CX-5 er metsölubíll Mazda á heimsvísu og við gerum ráð fyrir að sjá þriðju kynslóð þessa bíls afhjúpaða á árinu.
Núverandi Mazda CX-5 kom á markað árið 2016 og þó að hann sé enn samkeppnishæfur við harða keppinauta meðalstórra fjölskyldujeppa, þá á að skipta honum út – og við sáum hann í prófunum á dögunum.

Seint á árinu 2025
Mazda upplýsti Auto Express á síðasta ári að búast megi við að nýr CX-5 komi inn á markaðinn árið 2027. En miðað við þessar njósnamyndir af dulbúnum tilraunabíl gætum við séð nýja bílinn koma seint á þessu ári.

Frumgerðin sem við sáum er í mjög einföldum felulitum og gefur okkur frábæra sýn á hönnun nýja CX-5, jafnvel á þessu frumstigi þróunar hans. Okkur væri án efa fyrirgefið að halda að þetta sé aðeins andlitslyfting af núverandi, vegna þess að heildarhlutföllin eru mjög kunnugleg.
Líkur 6e að einhverju leyti
Að framan sjáum við þynnri framljósafyrirkomulag og grill sem eru meira í ætt við það sem við höfum séð á nýja 6e fólksbílnum og CX-6e hugmyndabílnum. En á meðan þessar tvær gerðir eru rafknúnar verður CX-5 tvinnbíll, þannig að grillið er opið.

Mazda 6e er virkilega flottur bíll sem er að fullu rafdrifinn og áætlað að hann komi í sölu í Evrópu 2026.
Eins og núverandi bíll mun nýi CX-5 halda hlutföllum sínum nokkuð vel og hafa tiltölulega langa vélarhlíf til að gefa honum sportlegri prófíl.

Að aftan er útblásturskerfi með tveimur púströrum – hönnunareinkenni brunahreyflbíla Mazda – auk þunns, lárétts afturljósaklasa sem er ekki ósvipað og sést á CX-80 jeppanum. Varðandi innréttinguna er eitthvað sem hvíslar að manni að CX-5 gæti sótt innblástur frá 6e rafbílnum með risastórum 14,6 tommu snertiskjá á mælaborðinu.

Samkeppni við RAV4 og Tucson
Rafknúinn jepplingur Mazda mun koma í formi CX-6e árið 2027, sem mun sitja við hlið væntanlegs 6e. Við vitum nú þegar að nýi CX-5 mun halda bensínvél, þó að hann verði tengdur við nýtt tvinnkerfi til að halda í við Toyota RAV4 og Hyundai Tucson. Búist er við mild-hybrid gerð, en í ljósi þess að stærri CX-60 og CX-80 jeppar Mazda bjóða upp á tengitvinnvalkost gætum við séð tengitvinnútgáfu af CX-5 líka.
Uppruni: Autoexpress
Umræður um þessa grein