Nýr rafmagnspallbíllinn Musso EV hefur verið kynntur til leiks hjá Bílabúð Benna. Þessi nýi pallbíll sameinar það sem mörgum liggur á hjarta; rafmagnsdrif með þeirri praktísku notagetu sem pallbíll getur boðið.
Bíllinn er í boði bæði framhjóla- og fjórhjóladrifinn. Drægnin á framhjóladrifsbílnum er allt að 546 km í borgarakstri og 420 km í blönduðum akstri.
Drægnin á fjórhjóladrifsbílnum er allt 466 km í borgarakstri og 379 km í blönduðum akstri.
Bíllinn notar 80,6 kWh rafhlöðu og hentar vel þeim fyrirtækjum sem vilja huga að umhverfisvernd en þurfa á pallbílaeiginleikum að halda. Rafhlaðan skilar framhjóladrifna bílnum 207 hestöflum.
Togið er allt að 339 Nm og hröðunin úr kyrrstöðu í hundrað er 9,1 sekúnda. Rafhlaðan skilar fjórhóladrifna bílnum 234 hestöflum. Togið er allt að 678 Nm og hröðunin úr kyrrstöðu í hundrað er 7,9 sekúndur.
Musso EV er hannaður til að mæta þörfum bæði í daglegum verkefnum og frítímaakstri. Hann hefur burðargetu upp á 500 kg, dráttargetu allt að 1.800 kg og rúmgóðan pall fyrir verkfæri, farangur eða annað sem þarf að flytja. Innra rýmið býður upp á notendavæna og nútímalega hönnun, með góðu plássi fyrir farþega og skjákerfi sem auðveldar stjórn upplýsinga og afþreyingar.
Staðalbúnaðurinn í bílnum er fjölbreyttur og nær yfir bæði öryggisbúnað og þægindakerfi sem gera aksturinn þægilegan og öruggan.
„Við sjáum aukinn áhuga á rafknúnum atvinnu- og fjölnotabílum hjá viðskiptavinum okkar. Musso EV er liður í því að bjóða upp á fleiri valkosti í þeim flokki,“ segir Benedikt Eyjólfsson hjá Bílabúð Benna.
Fréttatilkynning frá Bílabúð Benna




