi „skýra sýn“ á framtíðarhönnun fyrritækisins og tæknistefnu.
Sportlegi hugmyndabíllinn verður kynnt á IAA Mobility sýningunni í München, sem stendur frá mánudeginum 4. september til föstudagsins 8. september.
Tilraunabíllinn er byggður á Stellantis BEV grunni og er búinn rafdrifnu fjórhjóladrifi, sagði Opel í yfirlýsingu á miðvikudaginn.

Opel segir Experimental gefa sýn á væntanlegar gerðir og tækni sem felur í sér framtíðarhönnun.
Nafn Manta endurvakið
Opel sagði ekki hvaða Stellantis BEV grunn hugmyndabíllinn notar en búist er við að framleiðsluútgáfa verði smíðuð á Stellantis STLA Medium rafmagns-fókus grunninum og endurvekja Manta nafn vörumerkisins sem notað var á Opel sportbíl sem smíðaður var á árunum 1970 til 1988.
STLA Medium-grunnurinn getur hýst rafhlöðupakka á milli 87 og 104 kílóvattstunda og býður upp á allt að 700 km drægni, sagði Stellantis á síðasta ári.
Coupe-crossover „fastback“ hönnun yfirbyggingar, Experimental, hefur orðið ákjósanleg hönnun hjá Stellantis fyrir millistærðarbíla Opel, eins og sést í Kína-smíðaðri gerðum Citroen C5 X og Peugeot 408.


Experimental er með „öfgakenndari túlkun“ á núverandi hönnun Opel, sem miðast við Vizor myrkvaða framgrillið, sagði Mark Adams, hönnunarstjóri Opel, í yfirlýsingunni.
Grillið hefur verið endurnefnt 4D Vizor með 4D sem vísar til lidar, ratsjár og myndavélakerfisins sem er innbyggt í það.
Hugmyndin er með virkum „flipum“ að framan og aftan til að bæta loftaflfræðilega eiginleika bílsins, en vindskeið að aftan getur teygst út eða dregist inn í samræmi við hraða bílsins. Hliðarspeglum hefur verið skipt út fyrir myndavélar á C-bitanum.

Inni í hugmyndabílnum eru létt sæti og einfaldað mælaborð sem varpar upp upplýsingum í stað þess að bjóða upp á hefðbundinn skjá.
Fellanlegt stýri
Hugmyndabíllinn er með „steer-by-wire“ stýrikerfi og stýri sem hægt er að leggja saman í aðstæðum sjálfvirks aksturs. Lýsingin í farþegarýminu er aukin með „rafeindaefnum“ sem gefa frá sér ljós.
(Hvað er „steer-by-wire“ kerfi? Ólíkt hefðbundnu stýri er stýrikerfið ekki með vélrænni tengingu við hjól bílsins. Í staðinn notar stýrisuppsetningin kapla sem senda rafræn merki í stjórnbúnað bílsins).
Nýja Opel gerðin á STLA Medium pallinum verður smíðuð á Ítalíu snemma árs 2025 í Melfi á Suður-Ítalíu.
Það fylgir annari gerð frá DS sem smíðuð verður í sömu verksmiðju og byrjar árið 2024.
STLA Medium grunnurinn er hannaður fyrir hágæða farartæki og skilgreindur af Stellantis sem „BEV by design“, sem þýðir að hann var aðallega hugsaður fyrir rafhlöðuknúin farartæki en gæti einnig staðið undir gerðum með brunavél á mörkuðum og svæðum sem krefjast þess.

Útgáfa Vauxhall af Experimental með „griffinmerki“ breska vörumerkisins.
(Nick Gibbs – Automotive News Europe)
Umræður um þessa grein