Nýr Mercedes-Benz GLB frumsýndur hjá Öskju

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Frumsýning á nýjum Mercedes-Benz GLB fer fram laugardaginn 9. maí frá kl. 12–16 í sýningarsal Mercedes-Benz að Krókhálsi 11.

Fjórhjóladrifinn með allt að 614 km drægni

Nýr, alrafmagnaður GLB er fjölhæfur og rúmgóður SUV sem hentar vel í íslenskar aðstæður. Bíllinn býður allt að 614 km drægni samkvæmt WLTP og kemur með 4MATIC fjórhjóladrifi.

Með möguleika á fimm eða sjö sætum, góðu farangursrými og sveigjanlegum lausnum hentar GLB jafnt í daglegum akstri sem og í lengri ferðir.

Ríkulega búinn

GLB kemur vel búinn bæði hvað varðar þægindi og öryggi. Meðal staðalbúnaðar er allt að 614 km drægni, 4MATIC fjórhjóladrif, LED framljós með háþróaðri ljósastýringu og bílastæðaaðstoð að framan og aftan. Einnig er bíllinn búinn MBUX snjallkerfi með snerti- og raddstýringu, íslensku leiðsögukerfi og rafdrifnum sætastillingum með minni.

Auk þess má nefna háþróuð aksturs- og öryggiskerfi, 360° myndavél, Digital Extras snjallforrit, panoramic glerþak og 800V hleðslukerfi með allt að 320 kW DC hleðslugetu.

Digital Extras App

GLB kemur með nýju MB.OS stýrikerfi og Digital Extras appinu sem tengir þig við bílinn. Þar er meðal annars hægt að fylgjast með hleðslustöðu, stilla hitastig og fá leiðsögn beint í símanum.

Við bjóðum alla velkomna í sýningarsal Mercedes-Benz að Krókhálsi 11 til að skoða nýjan GLB og kynnast honum nánar.

(fréttatilkynning frá Öskju)

Svipaðar greinar