Laugardagur, 28. júní, 2025 @ 11:47
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Mazda CX-50 kemur 2023

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
18/11/2021
Flokkar: Bílaframleiðsla
Lestími: 5 mín.
278 9
0
137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

2023 Mazda CX-50 sýndur sem millistór sportjeppi og tvinngerð væntanleg

Kunnuglegar vélar koma fyrst á markað og fjórhjóladrif er staðalbúnaður

Mazda hefur kynnt framboð nýrra sportjeppa sem von er á næstu árin. Sá fyrsti þeirra hefur loksins verið opinberaður eins og sjá má á vef Autoblog. 2023 Mazda CX-50 mun fylla skarðið fyrir ofan CX-30 með svipaðri stærð og CX-5. Og hann mun hafa fjölda áhugaverðra eiginleika, þar á meðal væntanlega tvinnaflrás.

Hönnunin lítur út fyrir að vera harðgerðari og öflugri útgáfa af CX-5. Bíllinn er með breiðari bretti með stærri hjólboga úr plasti. Grillið er með áberandi ramma og hægt að fá það í gljáandi svörtu.

Það eru jafnvel sportlegir mattir svartir límmiðar í boði fyrir vélarhlífina.

Mazda benti einnig á að afturhurðirnar hafi verið hannaðar sérstaklega og opið verður breiðara til að auðveldara sé að stíga á stigbrettið til að komast að þakgrindinni.

Innréttingin minnir á aðra Mazda-bíla, með stílhreinu mælaborði og stórum „földum“ lofttúðum. Skemmtilegar áherslur í útliti, eins og lóðréttu loftopin umhverfis mælaborðið sjálft, gera það einstakt og aðeins ferkantaðra í lögun. Það er einnig með nýjum innri lit sem kallast Terracotta.

Mazda hefur ekki gefið mikið upp um smáatriði varðandi CX-50, en bíllinn verður með nokkrar kunnuglegar vélar til að byrja með. Grunnvélin verður 2,5 lítra fjögurra strokka með náttúrulegu innsogi, með forþjöppuútgáfu í boði sem valkost. Búast má við að afl grunnvélarinnar verði um 185 til 190 hestöfl og 250 hestöfl fyrir túrbógerðina. Báðar koma paraðar við sex gíra sjálfskiptingu Mazda.

Fjórhjóladrif verður staðalbúnaður á öllum gerðum, þar sem þessari gerð er stefnt að því að vera hæfari útilífsbíll og torfæruhæfari en aðrar Mözdur. Og ef það hljómar undarlega að Mazda sé að skoða „virkari lífsstíl“ farartæki, ætti það ekki að gera það.

„Fyrir utan vaxandi fjölda torfærumiðaðra valkosta til sölu, komumst við [Autoblog] að því af blöðum frá samkeppnisaðila bílaframleiðandans að CX-5 er í raun einn af vinsælustu farartækjunum sem notuð eru í útilegur og skoðunarferðir utan hefðbundinna vega með bundnu slitlagi. Þó hann komist ekki nálægt því að jafnast á við vinsældir Subaru Forester eða Jeep Cherokee fyrir slíka kaupendur, þá er hann vinsælli en venjulegur sportjeppi. CX-50 er væntanlega ætlað að koma sér inn í þá þróun þar sem maður myndi gera ráð fyrir að Mazda sé að skoða svipuð markaðsgögn,“ segja þeir hjá Autoblog.

Margar akstursstillingar verða líka fáanlegar, meira en bara Normal og Sport. Viðbæturnar eru dráttarstilling og torfærustilling. Að sögn Dave Coleman verkfræðings Mazda er aðeins boðið upp á eina torfærustillingu til að einfalda hlutina.

Það gerir nokkrar áhugaverðar breytingar, eins og G-Vectoring kerfið, áhrifameira, en það er kerfið sem dregur úr togi þegar gefið er inn til að færa þyngd yfir á framhjólin fyrir meira grip. Búnaðurinn tengir einnig fjórhjóladrifið betur til að halda hjólum áfram að snúast á sama hraða fyrir stöðugleika.

Í brekkum kemur „brekkubremsa“ við sögu, hægagangur er hækkaður til að skipta mjúklega yfir í inngjöf og vökvagírinn læsist ekki eins fljótt til að hjálpa bílnum að komast yfir ójöfnur.

Ýmislegt fleira áhugavert er að finna. CX-50 verður fyrsti Mazda-bíllinn sem boðinn verður með víðáttumiklu sóllúgu og hann verður sá fyrsti sem framleiddur er í nýju sameiginlegu Mazda- og Toyotaverksmiðjunni í Alabama í Bandaríkjunum. Bíllinn fer í sölu næsta vor og verð verður líklega tilkynnt þegar nær dregur að hann komi á markað.

CX-60 og CX-80 munu koma á Evrópumarkað

Miðað við fréttir núna er greinilegt að þessi CX-50 muni koma á Bandaríkjamarkað, en aðrar gerðir koma á okkar markaðssvæði í Evrópu

Það er athyglisvert að CX-50 er að koma sókn sportjeppa frá Mazda af stað þar sem CX-60, CX-70, CX-80 og CX-90 gerðir koma í kjölfarið á nýjum afturhjóladrifnum grunni með sex strokka bensín- og dísilvélum sem eru þróaðar með rafvæðingu í huga. Þessar gerðir munu koma í mildum blendings- og PHEV gerðum, þar sem tveggja sætaraða CX-70 og þriggja sætaraða CX-90 koma til Bandaríkjanna með breiðari yfirbyggingu.

Samsvarandi „systkini“ þeirra með mjórri yfirbyggingu, CX-60 og CX-80, eru eyrnamerkt Evrópu. Allar fjórar gerðirnar eiga að koma á markaðinn á næstu tveimur árum.

(Frétt á vef Autoblog  og fleiri bílavefsíðum)

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Fyrri grein

7 sæta rafdrifinn Benz EQB væntanlegur

Næsta grein

Bílakarlinn Bandaríkjaforseti

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Höf: Jóhannes Reykdal
24/06/2025
0

Frumsýning laugardaginn 28. Júní kl. 12-16 í sýningarsal smart að Krókhálsi 11 Bílaumboðið Askja frumsýnir nýjan og alrafmagnaðan smart #5...

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Höf: Jóhannes Reykdal
23/06/2025
0

Audi var stofnað árið 1909 en fékk ekki fjóra hringi fyrr en árið 1932. Við skoðum söguna… Ef einhver segði...

Nýr Land Rover Defender Trophy Edition mun gera það gott í eyðimörkinni

Nýr Land Rover Defender Trophy Edition mun gera það gott í eyðimörkinni

Höf: Jóhannes Reykdal
22/06/2025
0

Land Rover Defender Trophy Edition mun líklega finna heimili á bílastæðinu við knattspyrnuvöllinn, en hann gæti líka gert það í...

Nissan Leaf árgerð 2026 kemur með allt að 485 km drægni

Nissan Leaf árgerð 2026 kemur með allt að 485 km drægni

Höf: Jóhannes Reykdal
21/06/2025
0

Nissan Leaf árgerð 2026 markar miklar breytingar fyrir rafbílinn frá Nissan, sem kalla má brautryðjanda rafbílanna. Þriðja kynslóð Leaf, sem...

Næsta grein
Bílakarlinn Bandaríkjaforseti

Bílakarlinn Bandaríkjaforseti

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaheimurinn

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

25/06/2025
Bílaframleiðsla

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

24/06/2025
Bílaframleiðsla

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

23/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.